Alþýðublaðið - 15.10.1963, Blaðsíða 8
SÁLRÆNIR ERFIÐLEIKAR
HJÁ 15 AF HVERJUM 100
BÖRNUM í HEIMINUM
RANNSÓKNIR í mörgum Evrópu
löndum, þeirra á meðal Danmörku,
Finnlandi, Hollandi og Bretlandi,
sýna, að allt að 15 af hverjum 100
skólabörnum bera þess merki að
þau eiga við sálræna erfiðleika að
stríða á vissum skeiðum. Meðal
þessara erfiðleika eru árásarhvöt,
agaleysi, feimni og taugaspenna,
og þarfnast slík börn aðstoðar sér-
fróðra manna. Þetta kom fram á
ráðstefnu um skólann og heilbrigði
barna, sem Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin (WHO) gekkst nýlega
fyrir í Hollandi.
Á þessari ráðstefnu var einkum
fjallað um vaxandi ábyrgð heil-
brigðisyfirvalda í skólum á sál-
rænni og félagslegri þróun barn-
anna. Fyrsta atriðið sem taka verð-
ur tillit til, er fjölskylda barnsins.
Allar rannsóknir á börnum verða
að ná til fjölskylduaðstæðnanna.
Hjúkrunarkonur skólanna eru í
þessu sambandi bezt fallnar til að
heimsækja heimili barnanna og
halda sambandi við foreldrana,
meðan barnið er á skólaskyldu-
aldri.
í vissum skilningi er upp-
fræðsla foreldranna einnig hlut-
verk sem heilbrigðisyfirvöld í skól
um ættu að rækja. Þessi fræðslu
starfsemi ætti að hefjast jafn-
skjótt og barnið byrjar skóla-
göngu. Vellíðan og þroski barns-
ins ásamt frammistöðu þess í skól
anum hljóta að verða fyrir áhrif-
um frá foreldrum, sem eru óeðli-
lega metnaðargjöm eða sem rífast
að staðaldri, af sundruðum heim
ilum eða af „hálfri fjölskyldu”,
þar sem annað hvort faðirinn eða
móðirin er látin.
Skólinn verður líka að veita
barninu hollt og gott umhverfi.
Afstaða kennarans — sem stund-
um er ögrandi, stundum alltof
gagnrýninn — er mjög mikilvæg.
Oft er meðal barnanna keppnis-
andi, sem kennarinn ýtir undir.
Þetta getur verið skaðlegt. Þegar
á fyrstu árum barnaskólans eru
10 af hverium 100 börnum talin
vera „misheppnuð”.
Á ráðstefnu WHO voru sérfræð
ingar frá heilbrigðiseftirliti skól-
anna í 25 löndúm, m. a. fulltrúar
frá íslandi. Finnlandi, Danmörku,
Noregi og Svíþjóð.
ALLSHERJARÞINGIÐ
í ÚTVARPI
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa til-
kynnt að umræðum Allsherjar-
þingsins verði útvarpað yfir stutt-
bylgjustöðina WLWO. Sending-
arnar verða á frönsku og ensku
meðan Allsherjarþingið stendur
yfir.
MILLJÓNIR MANNA
í ÞRÓUNARLÖNDUNUM
ATVINNULAUSAR
ALÞ J ÓÐ A VINNUMÁLASTOFN-
UNIN (ILO) kvaddi saman ráð-
stefnu í Genf dagana 30. septem-
ber til 18. október um atvinnu-
leysi og afleiðingar þess í þróunar
löndunum, en þar eru horfur nú
slæmar. Samkvæmt nýútkominni
skýrslu um ástandið þar eru millj-
ónir ungra manna nú atvinnulaus-
ar og vonlausar um verkefni á
blómaskeiði ævi sinnar — og á
þetta ekki sízt við um lönd með
háa fæðingartölu og lága dánar-
tölu. ........
ILO-skýrslan, „Employment:
Objeetives and Policies”, fjallar
fyrst og frémst um ýmis alvarleg
vandamál í þróunarlöndunum.
— í Indlandi eru um 10 millj-
ónir manna algerlega atvinnulaus-
ar,- 15—18 milljónir að hálfu at-
vinnulausar og fjöldi manns sem
fæst við lítils nýt og óarðbær störf.
