Alþýðublaðið - 06.10.1963, Síða 16
■ HMMWmMWWWWWWW%MW%WWWWiWmWWWWWWMW%WMW%%W»M»W
Þeir könnuðust ekki
við Kiljan í veizlum
[
ALÞÝDUBLAÐID RÆÐIR VIÐ HALLDÓR LAXNESS
]
Reykjavík, 5. okt. — HP.
f HAUST birtist í Yísi og Tím-
. tmum grein um Steingrím Thor-
netcinsson, skáld, eftir Halldór
\*Kil.jan Laxness, en í ágúst var hálf
. bld liðin frá dauða Steingríms. —
JÞað vakti athygli blaðalesenda, að
vlgreinin var skrifuð undir nafninu
Halldór Laxness einvörðungu, en
-viKiljan fellt úr nafni Nóbelsverð-
'.-launaskáldsins. Nýverið hleraði
Alþýðublaðið, að bókin „Skálda-
Halldór Laxness
tími,” hið nýja verk Laxness, sem
væntanlcga kemur út 9. október,
mundi einnig birtast með höfund-
arnafninu Halldór Laxness, en ekki
Halldór Kiljan Laxness, en undir
því siðarnefnda hafa flestar bækur
skáldsins birzt á fslandi. Blaða-
maður Alþýðublaðsins hringdi í
gær upp að Gljúfrasteini og spurði
hvort rétt væri hermt. Laxness
kvað það rétt vera. Hins vegar
færi fjarri því, að hann hefði
breytt nafni sínu eða nokkuð í þá
átt.
— Það er ekkert grundvallar-
atriði, sem liggur þessu að baki,
en það stendur bara aldrei Kiljan
á þeim bókum mínum, sem birtast
í erlendum þýðingum. Þær eru
prentaðar með nafninu Halldór
Laxness, og ég er orðinn þessu svo
vanur, að ég er oft farinn að
sleppa Kiljan ör nafninu mínu,
þegar ég skrifa það, en rita í þess
stað H. L. eða Halldór Laxness.
Þetta er semsagt ekkert „prinsíp-
mál” af minni hálfu, að skrifa ein-
ungis Halldór Laxness, — það er
aðeins gert til hægri verka fyrir
alla aðila. Það þekkir mig enginn
útlendingur undir nafninu Kiljan.
Vinir mínir kalla mig flestir Hall-
dór eða Laxness; það er helzt ó-
kunnugt fólk, sem kallar mig Kilj-
an. Oft hefur það komið fyrir, að
ég hef verið kynntur fyrir fólki í
veizlum erlendis sem Kiljan, en
það veit sjaldnast við hvern er
átt og virðir mig ekki svars, en
rankar svo kannski við sér á eftir
og áttar sig á því, að Laxness og
Kiljan eru einn og sami maðurinn.
Eg man eftir a.m.k. tveimur dæm-
um um þetta frá útlöndum. Eg var ,
kynntur Kiljan fyrir því, en svo
kom það til mín á eftir og sagði:
Ja, ég vissi ekki, að það voruð
þér. Eg kom þó einmitt hingað til
að hitta yður, en ég kannast ekkert
við Kiljan.
— Kemur ekki nýja bókin yðar
út 9. október.
— Eg veit það bara ekki. Eg
veit það eitt, að það er verið að
prenta hana núna en ég þori ekki
að fara með útkomudaginn.
— Ragnar mundi vita það bet-
ur?
— Já, ég býzt við því.
— Hafa ekki einhverjlr vinir
yðar fengið að lesa handritið eða
glugga í það?
— Nei, ég held enginn liafi les-
ið það. Það var enginn tími til
þess. Bókin fór í prentun, áður
en ég var búinn með hana, en ég
var svo langt kominn, að það var
vel hægt að koma því svo fyrir.
Prentaramir lesa hana fyrstir — á
eftir Ragnari.
— Hafið þér unnið lengi að
Skáldatíma eða var bókin skrifuð í
sumar að — mestu?
— Já, ég hef einkum unnið að
henni í sumar, en ég átti uppkast
eða lausleg minnisblöð — væri
kannski réttara að segja — frá
síðari árum.
— Eruð þér með fleiri ritverk
á prjónunum?
— Ja, ég get eiginlega ekki sagt
það, því að Skáldatími hefur tekið
allan tíma minn upp á síðkastið.
Eg á ekki gott með að hafa mörg
járn í eldinum í senn, af því að
ég er einyrki. Eg get ekkert sagt
um þetta núna, en síðar býzt ég
nú við, að ég fari eitthvað að bolla-
leggja.
— Hvað um Dúfnaveizluna?
— Já, það er leikrit. Eg varð
að leggja það á hilluna í vetur,
þegar ég tók til við Skáldatíma
fyrir alvöru, en ég held sjálfsagt
áfram með það, þegar tími vinnst
til.
— Við getum þá kannski ekki
spjallað meira um það, sem enn er
ekki orðið til.
— Nei, ég býst ekki við því.
Að svo mæltu þökkuðum við
Halldóri Laxness samtalið.
