Verkamaðurinn - 15.06.1946, Side 1
FRÁ STJÓRNMÁLAFUNDINUM:
Alþýðan fylkir sér um uppbyggingar-
stefnu Sósíalisfaflokksins
en fordæmir niðurrifs- og hrunstefnu Þorsteins M. og
Framsóknarflokksins. Bindindisaldan brotnaði á Bern-
liarð Stefánssyni. Sig. Hlíðar mistókst að verja framferði
heildsala- og landsalaklíkunnar í Sjálfstæðisflokknum
Frambjóðandi kratanna, Steindór Steindórsson, logaði
eins og naðra
Einar Olgeirsson, alþm. og form.
Sósíalistaflokksins, hefir að nndan-
förnu ferðast um Vestur- og Norð-
urland og haldið stjórnmálafundi í
flestum þorpum og kaupstöðum.
Síðastliðinn þriðjudag boðaði
hann til stjórnmálafundar liér í
hænum í Samkomuhúsinu. Öðrum
flokkum var boðin þátttaka nreð
jöfnum ræðutíma, og þáu þeir það.
Aðsókn var mikil og húsið orðið
troðfullt þegar l’undur skyldi hefjr
ast.
F.inar Olgeirsson rakti i fram-
söguræðu sinni, hvernig Sósíalista-
flokkurinn fékk því komið til leið-
ar, að Sjálfstæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn, eða meirihluti
þeirra, tækju þátt í að mynda þing-
ræðisstjórn 1944, sem hafði róttæk-
ari og víðtækari stefnuskrá, hvað
snerti atvinnulífið í landinu, en
nokkur íslenzk ríkisstjórn hefir sett
sér. Hann rakti síðan gang málanna
á þingi og í ríkisstjórn og sýndi
fram á, að stjórnin hefði þegar á
þessu H/2 ári framkvæmt meiri
byltingu í atvinnulífinu, en hingað
til hefir þekkst hérlendis. Fiski-
skipaflotinn margfaldast, þegaí öll
þau skip, sem ríkisstjórnin hefir
heypt eða samið ttm smíði á, eru
komin til landsins, flutningaskipa-
flotinn tvöfaldast. Tvær nýjar, stór-
virkar síldarversmiðjur taka til
starfa á þessu sumri og afköst hinna
eldri hafa verið stór-aukin. Nýir
markaðir hafa verið unnir í mörg-
um löndum meginlandsins fyrir af-
urðir okkar, svo að nú er tryggt að
við getum selt allar útflutningsvör-
ur okkar það góðu verði, að kaup-
gjald í landinu þarf ekki að lækka,
heldur má það og mun hækka til
stórra muna. Einar lýsti því, hvern-
ig stór hluti Sjálfstæðisflokksins og
afturhaldsklíka Alþýðufl. hafa
fjandskapast við öllum þessum
framkvæmdum og það, að þessir
flokkar styðja og stilla örgustu
fjandmönnum nýsköpunarinnar í
tiltölulega örugg sæti við þessar
kosningar, er Ijósasta sönnunin fyr-
ir því, að nýsköpunin og viðreisnin
er þessum flokkum ekki það hjart-
ans mál, sem þeir vilja vera láta.
Glæsileiki Einars Olgeirssonar,
bæði hvað snerti flutning og með-
ferð mála, hreif áheyrendur þannig,
að engum ræðumanninum var fagn-
að jafn mikið.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn töluðu
þeir Sig. Hlíðar og Magnús Jéms-
son, hinn nýji ritstjóri íslendings.
Sig. Hlíðar eyddi mesturn tíma í
alls konar glamur, sem' ekkert kom
málunum við. Ræða hans öll var
veigalítil, en þó tók út yfir, þegar
hann hugðist verja gerðir heildsal-
anna og fjandskap þeirra í garð
allra framfara og framkvæmda í
landinu. Magnús Jónsson gerði sig
dálítið merkilegan, byrjaði að tala
um Rússa, en liætti því fljótlega,
þegar hann heyrði að fundarmenn
gerðu ekki annað með það, en
hlæja að því. Hann ætlaði einnig að
gylla Sjálfstæðisflokkinn með af-
stöðu hans til herstöðvamálsins, en
sagði þó að lokum, þegar honum
var bent á landráðaskrif ,,Vísis“, að
„Sjálfstæðis-æskan" væri a. m. k. á
móti leigunni til Bandaríkjanna!
Fyrir Framsókn töluðu þeir Þor-
steinn M. Jónsson og Bernharð
Stefánsson. Höfðu þeir lítið að
segja, nema endurtaka tugguna um
krekkur og hrun. — Þorsteinn M.
hugðist slá um sig með templara-
nafninu og kenndi nriv. ríkisstjórn
um alla áfengisneyzlu í landinu,
eins og aldrei lrefði verið drukkið á
íslandi fyrr. Sagði hann sig og
Framsóknarmenn vera vænlegasta
til að þurrka vínbúðirnar og taka
fyrir drykkjuskapinn. Ekki höfðu
fundarmenn trú á þessu meðali, en
Eramhald 2. síðu).
FULLTRÚARÁÐ
VERKLÝÐSFFXAGANNA
Vegna tilmæla frá undirbúnings-
nefnd hátíðahaldanna 17. júní n.
k., skorar fulltrúaráð verkalýðsfé-
laganna á öll stéttafélög í hænum
að fjölmenna í skrúðgönguna þann
dag kl. 1 e. h.
STJÓRNIN.
