Alþýðublaðið - 15.10.1963, Blaðsíða 9
111111111111 ii mtiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiimmiiiiiiiiumiiiiiiiumium u iiiiiitiiiiiiiiiiiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiui 111111111111111111111111111111111111111111
Hann hefur 2,5 milljónir í
árstekjur og er einn af tekju-
hærri skemmtikröftum Breta.
Skattayfirvöldinn hirða 600 þús
und og umboðsmaðurinn rúm
350 þúsund og 121 þúsund fara
í ýmis útgjöld en samt á
hann eftir til eigin þarfa og
fjölskyldunnar nærri eina mill
ón.
Hann hefur sungið inná
meira en 30 hljómplötur og
flestar þeirra liafa seízt í um
og yfir hál'fri milljón eintaka,
sú bezta í 750 þúsund einlök-
um.
Hann er fyrrverandi atvinnu-
maður í rugby, en honum
fannst sú atvinna of áhættu-
söm líkamlega og snéri sér
því að söngnum, sem hann kveð
ur bæði áhættuminni og ábata-
samari atvinnugrein.
Hann er 23ja ára gamall
Breti og heitir Dick Jordan og
syngur nú á Hótel Sögu við
miklar vinsældir.
Dick Jordan kom mér fyrir
sjónir sem ósköp venjulegur
ungur maður, kannski dálítið
feiminn en viðmótshlýr. Hann
berst ekki á í klæðaburði og
er blátt áfram í umgengni og
þegar við erum seztir niður
yfir kaffibolla uppá 8. hæð á
Sögu dáist hann að útsýniuu og
því hvað loftið er hreint og
tært. Bretar eru kannski veik-
astir allra fyrir hreinu lofti
og þegar hann spyr mig hvort
honum yrði leyft að skreppa
aðeins út fyrir landsteinana og
veiða fisk á stöng, kemst ég að
þeirri niðurstöðu að Bretar séu
veikastir allra fyrir fiskiríi
uppí landssteinum. Ég segi
honum að einhver ráð ættu að
vera til að útvega honum bát.
— Hvernig stóð á því Dick,
að þú fórst að leggja leið þína
hingað til íslands?
— Mér hefur alltaf þótt gam
an að ferðast og þegar mér
býðst tækifæri til að sameina
milljónir
ferðalag og vinnu, tek ég því.
Ferðin hingað hefur líka þá
kosti, að ég þarf ekki að vinna
nema 4 kvöld í viku, þannig að
þetta verður kærkomin hvíld
og á frídögum erum við að
hugsa um að leigja okkur bíl
og skoða nágrennið, einkum
hverina.
— Ég hef ferðast um alla
V-Evrópu og ekemmt og til
gamans má geta þss, að ég er
annar atvinnusöngvarinn, sem
hefur verið fenginn til að
syngja á nautatssvæði. Það var
á Spáni auðvitað. Því var þann
ig hagað, að ég stóð aleinn úti
á blóðvellinum og söng — án
undirleiks. Ekki veit ég hvað
Spánverjarnir ætluðust fyrir
með svo frumlegri söngskemmt
un, nema þeir hafi stillt svo
til að nautin hafi heyrt til mín
og orðið því tilþrifameiri þeg-
ar á hólminn var komið. Hinn
söngvarinn, sem hefur komist
í þessa aðstöðu, var landi minti
Tommy Steel.
— Annars vinn ég mest við
útvarpið og á næturklúbbun-
uml Ég held að holiast sé að
sýna sig sem allra minnst á
sjónvarpi. Á því hefur mörg-
um góðum listamanni orðið
hált, fólk hefur orðið leitt á
þeim. Mín skoðun er sú að
bezt sé að koma ekki fram á
þeim vettvangi nema svona 3
— 4 sinnum á ári. Hinsvegur
sé ég um nokkra þætti í útvarp-
inu, syng inná hljómplötur fyr-
yr Columbía og Woolworths
keðjuverzlanahringinn og vinn
á næturklúbbum.
— Gefur Woolworths út
hljómplötur?
— Já, þannig er mál með
vexti, að þegar bandarísk plata
hlýtur vinsældir í Bretlandi,
lætur hrmgurinn stæla Útsetn-
inguna nákvæmlega og svo er
ég fenginn til að syngja lagið.
Þessar plötur eru svo seldar í
verzlunum hringsins um allt
Bretland fyrir talsvert lægra
verð en bandarísku plöturnar
kosta í hljómplötubúðum. Það
eru unglingar sem kaupa. mest
af þessum plötum og þá munar
flesta um tvo shillinga. Þetta
gengur sem sagt ágætlega og
plöturnar renna út. Ein þeirra
seldist meira að segja í 750
þúsund eintökum, það var lag-
ið „Here comes summer“. Lag-
ið ,,Stop the music“ gerði ég
fyrir Columbía og að því er ég
bezt veit er það nú í 11. sæt-
inu á vinsældalistanum og á
uppleið.
— Þér þætti kannski garnan
að heyra um skemmtilegt at-
vik, sem kom fyrir mig á næt-
urklúbb í London. Ég átti að
koma þar fram og á efnis-
skránni hjá mér var lagið „All
of me“ en útsetningin var ná-
kvæmlega eins og á plótu
Franks Sinatra. Rétt áður en
ég átt; að byrja kíkti fram-
kvæmdastjórinn minn fram á
milli tjaldanna og tilkynnti
mér með skjálfandi röddu að
Dean Martin og Peter Law-
ford væru að ganga inn í sal-
inn. „Nú ég held að það sé í
lagi, fyrst Frank Sinatra er
ekki með þeim,“ svaraði ég, en
þá tók hann viðbragð svaraði
því til að oft kæmi góður þeg-
ar getið er. Nú var íjaldinu
lyft frá og vitj menn: Þessir
Framhald á 13. síðu
Karlmannaföt
míkið úrval
Saumum eftir máli
fyrir 300 kr. auka-
gjald. rným t yp
50 t lllll 1
mismunandi efni til § t
að velja úr. Dökk spari
fataefni, nýkomin. —
Ensk, íslenzk og þýzk.
20 I i
mismunandi sniff til að
velja úr. — ■
llltima 0
kjörgarði 'lSMM ; H
Nýkotnið
Skólapeysur
úrval 1 •
Vatteraðar úlpur
stærðir 2 — 10 ára
Viðgerðir á Austin
bifreiðum
Ef þér þurfið að láta gera við Austin-bifreið^
þá bjóðum við yður þjónustu okkar.
Höfum sérstaklega kynnt okkur viðgerðir á
Austin Gipsy.
AUSTIN-VERKSTÆÐIÐ
Súðavog 30 — Sími 37195.
Atvinna
Konur og karla vantar nú þegar til iðnaðar-
starfa. — Upplýsingar í verksmiðjunni, Þver-
holti 17.
Vinnufatagerð íslands h.f.
ti/ilfililliliiiiiiiiriiiiiiiiitliriiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiMiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiliiíiiiiiÉllYritlliiliiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiii*iiim'‘'*
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 15. okt. 1963 «$