Alþýðublaðið - 20.11.1963, Page 8

Alþýðublaðið - 20.11.1963, Page 8
 Wmmmm ! í‘ 3 20. nóv. '1963 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Húsmæðraskólinn á Akureyri. Gagnfræöaskólinn á Akureyri. Við Geislagötu 5 ó Akureyri stendur stórt hús, sem Kristján Kristjánsson, forstjóri reisti fyrir nokkrum árum, en seldi Búnaðar- banka íslands fyrir skömmu. _____ Margar verzlanir og skrifstofur hafa fengið þar inni, og verður ekki fjölyrt um það. En ein stofn- un er þar til húsa um þessar mund ir, sem mörgum er eflaust for- vitni á að heyra eitthvað um og orðið gæti síðar vísir að öðru meira. Það er undirbúningsdeild tækniskóla, en hún tók til starfa á Akureyri í fyrsta sinn í haust. Skólastjóri Iðnskólans á Akureyri, •Tón Sigurgeirsson, veitir henni forstöðu, enda málin skyld. Eftir örfá ár eignast iðnskólinn senni- Iega eigið húsnæði í bænum, og ætti þá aðstaða hans að batna að sama skapi. Fyrir nokkrum dögum átti blaðamaður Alþýðu- blaðsins viðtal við Jón Sigurgeirs- son, skólastjóra, um iðnskólann og tæknideildina, og fer það hér á eftir í stórum dráttum. — Hve gamall er Iðnskóli Ak- ureyrar, Jón? — Ilann er 58 ára, stofnaður 1905, en allt starf hans var í djúpum öldudal upp úr fyrri heimsstyrjöldinni, og var þá mjög dauft. yfír skóianum. Sá, sem blés nýju lifi í skólann eftir það tíma- bil, var Sveinbjcrn Jónsson, bygg- ingameistari, þá nýkominn frá námi í Noi-egi. Sá, sem mest og lengst hefur starfað við skólann, er Jóhann Frímann, — að heita má óslitið frá 1927-1955, þegar ég tók við. Sveinbjörn byggði auk annars skólahúsið við Lundar- götu, þar sem skólinn starfaði frá því laust fyrir 1930 til 1943, er gagnfræðaskólahúsið var byggt. Þá lögðu iðnaðarmenn fram fjár- unnhæð til byggingar Gagnfræða- skóla Akureyrar í því skyni, að iðn skólinn fengi þar inni. Síðan hafa þessir tveir skólar verið í mjög nánum tengslum, bæði um hús- næði og kennara. — Hvar er skólinn nú til húsa? — Hann er nú að nokkru leyti í Húsmæðraskóla Akureyrar, — þriðji og fjórði bekkur, en fvrsti og annar bekkur í gagnfræðaskóla húsinu. Auk þess er rafvirkja- deild starfrækt í Samkomuhús- inu, og í Oddeyrarskólanum er skipasmiðum kennd iðnteikning. Síðastliðin 3 ár hafa verið starf- ræktir enskunámsflokkar við skól- ann og iðnaðarmenn yfirleitt látn- ir sitja fyrir. Aðaláherzlan er lögð á talkennslu. Sú kennsla fer í vetur fram í Geislagötu 5. Þá má geta um vísi að verklegu námi á þessu yfirstandandi ári, þar sem fenginn var kennari frá Reykja- vík, Steinn Guðmundsson, til að kenna iðnnemum hér logsuðu og rafsuðu. Einnig hafa á síðustu árum verið haldin hér námskeið fyrir bifvélavirkja og kennd með- ferð og uppsetning olíukynding- artækja. Gert er ráð fyrir, að slík námskeið verði haldin öðru hverju. — Er mikill áhugi á verk- legri kennslu? — Já, nú ríkir áhugi fyrir auk- inni verklegri kennslu við iðn- skólann. í Réykjavík mun verk- leg kennsla fara fram a.m.k. í sex iðngreinum. Auk rafvírkja- deildar er mikill áhugi á vísi að járniðnaðá.rdeild, þar sem komá mætti fyrir forskóla járniðháðar- . manna auk námskeiða fyrir bif- vélavirkja, log- og rafsuðumenn o.s.frv. Járniðnaðarmenn á Akur- eyri hafa mikinn áhuga á samstarfi við skólann. Enn liggur ekki fyr- ir nein fjárveiting til þessarar starfsemi, og húsnæði er ekki fengið, en margir óska þess ein- dregiff að þetta geti komizt á. — Fer aðsókn að iðnskólanum vaxandi eða minnkandi? TEXJI- HJÖRTUR PÁLSSON — Aðsókn að skólanum fer ört vaxandi, þannig, að á þremur ár- um hefur nemendum fjölgað úr 90—100 upp í 140-150. — Hvemig er kennslunni hátt- að. Fer hún fram kvölds eða morgna, og hvemig er tíma iðn- nema skipt milli náms og vinnu? — Aðalkennslan í iðnskólanum fer fram frá kl. 1 e. h. til kl. 8 á kvöldin 5 daga vikunnar. Iðn- nemar