Verkamaðurinn - 22.12.1950, Qupperneq 10
10
VERKAMAÐURINN 22. des. 1950
eingöngu gefa út ágætar bækur, en
sú er staðreyndin, að þeir oftast
verst á vegi staddir fjárhagslega. —
Hér verða lítillega gerðir að um-
talsefni bækur Heimskringlu og
Reykholts, en aðrir útgefendur
bjóða íslendingum ekki betri bæk-
ur um þessar mundir. Bækur þess-
ara forlaga eru ekki margar að tölu,
en það eru allt öndvegisrit.
Með því bezta, sem skrifað
hefur verið.
Á vegum þessara forlaga liafa nú
í ár og síðustu ár komið út þrjú
verk, sem að dómi velflestra, eða
máske allra, gagnrýnenda eru með-
al þess fegursta, sem skrifað hefur
yerið á þessari öld. Er hér átt við
DITTU MANNSBARN eftir Mar-
tin Andersen Nexö í þýðingu Ein-
ars Braga Sigurðssonar, JÓHANN
KRISTÓFER eftir Romain Rol-
land í þýðingu Þórarins Björnsson-
ar skólameistara og BARN/ESKA
MÍN og HJÁ VANDALAUSUM
eftir Maxim Gorki í þýðingu Kjart-
ans Ólafssonar. Allt eru þetta önd-
vegisrit, sem skipta heiðurssess í
heimsbókmenntunum og sem ekki
munu fyrnast svo lengi, sem menn-
ing og fagrar listir eru til. Það er
oss íslendingum ómetanlegur feng-
ur, að eiga allar þessar bækur á
móðurmáli okkar — að vísu er út-
gáfu Æfisögu Gorkis og Jóhanns
Kristófers ekki lokið — í öndvegis-
þýðingum og við því verði að eng-
inn þarf að fráfælast.
Sá, sem þetta ritar, gengur þess
eigi dulinn, að það er eigi á hans
meðfæri að skrifa um þessi dásam-
legu verk svo, sem þau eiga skilið,
enda er tilgangur þessara fáu orða
fyrst og fremst sá, að minna menn á
þessi verk og benda fólki á að ganga
ekki fram hjá þeim að óathuguðu
máli.
Öndvegisrit íslenzk.
Þessi forlög gefa einnig út íslenzk
öndvegisrit. Má þar benda á Ljóða-
safn Jóhannesar úr Kötlum og
skáldsögur hans Dauðsmannsey og
Siglingin mikla, ennfremur er ný-
lega komin út bók eftir Halldór
Stefánsson Sögur og smdleikir. Þá
er einnig nýlega komin út ljóðabók
eftir Halldór Helgason Stolnar
stundir. Nöfn höfundanna ein
nægja til þess að sannfæra hvern og
einn íslending, sem eitthvað veit
um bókmenntir, að hér eru á ferð-
inni öndvegisrit.
Þessi litla upptalning verður að
nægja að sinni, en hún ætti að vera
nóg til þess, að hver sá, sem vill
eignast öndvegisrit, eða gefa vinum
sínum góða gjöf, ætti að kynna sér
bækur Heimskringlu og Reyk-
holts, áður en hann velur aðrar.
Svið
★
Sardínur
Gulrœtur
Kúsínur
Laukur
Búðingar
★
Gosdrykkir
★
Konfektkassar
★
Kertastjakar
Jólakort
Jólatrésskraut
Sþeglar
Kökuformar
Handsdpa
★
Leikföngin
★ f úrvali.
Herrasokkar
og peysur
Verzlun Björns Grímssonar
Sími 1256.
Gleðileg jól!
Farsælt nýtt ár!
Þökk fyrir viðskiptin á árinu.
Vélabókbandið h.f.