Verkamaðurinn - 15.06.1946, Qupperneq 6
6
VERKAMAÐURINN
17. júní
Alþýðan sýnir það með einhuga og samfylkingu þennan
I
mesta hátíðisdag ársins, að hún er staðráðin í að vernda
frelsi og fullveldi þjóarinar, þótt fulltrúum hennar sé
vamað máls
17. júní er á mánudaginn kem-
ur. Þá eru tvö ár liðin síðan hér var
stofnað LÝÐVELDI. Þjóðin öll er
minnug þess, hvern feng hún fékk
þá í hendur og hvern vanda hún
tók á sig með því að ísland var við-
urkennt fullvalda ríki. Um lýðveld-
isstofnunina stóð þjóðin svo til
einhuga og aldrei fyrr hefir tekist
að þjappa henni eins saman á ör-
lagastund. Enginn íslendingur ef-
ast um, að sporið, sem stigið var 17.
júní 1944, var heillaspor og sjálf-
stæðið er þjóðinni og þegnunum
fyrir öllu. Það sýndi þátttakan í há-
tíðahöldunum 17. júní í fyrra, á árs-
afmæli lýðveldisins.
Við 17. júní er líka
bundin minning um hinn bezta og
ötulasta foringja sem ísland hefrr
alið. Skilningurinn á starfi Jóns
Sigurðssonar er skilningur á frels-
inu og virðing fyrir sjálfstæði lands-
ins.
Hér í bæ er efnt til fjölbreyttra
hátíðahalda 17. júní og er dagskrá
þeirra birt á öðrurn stað í blaðinu.
Þau hátíðahöld verða áreiðanlega
vel sótt og alveg sérstaklega mun
allur almenningur fylkja 'sér undir
fána sinn — fána íslands — í skrúð-
göngunni um bæinn.
En því er ekki að leyna, að svart-
an skugga ber á fögnuð þjóðarinn-
ar þennan dag, en það er hin glæp-
samlega afstaða fáeinna valda- og
auðmanna til herstöðvabeiðni
Bandaríkjanna.
Það var vilji þjóðarinnar, að hinn
17. júní í ár væri þessum fáu
ólánsmönnum sýnt það á eftir-
minnilegan hátt, að íslendingar
ætla ekki að selja ísland. En nú hef-
ir tekist þannig til að landsölu-
mennirnir hafa getað haft þau áhrif
við undirbúning hátíðahaldanna,
að fulltrúum alþýðunnar er þar
varnað máls. Fulltrúaráð verklýðs-
félaganna í Reykjavík fór fram á,
þegar því var boðið að hvetja verk-
lýðsfélögin til þátttöku, að fulltrúi
frá verkalýðssamtökunum yrði með-
al ræðumanna dagsins, en þeim til-
mælum var neitað, á þeim undar-
legu forsendum, að ekki mætti tala
um herstöðvamálið.
Þannig eru þau fjöldasamtök,
sem bezt og harðast hafa barist
gegn afsali landréttinda, útilokuð
frá því að túlka sjálfstæðismálið út
frá vilja verkalýðsins og um leið
allra íslendinga, þjóðhátíðardaginn
17. júní.
trúi því sem blað yðar er að fullyrða
um fylgisleysi mitt og Sósíalista-
flokksins, þegar það sér hve miklu
af hinu „dýrmæta“ rúmi blaðsins er
varið til að rægja og ófrægja mig
og flokkinn?
Þ. G.
Hér á Akureyri fékkst ekki held-
ur að fulltrúar alþýðunnar mættu
láta til sín heyra þennan dag.
— Hvernig tekist hefir annars
til um val ræðumanna, skal látið
ódæmt um að sinni — en betur
hefði áreiðanlega mátt fara.
Alþýða landsins — verkalýðsstétt-
in — hefir verið freklega móðguð,
en það mun ekki hindra hana í því
áformi, að lýsa fylgi sínu við hug-
sjónir frelsisins — þvert á móti
mun það þjappa henni saman og
sýna undanlátsmönnunum, að lnin
vill frjálst ísland.
FYLKIÐ LIÐI 17. JÚNÍ.
Iiátíðahöld
Þjóðhátíðadaginn
17. júní
TILHÖGUNARSKRÁ:
Kl. 1.15 e. h. Lúðrasveit Akureyrar
leikur á Ráðhústorgi. — Kl. 1.30 e. h.
Skrúðganga frá Ráðhústorgi að hátíða-
svæðinu, eða til kirkju, verði óhagstætt
veður.
Kl. 2 e. h. Hátíðahöld á túnunum
sunnan við sundlaugina. — a) Hátíðin
sett, Ármann Dalmannsson. Karlakórar
bæjarins syngja: „Eg vil elska mitt land“.
— b) Fánahylling. — c) Guðsþjónusta,
séra Friðrik J. Rafnar prédikar. — d)
Lýðveldisræða, Sigurður Guðmundsson,
skólameistari. Karlakór: „Syng frjálsa
land“ og „Land míns föður“. — e) Minni
Jóns Sigurðssonar, Ólafur Halldórsson,
stúdent. — f) Kantötukór Akureyrar
syngur „Ó, guð vors lands“.
Kl. 4 e. h. ÍÞRÓTTASXNINGAR. —-
a) íslenzk glíma (skátar). — b) Fim-
leikaflokkur kvenna úr íþróttafélaginu
„Þór“. — e) Fimleikaflokkur karla úr
íþróttafélaginu „Þór“. — d) Þjóðdansar,
flokkur úr „íþróttafélaginu „Þór“.