eiga að stunda bóklegt nám tvo mánuði (hver bekkur) og teikningar tvo mánuði að meðal- tali auk prófa, en verklega nám- ið, sem x flestum greinum er fjög- ur ár, stunda nemendur ennþá hjá meistara sínum þar fyrir ut- an. — Hve margir kenna við skól- ann? — Þar hafa undanfarið starf- að 10-12 kennarar auk skóla- sljóra. — Á ekki að fara að reisa sérstakt hús fyrir skólann? — Jú, teikningar af nýju iðn- skólahúsi eru senn fullgerðar og komið að því að gera sérteikn- ingar. Skólalóðin er við Þómnn- arstræti norðan Húsmæðraskól- ans, en vestan sundlaugarinnar. Þar er gert ráð fyrir nokkm hús rými til verklegrar kennslu, og verður það mikill munur auk alls annars. Þar koma til greina tré- smíðadeild, rafvirkjadeild og járnsmíðadeild. Jón Geir Ágústs- son, byggingafulltrúi Akureyrar- bæjar. hefur teiknað húsið í ná- inni samvinnu við húsameistara ríkisins. Það er von okkar, að húsið eða einhver hluti þess verði fullbúinn til notkunar eftir 3-4 ár. —■ Á að breyta skólanum sjálf- um að einhverju leyti, þegar tek- ið verður að nota nýja húsið? — Eins og áður er komið fram, er einkum gert ráð fyrir aukinni, verkle^ri kennslu, þegar aðstað- an batnar með tilkomu nýja húss- ins. Reyndin hefur orðið sú á Norðurlöndunum og víðar, að skólamir hafa að talsverðu leyti tekið að sér kénnslu meistarans, og . síðustu áriri h.efur- þrórinúv’ einnig hnisið í þá átt í Iðnskólan- um í Reykjavík. Er ekki tekin til starfa tækni deild hér í bænum? — Undii-búnirigsdeild að tækni- skóla tók. til ' starfa á Akureyri 1. október í haust — í fyrsta sinii samkvæmt heimildarlögum frá síðasta Alþingi. Kennt er það sama og við sams konar deild, sem starfrækt er í Reykjavík. — Þær greinar eru algebra, almenn- ur re:kningui’, geometria, trigo- nometria. eðlisfræði, efnafræði, íslenzka. danska, enska og þýzka — alls 42 stundir á viku. Ríkust áherzla er lögð á stærðfræðina. Kennt er frá kl. 8 f. h. til kl. 3 e. h. í Geislagötu 5, efstu hæð (i Lesstofu iðnaðarmanna). — Wvað um kennara og nem- endafjölda? — AMs skráðust í deildina 15 nemendnr. Kennarar eru Aðal- geir Pálsson, rafmagnsverkfræð- ingur, Aðalsteinn Jónsson, efna- verkfræðingur. Skúli Magnússon, gagnfræðaskólakennari og Jón Sigurgeirsson. — Hvaða réttindi veitir deild- in? — Gert er ráð fyrir, að próf verði háð í lok apríl og prófverk- efni samræmd dönskum og norsk- um kröfum tækniskóla. Próf upp úr deiidinni veitir réttindi til náms í dönskum. norskum og ís- lenzkum tækniskólum. — Hvað er að segja um áfram- haldandi starfi-ækslu undirbúnings deildarinnar hér á Akuréyri og stofnun tækniskóla? — Undirbúningsdeildin er ekki búin að stai’fa nema rúman mánuð, og það er erfitt á þessu stigi að svara ákveðið til xun það. Mest veltur á því, hvort við höf- um efni á því að veita nægilegt fé til uppbyggingar tæknináms og starfrækslu tækniskóla eða ekki, en ýmsar nágrannaþjóðir, eins og t. d. Norðmenn, hafa á síðustu áx-um gert sér ljósa grein fyrir þvðingu þess og veitt feikna fé til iðnfi-æðslu og tækniskóla. Nú hafa Bretar einnig ákveðið að stórauka fjárveitingu til æðri skóla og tækniskóla. í öðrum enda kennslustofunnar í Geislagötu 5 eru bókahillur, og þegar ég spurði Jón, hvaða bæk- ur þetta væru, sagði hann: — Það verður senn opnuð hér Lesstofa iðnaðarmanna. Bókasafn- ið er ekki mikið að vöxtum enn, en fyrsti vísirinn er gjöf Iðnað- armannafélags Akureyrar eða bókasafn þess. Ætlunin er að gefa iðnaðai’mönnum kost á því að koma hingað þrisvar til fjór- um sinnum í vikp til að kynna sér nýjar og gamlar handbækur, tímarit. bæklinga og önnur fræðslurit, auk þess sem gert er ráð fyrir, að sýndar verði kvik- myndir og skuggamyndir og flutt fræðsluerindi annað slagið, þegar fram í sækir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.