Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.12.1950, Síða 6

Verkamaðurinn - 22.12.1950, Síða 6
6 VERKAMAÐURINN 22. des. 1950 sem sterkustu sveitir nýlenduhers- ins eru samankomnar var skæru- hemaðurinn skipulagður dag frá degi, oft á hinn ótrúlegasta hátt. T. d. fóru skæruliðarnir í Hanoi í byrj- un þessa árs inn á Bac-Mai-flugvöll- inn og höfðu með sér sprengjur, sem eyðilögðu þjátíu junkers flutn- ingavélar, sem Frakkar notuðu tii þess að flytja vopn og vistir til ein- angraðra og sundraðra herflokka. En nú eru ekki aðeins skæruliðar í landinu. Alþýðulýðveldið Viet- Nam hefur nú á að skipa sterkari her. Herstjórn Viet-Nam gaf mér tækifæri til að heimsækja ýmsar deildir hersins. Hermennirnir voru í brúnum eða olíugrænum einkenn- isbúningum, hershöfðingjarnir höfðu korkhjálma, en hermennirn- ir höfðu hjálma úr blöðum. Það er strangur agi í hernum, en þrátt fyrir það er samband her- manna og hershöfðingja mjög frjálst. Þar til kosnar nefndir sjá um hag hermannanna, skipuleggja kennslu og koma af stað keppni milli hermanna um árangur af nám- inu. Merki hershöfðingjanna er gylt stjarna á rauðum grunni. Hershöfð- ingjarnir eru þjálfaðir á sérstökum skóla. Við heimsóttum einn af þess- um skólum. Hann var fyrir fót- göngulið. Þá voru þar nokkur hundruð nemendur. Nokkrir þeirra höfðu gengið í æðri skóla, aðrir voru hermenn og verksmiðjuverka- menn. Eftir 6—8 mánaða nám, eru hinir ungu hershöfðingjar sendir til hersins til að fá „verklega“ þjálf- un. Herinn er birgður upp af her- teknum vopnum, aðallega japönsk- um og frönskum, og auk þess vopn- um frá verksmiðjunum í skóginum, sem áður er sagt frá. Mér var sagt, að framleiðsa þeirra ykist stöðugt og þau yrðu stöðugt betri. Fyrir tveim árum síðan var her Viet-Nam eingöngu fótgöngulið. Nú eru, auk fótgönguliðs, vélaher- deildir, verkfræðingadeild og merkjadeild. Verið er að koma upp fylkingum, herdeildum, stórfylkj- um og divisionum. Varalið hersins er heimavarðsveit- ir hvers héraðs, en slíkar sveitir eru í hverju héraði. Á mörgum stöðum vinna þessar sveitir beint með hern- um og létta þannig á honum. Eg heimsótti yfirhershöfðingja Viet-Nam, Vo Nguyen Giap, einn af fremstu frelsishetjum þjóðarinn- ar. Hann er ekki enn þrítugur að aldri, er unglegur útlits en ákveð- inn og greinilega hámenntaður maður. Giap hershöfðingi var áður kenn- ari í Hanoi. Þegar Japanar her- námu landið fór hann til fjallahér- aðanna í norðurhluta landsins. Hann sagði mér frá því sem gerðist eftir 9. marz 1945, þegar Japanar afvopnuðu franska herinn. Um tíma barðist skæruliðasveit hans með franskri herdeild, en ekki leið á löngu þar til foringjar þessarar herdeildar stungu af yfir landamær- in til Kína. Þegar Japanir gáfust upp höfðu sveitir Giaps sem þá voru nokkur þúsupd manns þegar frelsað flesta bæi Tonkin. Frá 1946 hefur Giap verið yfir- hershöfðingi alls lýðveldishersins. Hann skýrði mér frá skilyrðum til stríðsreksturs í Indokína og bar- dagaaðferðum óvinanna. Hann skýrði mér frá skilyrðum til stríðsreksturs í Indókína og bar- dagaaðferðum óvinanna. Herstjórn Viet-Nam hefur frumkvœðið Herstjórn Viet-Nam hefur óum- deilanlega frumkvæðið í stríðinu í Viet-Nam. Hersveitir Giaps leggja oft til atlögu, t. d. þegar þær tóku Pholu og Dong-Khe af óvinunum. Þýðingarmestu stöðvar Frakka í norðurhluta landsins eru einangr- aðar og fá nú nauðsynjar einungis (Eins og kunnugt er, hafa Frakkar nú orðið að yirgefa flestar þær stöðvar — þýð.), og aðstaða þeirra er orðin mjög erfið. Enn sem komið er, eru hersveitir Viet-Nam ekki ætíð nægilega öfl- ugar til að halda stöðvum þeim, er þær taka, en þetta mun brátt breyt- ast. Franskir hershöfðingjar, sem her Viet-Nam hefur tekið til fanga, láta í ljós undrun sína yfir stærð hers- ins, skipulagningu hans og aga. Flestir þeirra voru svo fáfróðir um þjóð Viet-Nam, að þeir héldu að hún gæti ekki komið upp regluleg- um her. Þjóð Viet-Nam Á ferðum mínum um landið hitti ég almenna borgara, áhrifamikla menntamenn, hershöfðingja og her- menn. Eg sá ráðherra, fólk af ýms- um stéttum og með mismunandi sjónarmið. En allt þetta fólk var sameinað um það ófrávíkjanlega markmið, að færa landi sínu fullt frelsi og sjálfstæði. Varaforsætisráð- herrann, Pham Van Dong, sem er kommúnisti, vinnur við hlið inn- anríkisráðherrans, Pham Ke Toai, sem áður var landstjóri í Tonking á tímum heimsveldisins. Utanríkis- ráðherrann, Hoang Minh Giam,' er félagi í sósíalistaflokki Viet-Nam, atvinnumálaráðherrann er frægur lögfræðingur frá Hanoi, fjármála- ráðherrann, Le Van Hien, er kommúnisti, ráðherra hermála, Vu Dingh Tung, er katoliki og vara- forseti þjóðþingsins, Phan Be Truc, er kaþólskur prestur. Stjórn Viet-Nam er lýðræðisleg og þjóðleg samfylking. Þjóðin lít- ur á hana sem hina einu löglegu stjórn landsins, sem farið hafi með umboð þjóðarinnar frá því baráttan við Japana hófst 19. ágúst 1945 og yfirlýsingin um alþjóðalýðveldið

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.