Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 26.06.1959, Qupperneq 7

Verkamaðurinn - 26.06.1959, Qupperneq 7
8 VERKAMAÐURINN Föstudaginn 26. júní 1959 Nokkrar athugasemdir um togarakaup ríkisstjórnarinnar Akureyrarbær fær engan af þeim togurum, sem ríkisstjórnin segir að komi til landsins á næsta ári og samningur Guðmundar Jörundssonar um smíði nýs togara hefur verð ógiltur Alþýðuflokkurinn í dauðateigjunum: Falsar dreyfibréf fil Reykvíkinga 1 gær varð uppvíst í Rcykjavík eitt mesta óþverramál, sem um getur í íslenzkri stjómmálabaráttu. Handbendi Alþýðu- íiokksins, Þorsteinn Pétursson, hefur verið látinn senda út falsað dreifibréf til fjölmargra vinstri manna í Rvík, þar sem skorað er á menn að strika Hannibal Valdimarsson út af lxsta Alþýðubandalagsins í Rvík. Undirskrift þessa falsaða bréfs er: Gamlir baráttufélagar Sósíalistaflokksins. Auðvitað þarf ekki að laka það fram, að þessir „gömlu bar- áttufélagar" eru engir aðrir en Þorsteinn Pétursson, sem sveik Sósíalistaflokkinn fyrir um 20 árum og hefur síðan verið flokksbundinn í Alþýðuflokknum og gegnt þar ýmsum ábyrgðarstöðum og e. t. v. Stefán Pétursson, fyrrv. ritstjóri Alþýðublaðsins. Það vekur sérstaka athygli að bréfið er sent út á sömu adressur og upplýsingaþjónusta liandaríkjanna hefur notað til útsendingar á efni, sem sérstaklega hefur verið ætlað tiJ rógs um sósíalista — og sýnir það vel eðli málsins. Þessarri síðustu örvæntingartilraun Alþýðuflokksins í dauðastríðiilu er ætlað að sundra einingu Alþýðubandalags- ins, sérstaklega úti á landi, þar sem málsvörn okkar með blöð- um er veikari en í Rvík, en árangurinn mun verða öfugur við tilganginn. Slíkar bardagaaðferðir munu verða öllumAlþýðu- bandalagsmönnum ný hvatning til þess að standa enn betur sainaii og vinna enn betur að miklum kosningasigriennokkru sinni áður undir forustu Hannibals Valdimarssonar, sem hef- ut einróma traust sem formaður Alþýðubandalagsins. Lesið Þjóðviljann í dag KEA-klíkan Hvorum treystið þið betur? í Alþingiskosningnnum 1956 fékk Alþýðubandalagið um 8000 atkvæði utan Reykjavík- ur, en fékk út á þann at- kvæðafjölda aðeins einn kjör- dæmakjörinn þingmann, og ekki munaði nenta örfáum at- kvæðum, að það fengi engan kjörinn utan Reykjavíkur. Með hinni nýju kjördæma- skipun verður þetta ranglæti og réttindasvipting alþýðunn- ar, sem dreifbýlið byggir, leiðrétt. Sameinuð atkvæði verkafólksins, sjómannanna í sjávarbyggðunum og frjáls- lyndra bænda munu tryggja þeim fulltrúa úr hverju hinna nýju kjördæma. Þessi breyting er einn hinn mikilvægasti ávinningur, bæði fyrir það vinnandi fólk, sem svift hefur verið möguleikum til að eiga sinn réttmæta full- trúafjolda á Alþingi, og einnig fyrir landsbyggðina í heild sinni. Tengsl almennings við Atþingi aukast þannig en minnka ekki, og hverjum skyldi betur treystandi í mál- efnum dreifbýlisins, fulftrúum alþýðunnar sjáifrar eða Sjálf- stæðis- og Framsóknar- flokknum? Hverjir skyldu vita betur, hvar skórinn kreppir í atvinnumálum byggðanna heldur en þeir, sem allt sitt eiga undir því, að sú stefna ríkti, að atvinnu- lífið sé látið sitja í fyrirúmi og atvinnuteysinu verði útrýmt? Núverandi kjördæmaskipun hefur verkað sem eins konar einkaleyfi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og Framsóknar- flokkinn til að teljast fulltrúar byggðanna á Alþingi, og það hefur vissulega ekki reynzt til neinnar blessunar. Flokkur al þýðunnar og alþýðusamtak- anna mun nú fá sinn rétt í þessu efni og tryggja þannig tengsl sín við löggjafarvaldið. Þess vegna er breytingunni fagnað af almenningi, sem hvort tveggja í senn mann- réttindamáli og beinu hags- munamáli alþýðunnar, bæði í sveit og við sjó. - Stefnuyfirlýsing Framhald af 7. siðu. olíur, benzín, kol, salt og bygg- ingarefni. Einnig getur verið réttmætt að ríkið taki sjálft einkasölu á ýms- um lúxusvörum