Almannatryggingarnar enn
Alþýðufl. samdi við Sjálfstæðisfl. um að felía niður fast-
an lifeyri til ekkna og einstæðra mæðra - í staðinn féll
Sjálfstæðisfl. frá kröfu sinni um nýjan forstjóra við
Tryggingarstofnunina og vildi gefa Haraldi sjálfdæmi
um val starfsliðs stofnunarinnar út um alt land
„Alþýðum.“ frá 12. þ. m. kallar
greinar þær, sem eg hefi skrifað í
„Verkam.“ um almanantrygging-
arnar „lygasöguna um Alþýðu-
flokkinn“ — og á þessi „lygasaga"
að vera sögð í þeirn tilgangi „að
draga úr þeirri smán“, sem eg og
flokkur minn hafi hlotið fyrir af-
skifti af tryggingamálunum.
Eins og efni standa til, hefir „Al-
þýðum.“ engin nothæf sönnunar-
gögn fyrir máli sínu — heldur gríp-
ur til þess að prenta 1 ANNAÐ
SINN raunverulega lygasögu upp
úr Morgunblaðinu, sem eg á sín-
um tírna hrakti, í Þjóðviljanum, lið
fyrir lið, og hefir ekki þótt nothæf
á Morgunblaðsheimilinu síðan.
Nú vil eg skora á „Alþýðum.“ að
tilgreina nákvæmlega hverju eg
þafi logið, í sambandi við þetta
mál, hvort heldur hann getur fund-
ið það í útvarpsræðu minni frá í
vor eða í „Verkam.“-greinunum.
Mun eg þá gefa honum tækifæri til
að sanna mál sitt, svo að mark verði
á tekið.
Treysti „Alþýðum.“ sér ekki til
að taka áskorun þessari, verður það
ekki skilið á annan veg, en að lyg-
arnar séu á hans hlið, en ekki
mína.
Til þess að gera „Alþm.“ auð-
veldara fyrir, skal eg þegar leggja
fyrir hann ákveðnar spurningar um
þau atriði, sem einkum skifta máli
í j)essu sambandi:
1. Er það lýgi, að í frumv. um
almannatryggingar hafi verið
ákvæði um fastan lífeyri til ekkna,
og heimild til að láta það ákvæði
einnig ná til einslæðra rnæðra?
2. Er Jtað lýgi, að við umræður
tuálsins í heilbrigðis- og félagsmála-
nefnd efri deidar, hafi fulltrúi Sjálf-
stæðisfl., Gísli Jónsson, lagt á það
mikla áherzlu, sem eitt af skilyrðum
Sjál fstæðisf 1. fyrir framgangi frum-
varpsins, að Sjálfstæðisfl. fengi nýj-
an forstjóra fyrir stofnuninni, ásamt
Haraldi Guðmundssyni?
.4. Er það lýgi, að Haraldur Guð-
mundsson, sem formaður heilbrigð-
is- og félagsmálanefndar, feldi nið-
ur fundi í nefndinni, um háls mán-
aðar skeið — þegar mjög var liðið
á ])ing og flýta þurfti afgreiðslu
málsins — og notaði þann tíina til
samninga við Sjálfstæðisfl. unt
málið?
4. Er Jrað lýgi, að á fyrsta fundi
nefndarinnar, eftir þetta hálfs mán-
aðar hlé, lýsti Haraldur Guðmunds-
son því yfir, að samkomulag væri á
komið, milli Alþýðufl. og Sjálfstæð-
isfl., um að lækka útgjöld til trygg-
inganna um 4 milj. króna — og til
þess að ná Jreim sparnaði væri m. a.
feldur niður lífeyrir til ekkna og
einstæðra mæðra?
Jafnframt lýsti Haraldur því
samkomulagi þessara flokka, að
fresta til 3. umræðu ágreiningsefn-
inu um „valdakafla" frumv.
5. Er það lýgi, að við undirbún-
ing og framkvæmd þeirrar 3. um-
ræðu EÉLL SJÁLFSTÆÐISEL.
FRÁ KRÖEU SINNI UM NÝJAN
(Framhald á 4. síðu).
Kappskák bílstjóra
í fyrradag komu hingað með
flugvél 8 menn frá bílstjórafélaginu
„Hreyfli" í Reykjavík, og þreyttu
þeir kappskák við jafnmarga menn
frá Bílstjórafélagi Akureyrar utn
kvöldið. Orslit urðu þau, að Reyk-
víkingar unnu á 4 borðum og Ak-
ureyringar á 4. — Reykvíkingarnir
færðu Bílstjórafélagi Akureyrar
merka skákbók að gjöf. Þeir flugu
aftur suður um kvöldið. Akur-
eyrsku bílstjórarnir, sem unnu,
voru þessir: Ragnar Skjóldal, Haf-
steinn Halldórsson, Unnsteinn Stef-
ánsson og Guðm. Jónsson.
Frá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa h. f.
Eramhaldsstofnfundur Utgerðar-
félags Akureyringa h.f. var haldinn
laugardaginn 8. þ .m. Eins og kunn-
ugt er var félag Jretta stofnað í
fyrravetur ög ]);t leitað eftir hlutafé
frá bæjarbúum með það fyrir aug-
um að festa kaup í fiskibátum, sem
gerðir væru út héð'an.
í vetur ákvað svo félagið að
kaupa annan þeirra togara, sem
koma eiga til bæjarins. — Bráðlega
mun félagið innkalla hið lofaða
hlutafé og eru þeir, sem skrifuðu
sig fyrir hlutum beðnir að bregðast
fljótt og vel við þegar auglýst verð-
ur um innköllun fjárins.
í stjórn félagsins voru kosnir:
Steinn Steinsen, Tryggvi Helgason,
fakob Erímannsson, Guðm. Guð-
mundsson og Albert Sölvason.