Verkamaðurinn - 22.12.1950, Qupperneq 9
VERK AM AÐURINN 22. des. 1950
9
BÆKUR.
B
EGGERT STEFÁNSSON:
LÍFFIÐ OG ÉG, I. - Útgef-
andi: ísafoldarprentsmiðja
h.f. Reykjavík 1950.
Þetta er nokkurs konar sjálfsævi-
saga hins fræga söngvara. Ekki þó
svo að skilja, að hann reki þar ná-
kvæmlega æviferil sinn í stóru og
smáu, eins og sumir ævisöguritarar
gera, heldur brýtur listamaðurinn
það til mergjar, hvernig náttúran
og mennirnir og viðburðir líðandi
•tíma, lífið allt, hafa orkað á anda
hans, tilfinningalíf og vilja, hafa
unnið að því að móta persónuleika
hans. Þetta er fyrsta hefti bókarinn-
ar, og hefst sagan í Reykjavík á
barnsaldri höfundar, segir frá
bernsku- og æskuárum hans, náms-
árunum í Danmörku og Svíþjóð,
dvöl í London og fyrstu kynnunum
af Ítalíu.
Eggert Stefánsson er óvenjulega
fjölmenntaður og víðsýnn lista-
maður, og ber bókin þess órækt
vitni. Honum var það snemma
ljóst, að söngkunnáttan ein nægði
hvergi nærri til að gera söngvarann
að sönnum listamanni, heldur varð
hér um fram allt að koma til „alefl-
ing andans“ og hin sanna menntun
hjartans. Og einmitt þetta hefir gert
Eggert að mesta listamanni ís-
lenzkya söngvara. Og það er sönn
unun að fylgja honum gegnum þess-
ar minningar hans og hugleiðingar.
Hér er eigi rúm til að rekja efni
bókarinnar. Stíll höf. er mjög fjör-
legur, lifandi og víða skáldlegur,
svo áð minnir á ljóð, og gegnum
alla bókina finnur maður hjarta-
slög mannvinarins, sem ann íslandi
og íslenzku þjóðinni öllu framar.
Þetta hefti er nokkuð á annað
hundrað bls. í allstóru broti, prent-
að á ágætan pappír, og frágangur
allur sérlega fallegur og vandaður.
Allmargar ágætar myndir prýða
bókina, sem er bæði höfundi og út-
gefanda til mikils sóma.
Á. S.
KONRÁÐ VILHJÁLMS-
SON: HORFNIR ÚR
HÉRAÐI. Nokkrar upprifj-
anir frd 18. og 19. öld. I.
Bókaútgáfan Norðri. Akur-
eyri, — Prentverk Odds
Björnssonar h.f. — 1950.
Þetta er allmikið rit, um 250 bls.
og hefir að geyma stórmikinn fróð-
leik um héraðssögu Þingeyjarsýslu
sérstaklega, en einnig um sögu
landsins í heild. I bókinni eru fimm
þættir: Þáttur af Bjarna Jónssyni á
Laxamýri, Hallgríms þáttur Þor-
grímssonar, Ljóðabréf til Benja-
míns, Jarðeigenda-þáttur og Þáttur
af Antoníusi skáldi Antoníussyni.
Auk þess er mjög góð nafnaskrá,
eða öllu heldur tvær, önnur um
mannanöfn, hin um staðanöfn.
Ef til vill halda einhverjir, að
bækur eins og þessi séu leiðinlegar
að lesa og aðeins fyrir einhverja
uppþornaða fræðagrúskara. En
í því gífurlega bókaflóði, sem nú
streymir á markaðinn daglega, og
meira mun að vöxtum en nokkru
sinni, fyrr, er mjög hætt við því, að
beztu bækurnar skipi eigi þann sess,
sem þeim ber, bókstaflega hverfi í
fjöldanum, ekki sízt þegar útgef-
endur eru eigi nægilega fjársterkir
til að auglýsa þær með heilsíðuaug-
lýsingum í öllum dagblöðum höf-
slíkt er mikill misskilningur. Hér
eru frásagnir svo vel stílfærðar, að
unuri er að lesa, enda er Konráð
meðal orðhögustu manna á íslenzkt
mál. Margar af frásögunum verða
lesandanum ógleymanlegar, t. d.
um Hallgrím Þorgrímsson, dreng-
inn, sem varð að fara að heiman í
fjarlægt hérað, 9 ára að aldri, vegna
fátæktar og ómegðar foreldranna.
Það er steinhjarta, sem eigi kemst
við af að lesa um þrautir þær, sem
þessi einstæðings-drengur varð að
þola. Og þó mun þetta hafa verið
almennt, að tökubörn væru beitt
harðneskju á þeim árum. En ástand-
ið var líka mjög bágborið vlðast
hvar: Móðuharðindin í fersku
minni og þjóðin enn lömuð af
þeim„ mikil harðindaár og sigl-
ingaleysi og dýrtíð (Napoleons-
ófriðurinn). Mikil seigla og lífs-
kraftur hefir þessu barni verið gef-
in, að það skyldi lifa af allar hörm-
ungarnar og komast mjög vel til
manns að lokum.
Það er áreiðanlega mikið tjón, að
Konráð Vilhjálmsson skuli ekki
geta gefið sig eingöngu við aðal-
hugðarefnum sínum, íslenzkum
söguvísindum.
Á. S.
uðstaðarins dag eftir dag, viku eftir
viku.
Þó að margir útgefendur gefi út
góðar bækur við og við, er þó magn
þeirra sem eru í meðallagi og þar
fyrir neðan stórum meira, og þau
útg.fyrirt. eru ekki mörg, sem hægt
er að segja um, að gefi eingöngu út
góðar bækur, öndvegisrit. Sem bet-
ur fer, eru þó til útgefendur, sem
Útgáfubækur Heimskringlu
og Reykholts