Alþýðublaðið - 15.10.1963, Blaðsíða 5
*
FRÁ ALÞINGI
Reykjavík 14. okt. — EG
Á Alþingi var í dag lagt fram
tuttugu og eitt nýtt mál. Má þar
nefna frumvarp til nýrra laga um
þinglýsingu. Samfara því frum-
varpi eru flutt frumvörp að breyt
ingum á tíu lagabálkum til sam-
ræmis við frumvarpið um hin
nýju þinglýsingarlög. Friímvarp
tim breytingu á áfengislögum,
frumvarp til laga um fullnustu
refsidóma sem kveðnir hafa ver-
ið upp í Danmörku, Noregi eða
Svíþjóð, frumvarp til laga um
veitingu ríkisborgararéttar til
handa fimm erlendum ríkisborg-
urum, frumvarp til laga um með-
ferð ölvaðra manna og drykkju-
sjúkra, frumvarp til laga um loft-
ferðir. Tvö síðasttalin frumvörp
voru lögð fram á síðasta þingi, cn
urðu ekki útrædd. Frumvarp til
laga um breytingu á lögum um
lækningalyfi o.fl. Frumvarp til
lag um bráðabirgðabreytingu og
framlengingu nokkurra laga.
Tvær þingsályktdnartiliögur
voru fluttar. Frá Eggert G. Þor-
steinssyni um að komið verði á
fót hreyfanlegri viðgerðarstöð fyr
ir leitartæki síldveiðiflotans og
frá Geir Gunnarssyni og Hannibal
Valdimarssyni um sérstakar ör-
orku- og dánarbætur sjómanna.
18 millj. til út-
rýmingar heilsu-
spillandi íbúðum
RÍKIÐ mun verja 18,2 inilljón-
um króna til útrýmingar hcilsu-,
spillandi liúsnæði á árinu 1964,
en til skamms tíma var upphæð
þessi takmörkuð við 4 milljónir.
Er hér um gífuriega hækkun að
ræða, sem stafar nú af því, að
ríkið skammtar nú ekki iengur
þetta fé, heldur greiði sinn
hluta af hverri heilsuspiliandi i-
búð, sem bæjarfélögin leggja nið-
ur með því að byggja nýtt í stað-
inn.
★ HALLI Landsspítalans
og fæðingardeildar er á-
ætlaður 51,8 milljónir
næsta ár.
★ ALÞJÓÐA flugþjóinupta,
sem veitt er hér á landi,
' mun kosta 62,5 milijóuir
næsta ár en þar af greiða
aðrar þjóðir 57,8 milljón-
FASTANEFNDIR KOSNAR
' SAMEINUÐU ALÞING!
Reykjavík 14. okt. — EG
Á fundi sameinaðs þings í dag
var kosið í fastanefndir sam-
kvæmt 16. grein þingskapa. Kosið
var í fjárveitinganefnd, utannkis-
málanefnd, allsherjarnefnd og
þingfararkaupsnefnd.
í fjárveitinganefnd hlutu eftir-
farandi kosningu: Jónas Rafnar (S)
Guðlaugur Gíslason (S), Jón Árna-
son (S), Gunnar Gíslason (S),
Birgir Finnsson (A), Halldór Ás-
grímsson (F), Halldór E. Sigurðs-
son <F) Ingvar Gíslason (F) og
Geir Gunnarsson (K).
Aðalmenn í utanríkismálanefnd
voru kosnir: Jóhann Hafstein (S),
Sigurður Bjarnason (S), Davíð Ól-
afsson (S), Emil Jónsson (A), Her-
mann Jónasson (F), Þórarinn Þór-
arinsson (F) og Einar Olgeirsson
(K). Varamenn í utanríkismála-
nefnd voru kosnir: Magnús Jóns-
son (S), Matthías Mathiesen (S),
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S), Gylfi Þ. Gíslason (A), Óiafur
Jóhannesson (F) Helgi Bergs (F)
og Gils Guðmundsson (K)
í allsherjarnefnd voru kosnir:
Pétur Sigurðssön ÍS), Mafthías
Framh. á 4. síðu
■UWVWiMWWWWWMMVVWWWWMWVWWMVMWMO
stjórnin lagði fyrir Alþingi í gær, eru þessir:
Æðsta stjórn................................... kr.
