Alþýðublaðið - 19.11.1963, Blaðsíða 11
KÖRFUKNATTLEIKSMÓT REYKJAVÍKUR:
IR og KR höfbu
yfirburði í mfl.
MEISTARAMÓT Reykjavíkur í
körfuknattleik hófst að Háloga-
laudi á laugardagskvöld, en þau
félög borgarinnar, sem leggja
stund á körfuknattleik eiga lið í
mótinu.
Félögin eru, íþróttafélag Rvíkur,
Glímufél. Ármann, Knattspyrnu-
félag Rvíkur og Körfuknattleiks-
Télag Reykjavíkur.
★ YFIRBURÐIR.
f meistaraflokki karla fóru
fram tveir leikir á sunnudagskvöld,
KR gjörsigraði KRF með 106 stig-
um gegn 59 og ÍR Ármann með 75
stigum gegn 43. Eftir þessum úr-
slitum að dæma virðist augljóst,
að baráttan um Reykjavíkurmeist-
aratitilinn muni standa milli KR
og ÍR, en bæði liðin eiga mjög
góðum liðum á að skipa.
★ EFNILEGT LIÐ KR-INGA.
KR-ingar höfðu yfirburði gegn
KFR frá upphafi, liðið er skipað
ungum vaxandi leikmönnvun, sem
taka íþrótt sína alvarlega og fé-
lagið þarf sannarlega ekki að kvíða
framtíðinni, hvað varðar körfu-
knattleikinn. Mesta athygli vakti
Gunnar Gunnarsson, sem skoraði
hvorki meira né minna en 42 stig
í leiknum. Einnig sýndi Kölbeinn
Pálsson frábæran leik, þó ekki skor
aði hann eins mörg stig og félagi
hans. KR-liðið leikur hratt og
skemmtilega, en það sem helzt
stendur liðinu fyrir þrifum er, að
leikmennirnir eru ekki nægilega
hávaxnir.
Kolbeinn Pálsson, KR.
★ LÉLEGT KFR-LIÐ.
Hið ágæta félag, KFR, er ekki
vel á vegi statt, sömu mennirnir
hafa leikið í meistaraflokki félags-
ins ár eftir ár og engir yngri menn
fyllt í skörðin. Þetta er mjög al-
varlegt fyrir félagið og reyndar
körfuknattleikinn í heild, því fé-
lögin mega vart færri vera, til þess
að hægt sé að halda mót. Við
skulum vona, að úr rætist og stjórn
félagsins fari að hugsa meira um
yngri flokkana.
★ STERKIR ÍR-INGAR.
Búizt var við, að leikur ÍR og
Ármanns yrði jafnari, en það fór
á annan veg. Ármenningar héldu
í við ÍR-inga framan af, en undir
lokin tóku ÍR leikinn í sínar hend-
ur og hafði yfirburði. Það veikti
að sjálfsögðu lið Ármanns, að þá
vantaði hinn snjalla leikmann —
Birgi Ö. Birgis, sem meiddist á æf-
ingu nýlega. Þorsteinn Hallgríms-
son og Agnar Friðriksson áttu
góðan leik og hinir yngri leikmenn
ÍR-liðsins, sem nú eru farnir að
leika með meistaraflokki, — falla*
mjög vel hin í liðið.
Nokkrir leikir voru háðir í
yngri flokkunum og urðu úrslit
þeirra sem hér segir: í 3. flokki
vann ÍR KR með 46 gegn 8. Ár-
mann vann KFR með 31 gegn 25
og KR ÍR (B) með 21 gegn 15.
Loks gjörsigraði IR Ármann í 2.
flokki karla með 80 gegn 17.
Gunnar Gunnarssou, KR, skorar í leiknum gegn KFR.
Teka íslenzkir
körfuknattleiks-
menn þátt í undan-
keppni OL?
ÁRSÞING Körfuknattleikssam-
bands íslands fór fram á sunnu-
daginn í KR-heimilinu við Kapla-
skjólsveg. Bogi Þorsteinsson, for-
maður sambandsins setti þingið
og flutti skýrslu stjórnar, en hún
sýndi mjög umfangsmikið starf
KKÍ sl. starfsár.
