Óðinn - 01.02.1917, Side 5

Óðinn - 01.02.1917, Side 5
ÓÐINN 85 er að sanna slík áhrif með óyggjandi rökum og því siður hægt að vita um alla, er skáldið hefur haft andlegt samneyti við. H. H. hefur þýtt nokk- ur kvæði og brot úr Brandi Ibsens, en mest ber á Heine-þýðingum hans og skulu þær því athug- aðar nokkru nánar, þó annars kenni lítilla áhrifa frá Heine í skáldskap hans. Heine-þýðingarnar eru flestar vel gerðar og margar prýðilegar. Þær eru nákvæmar, sama bragarhætti er haldið og varpað yfir þær íslenskuin blæ mörgum og þá stöku sinn- um vikið lítilsháttar við, islensk nöfn sett t. d. í staðinn, eins og í visunni: »Hann veslings Hallur á Hamri er hreint á pislartrje nú: hann langar þau óstjórnleg ósköp að eignast nágrannans kú«, en á þýsku er þetta: »Den König Wiswamitra, den treibt's ohne Rast und Ruh’, er will durch Kampf und Bússung erwerben Wasischtas Kuh«. Smávísurnar eru margar ágætlega þýddar, eins og t. d. »Vondur er heimur og veröld skarn« (Die Welt ist dumm, die Welt ist blind), Svo fagurt er lífið og lofthvelfing blá (Die Welt ist so schön und der Himmel so blau) og vel eru í kvæði Heines: »Wir fuhren allein im dunkeln Postwagen die ganze Nacht«—þessar línur þýddar: »Denn zwischen uns sass Amor der blinde Passagier«: »Pví milli okkar sat Amor ólukkans lómurinn sá!« Kvæði Heines »Die Grenadiere« mætti eflaust þýða betur, geðblænum er ekki haldið gegnum alt kvæðið og þýðingin ónákvæm í þessu erindi: »Was schert mich Weib, was schert mich Kind! ich trage weit bessres Verlangen; lass sie betteln gehn, wenn sie hungrig sind — mein Ivaiser, mein Kaiser gefangen!« á íslensku: »Hvað varðar mig nú um víf eða börn, þótt vist til þeirra mig langi. Pau, ef hungrið knýr, geta knúð um líkn — En keisarinn, keisarinn fangi!« Smákvæðið: Die Rose, die Lilie, die Taube, die Sonne er laglegt í þýðingu, þó ónákvæmt sje: die kleine, die feine, die reine, die eine = mín uppspretlan heilsu, mín lækning meina1). »Pú ert sem blómstrið eina«, er góð þýðing og nákvæmari en Ben. Gröndals, er gerir blómið að bláu blómi (ímynd rómantisku stefnunnar), máske vegna rímsins (sbr. þó hjá Gröndal í Gigjunni: — á fegra landi gróa blómin bláu —*). Lorelei-þýðing H. H. 1) 2 aðrar þýðingar eru til á kvæði þessu, önnur eftir L. H. B. í Pjóðólfi 58, 10 (bragarhætti ekki haldið, 5 áhersluatkvæði í Ijóðlínu!) og hin eftir Ársæl Árnason (óprentuð). 2) nákvæm þýðing á þessu kvæði er til eftir Gest, óprentuð. er nákvæmari en Stgr. Thorst.1) og ef báðar þýð- ingarnar eru bornar saman við frumkvæðið má líta, hversu Stgr. eykur á tilfmningar Loreleiar og farmannsins og má á þessu kenna róman- tiska skáldið Stgr. Th.: — kveður — sitt vilta sorgar\ag (gewaltige Melodei), — og farmaður harmblíðu hrifinn (ergreift es mit wildem Weh), — en Ijúft til hæða sjer (er sehaut nur hinauf in die Höh’). Vel er og þýtt: Ef inn jeg lít í aug- un þín — (Wenn ich in deine Augen seh’)2). Þá má sjá, hversu rím og stuðlar oft hafa áhrif á þýðingar og breyta jafnvel hugsun eða líkingu, lýsingarorði er skotið inn o. s. frv. Kvæðið: Du hast Diamanten und Perlen — hefur hjá Heine sama viðkvæðið í 3 erindunum: Mein Liebchen, was willst du mehr — hjá H. H.: Pú elskaða, livað viltu meir? í 2. erindi er skotið inn vegna rímsins: »og um þessi ljómandi augu jeg ótal sem bakkanna regr hef orkt af eilífum ljóðum —« auf deine schönen Augen hab’ ich ein ganzes Heer von ewigen Liedern gedichtet —« og í 3. erindi: »Pú mig hefur formað sem leir«: hast du mich gequált so sehr—«. Eða t. d. kvæði Heines: »Wir fuhren allein im dunkeln Poslwagen die ganze Nacht—«: »Við ókum í vagninuin auslan alein um koldimma nótt —«. »Ein Fichtenbaum steht einsam« er vel þýtt, þó Fichte (greni) verði að björk í þýðingunni og Palme í næsta erindi að fikju3). Smákvæði H. H.: Parodia (bls. 343) er bersýnileg stæling á þessu kvæði Heines: »Hann Jón gamli bredduna brýnir og bústýran trog hefur sótt —«. í kvæðinu »Du schönes Fischermádchen« (Pú fagra farmannsdóttir) þýðir H. H.: »Ivom, set þig hjá mjer, sæta og sól- brenda rjettu mjer hönd—« (sólbrenda skotið inn vegna stuðlanna).4) Ur kvæðabálknum Die Nordsee eru nokkur kvæði þýdd, m. a. Herangedámmert kam der Abend (Rökkvaði óðum að aftni) og þýðir H. H. hjer: »Mit leichtem Rohr schrieb ich in den Sand: Agnes, ich liebe dich!« »Með ljettum reyr jeg reit á sandinn: Rannveig, jeg elska þig!« og er þetta af skiljanlegum ástæðum; í sama kvæði er Tanne (greni) þýtt með eik, en geðblærinn breytist 1) Gísli Brynjólfsson hefur líka þýtt Lorelei, Ljóðm. 1893. 2) 2 aðrar þýðingar eru til á kvæði þessu, eftir Bjarna Jónsson frá Vogi, Úrval 1916, og Jónas Guðlaugsson, í Dagsbrún, 1909. 3) Jónas Guðl. hefur þýtt þetta kvæði laglega (Dags- brún, 1909). 4) lagleg þýðíng á þessu kvæði er til eftir Ág. Bjarna- son (Óðinn, I, 7).

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.