Alþýðublaðið - 06.10.1963, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 06.10.1963, Blaðsíða 6
na 1 H 1 p cí " BANDARÍSKI leikritahöfundur inn Tennesse Williams færði bóka safni Háskólans í Austin í Texas hluta að handritum sínum að gjöf fyrir skömmu. Ekki leið' þó á löngu þar til hann fékk þau öll endursend af|t- ur með þeiin ummælum, að eng inn í hásk'ólanum gæti stautað sig fram úr þeim. Urn fljúgandi spilavíti, raflíkneski og fleira B'andaríkjamenn hafa til þessa notað „fljúgandi spilavíti” til að sniðgí.nga lögin, sem leggja bann við fjárhættuspili. Nú hafa hins vegar nokkrir snjallir menn í Mi- ami lundið upp á nýjung. Þeir hafa semsé rekizt á neðansjávar- rif í 50 kílómetra fjarlægð frá strönd Miami og þar hyggjast þeir koma á fót spilaviti, sem ,,armur laganna” nái ekki til. ★ FYRIR heimssýninguna miklu, sem óformað er að halda í New York, hefur Walt Disney búið til „raflíkneski” af Abraham Lincoln Bandaríkjaforseta. Líkneski þetta, sem er ætlað staður í Illinois, er með þeim hagleik gert, að það getur hreyft sig, staðið á fætur þar sem það situr í stól, sezt aft- ur, fitlað við jakkaboðungana, eins og var vani Lincolns, — og síðast en ekki sízt haldið 10 mínúna ræðu . . . ★ HÉR á íslandi hefur upp á síð- kastið kveðið talsvert að innbrot um til gull- og skartgripasala, en svo rammt kveður að þeim í Banda ríkjunum, að kaupmennirnir hafa tekið eftirfarandi til bragðs: Einhvers staðar á góðum stað koma þeir fyrir einhverskonar ó- huggulegri fígúru í Hitchock-stíl, gjarnan sjálflýsandi beinagrind, til að skjóta kjarklitlum þjófum skelk í bringu. Þetta kvað hafa reynzt mjög vel. TÖLFRÆÐILEGAR skýrslur í Bandaríkjunum herma, að hver bandarískur ,,táningur“ snæði 3 kíló af frönskum kartöflum um árið, tali sjö mínútur í símann dag hvern til jafnaðar og kaupi fjögur pör af skóm á ári. Hvernig skyldi þetta vera hér á landi? JESUS Cuevas, ökumaður í Barcelona, svaf fast hér á dögun- um, þegar lögreglan vakti hann á bekk í miðju bæjarins. Þar lá hann og hraut, — í nærfötunum einum saman. — Þjófar hafa stol ið fötunum mínum á meðan ég svaf, sagði Cuevas. Þegar ég sofn aði, var ég fullklæddur“. IIUIIUllMlltllMINtMIHIIIlllUUUIIUIUHiniliarillNIIHIIIIin f PPJNSINN OG ÉG. PRINSINN OG GILDIPENINGANNA Bííhir húsbónda síns hvern einasta dag SNEMMA var ég staðráðinn í kenna prinsinum að meta gildi peninganna. Hann var ekki hár í loftinu, þegar ég op inberaði honum þau gullnu sannindi, að til þess að eignast per.inga þyrftu mcnn að vinna. Þess vegna yrði ég til dæmis að rjúka á fætur eldsnemma á hverjum morgni og halda til vinnu minnar, — til þess að hann og móðir hans gætu haft nég að borða og spjarir utan á sig. Nokkru síðar voriun við á gaisgi um bæinn og stönzuðum í ógáti fyrir utan girnilega sæl gætisbúð. Prinsinn, sem er fjarska ve’ku- á svellinu gagn vart sælgætinu, hóf upp raust sína og heimtaði lakkrís. Ég hef oft lent í svipaðri aðstöðu og ævinlega orðið að láta í minni pokann. En í þetta skipti vildi ég sýna hvor væri sá sterkasti. — Ég á enga peninga, sagði ég og var hinn versti. — Þá verðurðu að vinna meira, sagði prinsinn, og mér varð svo mikið um þetta til- svar hans, að ég vissi ekki fyrri til en ég var kominn inn í búð arholuna og búixm að kaupa lakkrísinn. Óðru sinnl sat ég í stofunni, þegar prinsinn kemur askvað andi og heimtar að ég fari þeg ar í stað niður í bæ og kaupi rautt mótorhjól og reiði sig aft an á því alla leið upp í sveit. Ég gat mér strax til um orsök kröfunnar. í næsta húsi við okk ur býr maður, sem á rautt mót orhjól, og það ber við um helg ar, að þeir fegðar bruna á því eitthvað út fyrir bæinn. Ég sagði prinsinum, að nýtt mótorhjól kostaði reiðinnar ó- sköp af peningum, og ég ætti ekki nærri nóg fyrir svo virðu legu farartæki. Prinsinn þagði, brá sér fram, en kom aftur að