Alþingi o. fl. .............................
Ríkisstjórn og ráðuneytin ..................
Heilbrigðismál .............
Vegamál og aðrar samgöngur
Kirkjumál ...................
Atvinnumál ...................
Tryggingar og önnur félagsmál
iins, - sem ríkis
kr. 2 000 713
17 675 000
— 67 540 424
— 139 438 275
• — 46 841 556
— 114 052 135
— 243 014 981
— 411 787 398
— 29 518 160
— 218 934 956
1604 678 216
MVVVMVMVMMMVVVVVVMVVVMVMMHVHVVMVVVMVVVVVMMVMMVI
PUR FYRIR
'k Ejárlög hækka urn 29 milljarða.
★ Skattar og tollar hækka hins
vegar ekki.
Reykjavík 14. okt. — EG
LAGT var fram á þingi í dag
frumvarp til fjárlaga fyrir árið
1864. Miðað við fjárlög yfirstand
standandi árs hækka rekstrarút-
gjold. rík'sins samkvæmt frum-
varpinu um 329,2 milljónir króna,
án þess þó, að hækkanir verði á i
sköttum eða tollum frá því sem
nú er. Rekstrarafgangur er áætl-
aður rúmlega 152 milijónir króna
Gert er ráð fyrir 72,3 millj. kr.
hækkun á almannatryggingum.
Niðurstöðutölur á rekstraryfirl'iti
EYFANLEG
VIÐGERÐAR-
LEITAR-
Eggert G. Þors(teinsson flutti
í gær þingsályktunartillögu um
hreyfanlega viðgerðarþjónustu fyr
ir fiskileitartæki síldarflotans. Til
lagan er svo hljóðandi:
Alþingi á-
lyktar að skora
á ríkisstjórnina
að láta fara
íram athugun
á því, hvernig
bezt verður fyr
ir komið hreyf-
anlegri viðgerð
arþjónustu við
('iskileitartæki
síldveiðiflot
ans.
í greinargerð
með tillögunni segir:
Landsmönnum öllum er nú orð-
ið ljóst af reynslu undanfarinna
ára, hve mikilvirk hin nýju fiski-
litartæki fiskiskipaflotans eru.
Fullyrt er af þeim skipstjórum
fiskiskipaflotans, sem til sín hafa
látið heyra opinberlega, að
aðeins örlítið brot þess síldarafla,
sem undanfarið hefur á land kom-
ið hefði ekki veiðst, ej ekkf
hefði notið við hinna fullkomnu
fiskileitar- og fiskveiðatækja.
Það liggur í augum uppi, þegar
skoðaðar eru tölur um útflutn-
ingsafurðir þjóðarinnar, hve stór
hluti síldarafurðirnar eru og þar
af leiðandi live rnikið þjóðarbúið
sem heild á undir því, að e.t.v. í
stærstu hrotunum lamist veiðarnar
ekki vegna skorts, á nauðsynlegri
viðgorðarþjónustu.
Nú munu þess allmörg dæmi,
að einstök skip liafi orðið að
hverfa frá veiðum e.t.v. á beztu
veiðidögunum vegna bilana á fisk
leitar.tækjunum. Viðgerð tækj-
anna hefur þá ekki alltaf reynzt
auðveld og ómetanlegt tjón af
því hlotizt. Á sl. sumri voru t.d.
á þriðja hundrað fiskiskip í síld-
veiðif-lotanum. Þá reyndist síldin
meginhluta veiðitímans vera fyrir
Austfjörðum; Aðeins á einum stað
— Norðfirði — var viðgerðarmað-
ur til að annast nauðsynlegustu
"fyrirgreiðslu í þessum efnum og
voru þess dæmi, að biðraðir skipa
væru. á Norðfirði til að fá viðgerð
tæki sín. Önnur fyrirgreiðsla í
þessum efnum var ekki fyrir
hendi þegar frá eru tekin einstök
dæmi um, að skipstjórarnir
hringdu utan af sjó til umboðssala
taekjanna í Reykjavík og fengu
senda viðgerðWrmenn í flugvól,
til verstöðvanna á Austurlandi, en
af því hlutust óhjákvæmilega
meiri eða minni tafir frá veiðum,
Framhaid á 4. síSn.
edu 2.533.575.000 krómtr.
