Verkamaðurinn - 22.12.1950, Blaðsíða 8
8
VERK AM AÐURINN 22. des. 1950
hrifamikill leiðtogí í hinni þjóðlegu
frelsishreyfingu og einn af þeim, er
lögðu grundvöllinn að stofnun og
skipulagningu kommúnistaflokks-
ins í landinu.
Blaðið Cuu Quoc er málgagn
Viet-Minh og hefur gefið út auka-
blöð um Ráðstjórnarríkin, hið nýja
Kína og alþýðulýðveldin.
Þrátt fyrir alls konar erfiðleika
eru fjöldi skóla og námshringa, sem
leggja stund á marxismann og len-
inismann. Eg heimsótti einn þann
stærsta, sem bar nafnið Ho Chi
Minh. Þar eru saman komnir meira
en 600 nemendur frá öllum hlutum
landsins.
Grundvallarrit Marx, Engels, Le-
Jólamynd Norðurlandsbíós s/f
verður að þessu sinni rússneska
myndin Kúban-kósakkar. — Mynd
þessi er tekin á þessu ári í hinum
fögru agfa-litum, sem sovétkvik-
myndir eru orðnar frægar fyrir.
Myndatökustjóri er einn af þeim
beztu í Ráðstjómarríkjunum, Ivan
Pyréff, en han stjórnaði einnig töku
myndarinnar Óður Síberíu, sem
flestum myndum hefur orðið vin-
sælli hér á landi. Texta Kúban-
kósakka samdi Nikolaj Pagodín, en
hljómlistin er eftir tónskáldið ísak
Dúnaévski. Uppistaða í henni er
þjóðlög frá Kúban.
Aðalhlutverk þessarar myndar
leikur María Ladinina, sem lék
einnig aðalhlutverkið í Óður Sí-
beríu, en annað aðalhlutverkið er
leikið af Sergej Lúkjanov. í þessari
mynd koma einnig fiam ýmsir leik-
endur, se mfóru með hlutverk í Óð-
ur Síberíu og Steinblóminu, t. d.
Boris Andréff.
Kúban-kósakkar gerist í Suður-
nins og Stalins eru gefin út og dreift
um landið. Bókmenntir, sem fjalla
um baráttu kínversku þjóðarinnar
eru mjög útbreiddar.
Þjóð Viet-Nam gerir sér fullkom-
lega Ijóst, að barátta hennar gegnir
mikilvægu hlhtverki í baráttunni
fyrir friði, gegn heimsvaldasinnum
og þjónum þeirra.
Þjóð Viet-Nams veit, að hún er
studd af friðelskandi lýðræðissinn-
uðum mönnum um heim allan, að
hún er einnig studd af frönsku
þjóðinni, sem berst gegn stríðinu
í Indókína, stríðinu, sem hún nefn-
ir „óhreina stríðið“.
París, ágúst 1950.
Rússlandi á samyrkjubúunum í
Kúban, sem er norðan Kákasus-
fjalla. Koma mjög greinilega fram
lifnaðarhættir fólksins og daglegt
líf þess.
Söguþráður myndarinnar verður
ekki rakinn hér ,enda er í því efni,
sem svo mörgum öðrum, sjón sögu
ríkari.
Þær myndir, sem sýndar hafa
verið hér frá Ráðstjórnarríkjunum,
bera kvikmyndamenningu þeirra
mjög lofsamlegt vitni. Myndir eins
og Pétur mikli, Bernska mín, Óður
Síberíu, Steinblómið og nú síðast
Kúban-kósakkar, að ógleymdri
íþróttamyndinni undurfögru, eru
allar í röð allra beztu og listrænustu
mynda, sem hér hafa verið sýndar
og vonandi eigum við enn eftir að
sjá margar kvikmyndir frá Ráð-
stjórnarríkjunum, sízt verri þeim,
sem við höfum þegar séð.
Kúban-kósakkar er söngva- og
skemmtimynd. í henni kemur
glöggt fram sú sanna lífsgleði, sem
einkennir þjóðir Ráðstjórnarríkj-
anna og daglegt líf þeirra. Söngur
og hljóðfæraleikur virðist þeim í
blóð borinn í ríkara mæli en mörg-
um öðrum, en efnahagslegt öryggi
á þar einnig sinn mikla þátt og óef-
að meiri en fljótt kann að virðast.
Norðurlandsbíó á þakkir skildar
fyrir að bjóða Akureyringum slíka
afbragðsmynd nú um hátíðarnar,
og þess er að vænta að bæjarbúar
noti það tækifæri, sem nú gefst.
Nýtt hefti af
Landnemanum
Nýkomið er út 6.-7. tbl. þ. á.
LANDNEMANS, tímarits Æsku-
lýðsfylkingarinnar. Það hefst á
ræðu þeirri, er Ingi R. Helgason
flutti á fundi íslenzku friðarnefnd-
arinnar þann 19. október sl. og
hann nefnir: Heyrið kall okkar.
Björn Þorsteinsson sagnfræðingur
skrifar um Þjóðhetjuna Jón Arason,
Sigurður Blöndal ritar um beztu
mynclir síðasta dr, birtur kafli úr
hinni umdeildu bók Norman Mail-
er „The Naked and the Dead“
("Naktir og dauðir) er nefnist
„Stríðsfangi skotinn“. Þá er Að
deyja undir merkjum eftir B. B„
Maídagur eftir Elías Mar, Mynda-
opna frá rikjum alþýðunnar, Hjálp
frá Bandaríkjunum með SACO-
aðferðinni eftir Laó Dúan, ritstjór-
inn Jónas Árnason ritar framhald
grejnarinnar Júnídagar í Grimsey.
Þá eru birtar nokkrar ályktanir 9.
þings Æ. F. Ennfremur eru Fylk-
ingarfréttir,, ljóð eftir Ásgeir
Ingvarsson, Myndasíður eftir Bid-
strup, Gettu nú og ýmislegt fleira.
Fjölmargar myndir prýða heftið að
vanda.
Rússneska stórmyndin Kúban-kósakkar
JÓLAMYND NORÐURLANDS-BÍÓ