Bogi Þorsteinsson var endur-
kjörinn foi-maður sambandsins,
en með honum í stjórn voru kjörn-
ir: Magnús Björnsson, Einar Ól-
afsson, Gunnar Ásgeirsson, Gunn-
ar Petersen, Halldór Sigurðsson
, og Ingi Þór Steíánsson. í vara-
stjórn eru Þorsteinn Hallgríms-
i son og Axel Þórarinsson, Borgar-
nesi.
Af þeim málum, sem rædd voru
á þinginu, má m. a. nefna hugs-
anlega þátttöku körfuknattleiks-
manna í undankeppni Olympíu-
leikanna, sem fram fer í Genf
í maí næstkomandi. Þetta mun
ekki ákveðið endanlega, en mikl-
ar líkur til að úr verði. Svisslend-
ingar lögðu t. d. það mikla á-
herzlu á að fá keppni þessa, að
þeir buðust til að greiða hluta
af terðakostnaði þátttökuliðanna.
Bíður stjórn KKÍ nú eftir nánari
upplýsingum um mál þetta.
Hólmsteinn leikur sig frían og skorar mark fyrir ÍR.
Enska knattspyrnan:
Þrjú efstu liðin
töpuðu um helgina
Á laugardag var leikin 1. um-
ferð í ensku bikarkeppninni og
taka þátt í 1. og 2. umferð, þriðju
og fjórðu deildar ásamt 32 utan-
deildarliðum.
Það þykir alltaf viðburður, þeg-
ar utandeildarliðin sigra deildar-
liðin og eru þegar sjö þeirra kom-
in í gegn þar á meðal Wimbledon
bikarmeistarar áhugamanna í vor
og einnig hið fræga „gigantkiller”
líð, Yeovild, en þeir sigruðu 3.
deildarliðið Sarthend með 1:0.
í 1. deild skeðu þau undur, að
þrjú efstu liðin í deildinni töpuðu
öll og það fyrir liðum neðarlega í
deildinni.
Manch. Utd. fékk eftirminnilega
rassskellingu hjá Aston Villa, en
geta má þess að Law var rekinn af
leikvelli er 30 min. voru liðnar af
leik.
Charlton, sem leikið hafði 13
leiki án taps í 2. deild hlaut nú
ósigur fyrir Portsmouth, en með
þeim leikur enn hinn gamli lands-
liðsmaður Dickinson. Þetta var
700. leikur hans með Portsmouth,
cn með þeim klúbb hefur hann leik
ið alla sína tíð.
1. deild:
Aston Villa 4 — Manch. Utd. 0
Blackburn 3 — Birmingham 0
Blackpool 1 — W. Bromwich 0
Chélsea 3 — Arsenal 1
Liverpool 2 — Fulham 0
Notth. For. 2 — Everton 2
Sheff. Utd. 0 — Bolton 1
Stoke 4 — Sheff. ★ed. 4
Tottenham 3 — Burnley 2
I West Ham 2 — Leicester 2
Wolves 2 — Ipswich 1
Sheff. Utd 18 9 6 3 34-22 24
Liverpool 17 11 1 5 34-19 23
Tottenham 17 10 3 4 50-33 23
Blackburn 19 9 5 5 41-26 23
Arsenal 19 10 3 6 50-41 23
Manch. U. 18 9 4 5 36-23 22
Everton 17 9 3 5 33-27 21
Burnley 19 8 5 6 30-27 21
Notth. For. 18 8 4 6 27-22 20
Sheff. Wed. 18 8 4 6 34-29 20
Framh. á 10. síðu
Mótiafréttir
■i stuttu.
Kaupmannahöfn, 17. nóv.
NTB-RT.
Esbjerg varð danskur
meistari í knattspyrnu
1963, hlaut alls 33 stig. —
Odense varð nr. 2 með 25
stig og B 1903 nr. 3 með
sama stigaf jölda.
Köge og OB féllu niður í
II. deild, en Fram og B 93
leika í I. deild næsta keppn-
istímabil.
SundSvall, 17. nóv.
NTB-RT.
B-lið Svía sigraði Finn-
land í handknattleik á
sunnudag með 23-21.
MMHVHVMtWHMMHMtMM
mikla
karla
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 19. nóv. 1963