vörmu sporL með sparlbaukinn sinn, slengdij honum í kjöitu mér og sagði' hróðugur: — Hérna! Ég skal lána þér! Ef vel viðrar og skapið er með betra nióti, bregðum við feðgarnir okkur oft út í barkarí og kaupum snúða og vínarbrauð með kaffinu. Maddaman sem af greiðir þar er miður sterk í stærðfræðinni, þótt ekki sé henni það Ijóst sjálfri. Og eins og oft vill brenna við með af- greiðslufólk, þá verður kunn- áttuleysið í stærðfræðinni oft ar verzluninni til hagsbóta en viðskiptavinimmi. Eitt sinn sem oftar erum við staddir í bakaríinu. Maddaman hefur þegar pakkað inn vínar brauðum og snúðum og greitt mér til baka. Þá finn ég að prinsinn togar í crmina á mér og eegir um leið sfvo hátt að glumdi um allt bakaríið: — Snuðaði hún þig? Síðan þetta gerðist hef ég orð ið að sætta mig við franskt brauð með osti og beinahex með morgunkaffinu . . Rex. = / Á hverjum degi bíður Caro húsbónda síns. Á hverjum degi leitar hann hans. Og á hverj- um degi heldur hann vonsvikinn heim. Tino Garibaldo og kona haus elgnuðust Caro þegar hann var hvolpur og fljótlega kom í Ijós, að hann var óvenju skyn- samur hundur. Á hverjum morgni hélt Garibaldo til stræt- tevagnastöðvariti4ar í þorpinu Caniu til þess að fara hina þrjá- tíu kílómetra leið til Mílanó, þar sem hann vann við vélvirkjun. Ög klukkan hálf sjö á hverju kvöldi kom liann til baka með .vagninum. Strax og Caro var kominn af livolpsaldri tók hann upp á því að fagna húsbónda sín- um hvert kvöld á stöðinni. Sú venja brást aldrei. En dag nokkurn fyrir tveim árum síðan beið Caro til ein- skis. Sprenging í Mílanó hafði orðið Garibaldo að bana. Caro fór ekki heim fyrr en hann hafði beðíð í nokkra tíma. Daginn eftir ráfaðj Caro stöð- ugt um mjög órólegur. En á veajulegum tíma um kvöldið var hann kominn á stöðina og far- inn að bíða. Þetta hefur endur- tekið sig á hverju kvöidi síðan. Margir hafa reynt án árangurs að fá Caro til að gleyma söknuði sínum. Á hverju kvöldi klukkan hálf sjö stendur hann á stöð- inni og dinglar rófunni — og bíð- ur vonbrigða sinna. iiiiimiiiiiiMiiiimi iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiin/r^t 1 /'-''lHIHHHHHMIMHHIHHHMMHtlMHHIHMMIMMIHHHHHMHIHtMHMHMIIHHIHHIM<i><MM>'»'«MIH!HHMIMHHHHHIIHIIttiHiH!MMMHHttMMIIMllHHIMHIIHHHHIH!HHIHIHMMIIM«^ Talsvert er ljóslega enn eftir af fjölskylduveldinu í Frakklandi, svo sém sjá má af þessu. Baðvarnings- verzlun í Cannes, stillir nú í haust sólinni út í glugga sína glæsilegum bikinibaðfötum — en á þau er fest skilti eitt lítið, svolátandi: „Bikinibaðföt fyxir ungar stúlk- ur. Seljast einungls gegn skrif- legu leyfi frá foreldrum.” Amerískt: Maður nokkur ætlaði að heimsækja fáránlega málverka- sýningu á Greenwich Village í New York, að læstum dyrum og skilti með þessari áletrun uppi- hangandi: — Er farinn til sálfræðingsins. Kem aftur kL 2. Við Norðurlandabúar þurf- 1 [ um vissulega ekki að hafa á- § [ hyggjur af því að við höfum = : ekki sýnt Lyndon Johnson, 1 [ varaforseta Bandaríkjanha 1 = nægilega gestrisni Innan I [ skamms á liann að fara í i [ heimsókn til bæjarins Tol- i | edo, og hefur beðið um að f [ meira en helmingurinn af i [ dagskrá ferðarinnar verði i [ felldur niður” af því að hann f [ er ennþá svo þreyttur eftir f [ Norðurlandaferðina.” Forseti Gullstrandarinnar, f f Feix Houphouet-Boigny hlýt- [ f ur að teljast hinn hlutlaus- i f asti meðal hlutlausra. f í ræðu, sem hann hélt fyr- [ f ir skemmstu, tók hann svo 1 f til orða: f, — Sendið son yðar til § f náms í Moskva og þér fáið 1 1 ákafan andkommúnista til f f baka. Sendið hann til Sor- f | bonne og hann verður orð- f [ inn kommúnisti við endur- f [ fundina. I f f '** iUMIHIKIHMII II ■IHH.HItlHtllliHIHIIllHIIIIIIIII llllll £ 6. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐK)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.