Sá útgjaldaliður, sem mest lief-
ur aukizt á yfirstandandi ári, er
laun ríkisstarfsmanna. Heildar-
hækkun á því sviði mun nema um
225 milljónum króna, en af þeirri
upphæð eru 50 milljónir hjá stofn
unum, sem hækka tekjur, það sem
gjaldaaukningunni nemur. Bein út
gjöld ríkisins af þessum sökum
munu því nema um 175 milljónum
króna. Aðrar hækkanir, sem veru-
legu máli skipta. eru þessar:
Almannatryggingar 72,3 millj.
kr.; Kennslumál auk launahækk-
ana 27 millj. kr.; dómgæzla og
lögreglustjórn auk launahækkana
20 millj. kr.; framlög til lííeyr-
issjóða og uppbætur á lífeyri 15,5
millj. kr.; framlög vegna heilsu-
spillandi húsnæðis 14,4 mill. kr.;
og ríkisframfærsla sjúkra 8,6
millj. kr.
* Framlög til niðurgreiðslu á
vöruverði lækka um 37 millj. kr.
og niður fellur til Aflatrygginga-
sjóðs, vegna aflabrests togara, 15
milljónir króna.
í athugasemdum við frumvarpið
segir, að hinar miklu breytingar
á launakerfi ríkisstarfsmanna, sem
nú eru nýafstaðnar hafi torveld-
að mjög undirbúning fjárlaga-
frumvarpsins. Þar eð endanlegríí
flokkun var ekki að öllu lokið er
ganga varð frá frumvarpinu, vai’
horfið að því raði að áætla launa
liði í samræmi við bráðabirgða-
flokkun, er áður háfði verið gerð
Ennfremur segir í athugasemdí-
ii(.ium, að vegna þeiirra launa-
Framli. á 4. síðu
iM. ííí í » :
'Æ' | : %
lifcgÉpyi
að UNESCO
ÆTLUNIN er að íslend gerist
aðili að UNESCO, Menningarmála
stoínun Sameinuðu þjóðanna, að
því er fram kemur í fjárlagafrum-
varpi fyrir 1964. Er stofnframlag
58 þús. krónur, en árlegt tillag
335 þús.
UNESCO mun hafa verið sú
ein af meiri háttar stofnunum
Sþ, sem ísland hefur ekki verið
aðili að. Hefur stofnunin aðal-
; stöðvar sínar í mikilli nýbyggingu
1 í París, en íslendingar munu hafa
| komið þar sem áheyrnarfulltrúar
lá einstaka fundi.
p 1
■ ' '
★ ÁÆTLAÐ er, að sala
tóbaks og áfengis verði
lárið 1964 samtals yfiv
600 milljónir króna. Þar
af verður ágóði í rikis-
sjóð 400 milljónir.
★ PÓSTUR OG SÍMI cr
eitt mesta fyrirtæki lands
ins og mun velta um 314
milljónum næsta ár sam-
kvæmt fjárlögum. Launa
greiðslur eru taldar 136
milljónir.
★ FYRIR UTAN áfengis- og
tóbakseinksöluna er Rík-
isprentsmiðjan Guten-
berg eina fyrirtæki ríkis-
ins, sem veitir því ágóða,
að því er fram kcmur í
fjárlögum.
★ ALÞINGISKOSTNAÐUR
er áætlaður 17,5 milljón-
ir næsta ár 5 milljónum
hærri en í ár.
★ SKIPAÚTGERÐ RÍKIS-
INS verður rekin, með 15
milljóna halla árið 1964
að því er fjárlög áætla.
★ ÁÆTLAÐ er, að landhelg-
isgæzlan kosti 43,9 milij-
ótíýr, eai hafi sjálf 2,5
milljóna tekjur.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 15. okt. 1963