Af atvinnuleysingjunum eru 38 af
hundraði í sveitunum og 52 af
hundraði í bæjunum á aldrinum
18—26 ára.
— í Afríku yfirgefa duglegustu
og líkamlega færustu mennirnir
landbúnaðarstörfin og sækja um
launaðar stöður. til þess að þeir
geti greitt skatta og náð í neyzlu-
vörur. Þeta hefur ekki einungis í
för með sér atvinnuleysi í þéttbýl
inu, heldur einnig mikla erfiðleika
í landbúnaði og upplausn í hefð-
bundnum lífsvenjum sveitaþorp-
anna.
— Á stórum svæðum í rómönsku
Ameríku er til nægilegt ræktað
landrými til að auka atvinnuna og
afraksturinn í landbúnaðinum,
enda er brýn þörf á slíkri aukn-
ingu. En hin ójafna skipting á
jarðnæði eða samdráttur alls
bezta jarðnæðis á hendur fárra
manna hefur leitt til þess, að stór
hluti þeirra sem yrkja jörðina er
landlaus eða lifir á smáskikum,
sem eru illræktanlegir, meðán
stór svæði af góðu landi eru látin
óhreyfð. í þessum löndum er
spurningin um atvinnuleysi því ná
tengd spurningunni um jafnari
skiptingu jarðnæðis.
Ráðstefnuna í Genf sitja full-
trúar ríkisstjórna, vinnuveitenda
og launþega frá um 40 löndum.
Verkefni þeirra er að semja til-
lögur um alþjóðareglur, sem
ræddar verða á atvinnumálaráð-
stefnu ILO í júní 1964.
í skýrslunni er lögð áherzla á,
að geri menn sér ekki ljóst að
vandamálið er knýjandi og krefst
skjótra aðgerða, þá kunni svo að
fara að ekkert verði úr umbótum
eða þær verði máttlitlar, þegar
reynt verður að koma þeim á.
Þetta er ný gerð BMW. Þær verksmiðjur framleiða nú alls II gerðir bifreiða. BMW
800 hefur orðið mjög vinsæll bíll í Evrópu og er ekki fyrirhugað að gera neinar breyt-
ingar á honum á næsta ári. Hér sjáum við hins vegar BMW 1800. Hann er sérstaklega
gerður fyrir hraðan akstur, og er með fimm gíra gírkassa. Diskahemlar eru á framhjól-
dm. Vélin er fjögurra strokka 110 hesiafla og hámarkshraðinn gefinn upp fyrir 170 km.
'0. r.
e WŒiŒsWZ''- má
- -■"? 'av
Wjiffiim
^mm ÉÉÉKif
Haldið rúðunum hreinum um vefrarmánuðina
Ómögulegt er að vita með
vissu hversu mörgum árekstr-
um og slysum óhreinar rúður
hafa valdið. Nú, þegar vetur-
inn er í nánd, verður þetta
vandamál enn erfiðara viður-
eignar, en það er á sumrin.
Það er í rauninni sjálfsögð
og eðlileg regla, að temja sér
að hreinsa allar rúður vel og
halda þeim hreinum. Það er
því miður alls ekki óalgengt, að
sjá hér á götunum snemma á
vetrarmorgnum bíla, þar sem
aðeins hefur verið hreinsuð
önnur framrúðan, en allar aðr-
ar rúður þaktar snjó. Menn
ættu að gera sér það að ófrá-
vikjanlegrj reglu að aka ekki
af stað, ef snjór eða frostmóða
er á rúðunum, fyrr en búið er
að hreinsa þær.
Til eru handhægar sköfur til
að hreinsa snjó og frost, en
beita verður þeim þó með nokk
urri varkárni til að rispa ekki
glerið. Einnig skyldu menn
gæta sín, er þeir þurrka af
rúðunum með dulu, að gift-
ingarhringur eða signethringur
nái ekki að lispa glerið.
Nú orðið eru flestir bílar bún
ir það fullkomnum hitunar-
kerfum, að hægt er að veita
heitum loftstraum upp á fram-
rúðuna og koma þannig í veg
fyrir frosf og móðumyndun.
Sé heita loftið ekki nægjanlegt,
er nauðsynlegt að hafa glugga
opinn, svo loftrás sé góð.