>4%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%^
Fyrsti rafeindaheilinn
er kominn tii landsins
osmm
44 ár. — Sunnudagur 6. október 1963 — 116. tbl.
Afbrot barna auk-
ast í skammdeginu
Reykjavík, 5. okt. R.L.
Þegar ljósmyndari og blaðamað-
tir Alþbl. va|ru á gangi nið'ur
■i Klapparstíginn í dag, sáu þeir að
• extthvað var um að vera framan
Við húsið þar sem umboð IMB er
-'ltil húsa. Þarna var lyftari frá
íEimskip að tilfæra nokkuð stóra
vlcassa og flytja þá inn í húsið. Við
Vorum svo heppnir að rekast á um-
ifcoð.smanninn, IMB á íslandi, en
ifiað er Otto A. Michelsen.
— Hvað er hér um að vera,
Otto?
— Við erum að fá rafreikni,
• Cða- svokallaðan rafeindaheila.
■’Hann kemur frá Montreal í Can-
*<%ada, en þar er hann smíðaður.
Hann verður hér aðeins í þrjár
• Vikur, .en þá fer liann til Finnlands.
stendur til að nota rafreikn-
inn til kennslu fyrir menn sem
hafa tekið þátt í Fortran nám-
skeiðum.
— Hvað er Fortran?
— Fortran er það tungumál
sem rafreiknirinn skilur.
— Til hvers eru svona rafreikn-
ar notaðir?
— Aðallega við visindi og vís-
indalega útreikninga. Þessar vélar
hafa það sérstaklega til síns á-
gætis að vera mjög öruggar, fljót-
legt er að setja þær upp og ótrú-
lega auðvelt er að vinna með þeim.
Nú bar| að mann sem Ott.o
kynnti fyrir okkur. Anders Thal-
me, sænskan verkfræðing,
einn af forstjórum IMB á Norður-
löndum. Við spurðum hann:
— Hafið þér unnið lengi hjá
IMB?
— í 35 ár. Þegar ég byrjaði
Framh. á 2. síðu
Reykjavík, 5. okt. — A.G.
ÚTIVIST barna hefur orðið æ
tneira vandamál hér í höfuðborg-
inni. Máí vegna lauslætis stúlkna
innan 16 ára aldurs, verða sífellt
tíðari, og hefur rannsóknarlögregl-
an fengið mörg slík mál til með-
ferðar. Drengir innan 16 ára ald-
urs gerazt oftast sekir um innbrot
og skemmdarverk.
Nú, þegar skammdegið fer í
liönd og eftir fenginni reynslu,
aukast afbrot unglinga og slysa-
hætta vex. Vegna þess, hefur
Barnaverndamefnd Reykjavíkur
sent frá sér eftirfarandi tilkynn-
ingu:
Á fundl bamaverndarnefndar
Reykjavíkur sem lialdinn var 30.
sept. sl. var samþykkt að beita sér
fyrir því, að reglum um útivist
bama verði fylgt og skora á for-
eldra, að sinna þeirri skyldu sinni.
Skammdegið fer £ hönd og sam-
kvæmt reynslu eykst þá slysahætt
an og afbrotum barna fjölgar. —
Með auknu eftirliti og strangari
gæzlu á reglum um útivist er hægt
að draga úr slysahættunni og
fækka afbrotum. Það hlýtur að
vera áhugamál allra foreldra.
Ákvæði um þessi atriði eru í
19. gr. lögreglusamþykktar Rvík-
ur. Hún er svohljóðandi:
Lögreglustjóra er heimilt að
banna öllum óviðkomandi, sem
ékkl eiga brýnt erindi, umferð út
í skip, sem liggja i höfninni, frá
kl. 20-8 á tímabilinu 1. október
til 1. maí, en frá kl. 22-8 á tíma-
bilinu 1. maí til 1. október. Ungl-
ingum innan 16 ára er óheimill að-
gangur að almennum knattborðs-1
stofum, dansstöðum og öldrykkju- |
stofum. Þeim er óheimill aðgang- j
ur að almennum veitingastofum,
ís-, sælgætis- og tóbaksbúðum
eftir kl. 20.00 nema í fylgd með
fullorðnum, sem ber ábyrgð á
þeim. Öll afgreiðsla um söluop til
barna eftir að útivistartíma þeirra
cr lokið, er óheimil. Eigendum og
umsjónarmönnum þessara stofn-
ana ber að sjá um, að unglingar
fái þar ekki aðgang né hafizt þar
við fram yfir það, sem leyfilegt
er. Ákvæði þessi eru þó ekki því
til fyrirstöðu, að unglingar megi
hafa afnot af strætisvagnaskýlum.
Börn yngri en 12 ára mega ekki
vera á almannafæri seinna en kl.
20 frá 1. október til 1. maí og ekki
seinna en kl. 22 frá 1. maí til 1.
Framh. á 2. síðu
_ ^
A
morgun
er
HAB
dagur
AУIN$ 5000
NÚMER/
Aðalumboðið
Hverfisgötu 4
er opið til kl. 8 í kvöld.
Myndin er af Anders Thalme t.v.
ög Otto A. Michelsen t.li. • •