Kl. 8.20 e. h. Endurvarp frá Hljóm-
skálagarðinum í Reykjavík. — Að því
loknu hefst dans á palli á hátíðasvæðinu.
Kl. 9.30 e. h. Dansað á Hótel Norður-
land og í Samkomuhúsi bjæarins til kl.
2 e. miðnætti. — Ókeypis aðgangur að
öllum skemmtiatriðum dagsins.
Þess er fastlega vænzt, að allir bæjar-
búar taki þátt í gleði dagsins, og geri það
á þann hátt, sem sæmir merkilegri og
þroskaðri menningarþjóð.
Forstöð unefrtd in.
Verkamannafélaé Akureyrarkaupstað-
ar skorar eindregið á meðlimi sína að
mæta við Verklýðshúsið kl. 1 e. h. 17.
júní og taka þátt í skrúðgöngunni.
Verkamaðurinn kemur næst út mið-
vikudaginn 19. júní.
Karlakór Mývetninga efnir til sam-
söngs í Nýja-Bíó kl. 4 e. h. í dag.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að
BENEDIKT SIGURJÓNSSON
andaðist á Akureyri 11. þ. m. Jarðarförin auglýst síðar.
Vandamenn.
Héraðsmót
Sjálfstæðisfélaganna
á Akureyri og Eyjafjarðarsýslu
verður haldið þann 23. júní n. k. að Nansta-
borgum við Akureýri. — Nánar auglýst síðar.
Fulltrúaráðið.
S<HKHKBKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKf<HKHKBKHKHKHKBKHKHKHKHKHKHK:
Orðsending frá ÆFA
Vegna yfirlýsinga frá öðrum
pólitískum æskilýðsfélögum í bæn-
um, sem hafa verið birtar í bæjar-
blöðunum nú síðustu daga, vil eg
taka fram eftirfarandi:
Bréf þau, sern formenn umræddra
félaga neita að hafa fengið, ritaði
eg 24. maí sl. og setti í póst að
morgni þess 25. — Til frekari árétt-
ingar þessu birti eg hér afrit af
einu þessarra bréfa, se mvoru öll
eins, að undanteknu ávarpinu, senr
vitanlega var breytilegt eftir því
hvaða félag átti í hlut.
•„Akureyri, 24. maí 1946
Félag ungra Framsóknarmanna,
Akureyri. Á stjórnarfundi í Æsku-
lýðsfylkingunni á Akureyri, félagi
ungra sósíalista, sem haldinn var
19. þ. m., var samþykkt, að spyrjast
fyrir um það hjá hliðstæðum æsku-
lýðsfélögum í bænum, hvort þau
myndu fáanleg til að taka þátt í
sameiginlegum umræðufundi um
stjórnmál, sem haldinn yrði ein-
hvern tima í næsta mánuði, eftir
nánara samkomulagi milli félag-
anna.
Leyl'um við oss því að senda yður
bréf þetta og vonum, að þér til-
kynnið oss fyrir 1. júní næstk.,
hvort rélag yðar myndi vilja vinna
að því að koma upp slíkum fundi
með öðrum pólitískum æskulýðsfé-
lögttm í bænum.
Virðingarfyllst.
F. h. stjórnar Æ. F. A.
sign: Einar Eggertsson,
Gránufélagsgötu 11, Akureyri."
Bréf þessi sendi eg formönnum
nefndra félaga, sem almenn bréf,
en keypti ekki ábyrgð á þau, þar
sem eg hefi ekki orðið þess var, að
póstafgreiðsla hér væri með þeim
hætti, að slíkt væri nauðsynlegt.
Einar Eggertsson.
ÞAKKIR
Hér með flyt eé mínar innileéustu
þakkir til starfsfólksins á Klæðaverk-
smiðjunni „Cefjurí' fyrir þá höfðinéleéu
éjöf, kr. 1500.00, sem það hefir fært mér
oé börnum mínum til hjálpar, t vandræð-
um mínum eftír Érunann á Kotá síðastl.
þriðjudaé■
Akureyri 14. júní 1946.
UNA SIGRÚN KARLSDÓTTIR.
| Benedikt Sigurjónsson |
sem þekktur var um land allt undir
nafninu FJALLA-BENSI, varð
bráðkvaddur hér í bænum 11. þ.
m., 70 ára að aldri.
Benedikt var annálaður ifjalla-
garpur og hraustmenni, svo að af
bar. Hann er söguhetjan í Aðventu
Gunnars Gunnarssonar, en ýmissa
æfintýra hans og þrekrauna er getið
í bókinni Ódáðahraun.
[Sjómeiin!
iHöfum venjulega fyrir-
|liggjandi:
Vinnufatnað
Vinnuvettlinga
Ullarbuxur
Ullarpeysur
Ullarnærföt
Ullarsokka
Ullarteppi
Vattteppi
Fatapoka
o. m. fl.
af nauðsylegum
fataði.
Brauns Verzlun
Páll Sigurgeirsson.
Kosningaskrifstofa sósía-
lista er opin frá kl. 1-7 og
8-10 e. h. — Sími 516
PrentviIIá. Á 1. síðu blaðsins í dag er
prentvilla í frásögninni af stjórnmála-
fundinum. Þar stendur neðarlega í 2.
dálki: krekkur og hrun, en á að vera:
kreppur oé hrun.