Fyrir nokkrum árum var það
mjög algengt að sérstök raf-
magnshitunartæki væru fest
innan á rúðurnar á vetrum til
að hindra hrímmyndun. Þessir
rúðuhitarar tíðkast nú ekki
lengur að marki. Nú eru fáan-
legar litlar plastrúður með
lími á röndunum, sem eru iil-
valdar til að líma á afturrúð-
una og tryggja þannig gott út-
sýni.
Flestir bílar eru nú búnir
rúðusprautum, sem að sjálf-
sögðu eru til mikilla þæginda.
Sumir hafa á áfylligeyminum
fyrir sprauturnar sérstakan
vökya Eem ekki flrýs, aðrir
láta sé nægja vatn. Sé vatn
notað verður að gæta þess að
það frjósi ekki á vetrum. Al-
gengt er, að götin sem vat.nið
sprautast í gegnum stiflist, til
dæmis af bóni eða bara ryki.
Einfalt ráð til að opna þau á
ný er að stinga nál eða títu-
prjóni í þau. Rúðusprauturn-
ar eru nauðsynlegri hér en
víða anna)s staðár. Einkuni
vegna þess að nær allir vegir
hér eru malarvegir og vætutíð
algeng. Ef rúðusprautur eru
ekki fyrir hendi þýðir lítið að
setja vinnukonurnar í gang, ef
slettist úr forarpolli á famrúð-
una, nema rigning sé. Ef ekki
er rigning, og engar rúðuspraut
ur á bílnum, loka vinnukon-
urnar fyrir allt útsýni, og öku-
maður verður að stanza og fara
út og þurrka af rúðunum.
Væri í rauninni alls ekki úr
vegi, að gera það að skyldu hér
að allir bílar væru búnir rúðu-
. sprautum.
Annað vandamál er þegar
fitulag sezt á framrúðurnar.
Fitulagið á oftast orsök sína að
rekja til efna úr útblástri ann-
arra bíla. Of algengt er að sjá
hér dieselbíla, sem stendur
svartur mökkur aftur úr. Sé
ekið fyir aftan slíkan bíl,
myndast fljótlega hvimleitt
fitulag á rúðunum.
Flestum ber saman um að
venjulegt hreinsiefni megni lít
ið til að ná þessu fitulagi burt.
Heyrt hef ég, að kóka kóla sé
ágætt til að hreinsa það. Með
því að taka fulla flösku og
hrista hana, má auðveldlega
sprauta á alla rúðuna, og
þurrka hana svo með pappír,
sem lítið lím ér í, til dæmis
blaðapappír. Ekki skal ég á-
byrgjast hversu gott ráð þetta
er, en ýmsir hafa sagt mér að
það sé það eina sem dugi.
Ekill.
Vauxhall verksmiðjurnar sendu
nýjan bíl á markaðinn 27. sepem-
ber. sl. Þetta er fjögurra manna
bíll, og með framleiðslu og sölu
þe^sa bíl, taka vtatrksmiðjujrnar
þátt í hinni hörðu samkeppni bíla
íramleiðenda í framleiðslu smá-
bíla.
Þessum nýja bíl svipar um margt
til stærri Vauxhall-bílanna, hvað
útlit snertir. Þær gerðir eru Victor
5 manna bíll og Velox og Gesta,
sem eru 6 manna bílar. Þessar
gei ðir hafa vakið athygli hér, engu
síður en erlendis, fyrir fallegt út-
lit. Með framleiðslu þeirra hafa
þessar verksmiðjur náð glæsilcg-
um árangri í því að skapa þann
bíl, sem alla dreymir um að eign-
at. Sala á þessum bilum hefur
alls staðar verið mjög mikil.
Nýji 4 manna bíllinn ber Iieitið
Viva. Hann er með 50,1 ha. vél,
gíraskipting er í gólfi og eru allir
gírar gynWranisera'Ífr eða sam-
hvaða. Miðstöð, rúðusprauta o.s.
frv. er í bílnum.
Viva er einkar rúmgóður og með
stóríri fatíangursgeymslu. Vat-ns-
kæld vél er frammi í bílnum.
Sýningarbílar eru væntanlegir
hingað til lands í næsta mánuði.
8 15. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