til ágóða fyrir ríkissjóð. í ræðu, sem Emil Jónsson for- sætisráðherra flutti á Sjómanna- daginn í vor, tilkynnti hann, að ríkisstjórnin hefði ákveðið að láta smíða 8 togara og myndu fjórir þeirra verða tilbúnir á næsta ári, en hinir fjórir á árinu 1961. Mönnum þóttu þetta að vonum góðar fréttir. Loksins átti að hefjast handa um endurnýjun togaraflotans, átta skip ‘byggð á vegum ríkisins til viðbótar því, sem einstaklingar og félög höfðu þegar samið um, var ekki svo af- leitt. En mál þessi hafa nokkuð skýrzt síðustu daga og eiga kannski eftir að gera það mjög bráðlega. Það, sem komið hefur í ljós, er m. a. þetta: Ríkisstjórnin hefur ennþá ekki gert neina samninga um smíði togara, og það er því alveg út í bláinn sagt, að fjórir þeirra komi til landsins á næsta ári. En vegna kosninganna lá Alþýðuflokks- ráðherrunum afar mikið á að til- kynna, að þetta stæði til. Það eina, sem ríkisstjórnin hefur unnið að undiibúningi málsins er, að hún mun hafa samið um einhverja lántöku í Þýzkalandi. Þá hefur það komið fram, að þessir umræddu togarar koma ekki til viðbótar þeim togurum, sem Guðmundur Jörundsson, Akraneskaupstaður og fleiri höfðu þegar gert samninga um smíði á. Alla þá samninga hefur ríkisstjórnin nefnilega ógilt. Samningarnir voru háðir sam- þykki ríkisstjórnarinnar, en hún neitaði að láta það í té. Það má því vissulega segja, að ríkis- stjómin tekur með annarri hend inni það, sem hún gefur með hinni. Ennþá hefur ekki verið opin- berlega tilkynnt, hverjir eigi að fá þá togara, sem til landsins eiga að koma á næsta ári að sögn rík- isstjórnarinnar, en almælt er, að stjórnin hafi samt þegar úthlutað þeim og eigi þeir allir að fara til byggðanna við Faxaflóa, þ. e. Reykjavíkur, Akraness og Hafn- arfjarðar. Meðal þerra, sem gefin hefur verið von um að fá togara er t. d. Einar Sigurðsson, ríkasti maður landsins. En Akureyri fær engan. í meira en tvö ár hefur legið hjá ríkisstjórninni beiðni frá Ak- ureyrarbæ um kaup á tveimur togurum. Sú beiðni var endur- nýjuð alveg nýlega og almennur áhugi fyrir því í bæjarstjórn, að fylgja því máli fast eftir. Þegar ríkisstjórnin kom hér á dögunum og hélt ráðherra- fundinn í Borgarbíó gengu for- ráðamenn Útgerðarfélagsins á fund ráðhcrranna og inntu þá svara um það, hverjar vonir Akureyringar mættu gera sér um úthlutun af þehn skipum, sem nú væri tilkynnt að byggja ætti. Svör ráðherranna voru þau, að þeir gætu a. m. k. engar vonir gefið um, að Ak- ureyri kæmi til greina við út- hlutun þeirra togara, sem koma ættu á næsta ári. Hvort Guðmundur Jörundsson kann að fá einn þeirra er ekki vitað með vissu, en jafnvel þótt svo færi, eru litlar sem engar líkur til að sá togari yrði gerður út héðan. M. a. hefur Guðmund- ur sjálfur tjáð stjórn Utgerðarfé- lagsins, að hann sé ekki tilbúinn að svara því játandi að hann muni halda áfram útgerð héðan, og má það vissulega skoðast sem nokkur staðfesting á þeim frétt- um, að hann hyggist flytja til Reykjavíkur með sína starfsemi. Það verður því ekki sagt, að útlit fyrir kaup á nýjum togur- um hingað hafi nokkuð batnað, þrátt fyrir yfirlýsingu ríkisstjórn arinnar um togarakaup, enda mun Alþýðuflokknum þykja meiri nauðsyn á atkvæðaveiðum annars staðar en hér. ÞAÐ ER NAUÐSYNLEGT að allir |>eir, sem vilja vinna á kjördegi fyrir Al- þýðubandalagið mæti til viðtals á kosningaskrifstof- unni í kvöld (föstudag) eða á morgun (laugardag). — Skrifstofan er opin kl. 10 f. h. til kl. 10 e. h. Það er mikið að gera hjá KEA- klíkunni þessa dagana. Margir af forstjórunum og þægustu hand- bendum þeirra eru á hlaupum um bæinn við kosningaáróður fyrir Framsóknarflokkinn, en á fullum launum hjá KEA. Aðal- verkefnið upp á síðkastið hefur verið að reyna með öllum til- tækuin ráðum að fá fólk til að vitna í kjördæmamálinu og lýsa því yfir, að það sé algerlega and- vígt fyrirhugaðri breytingu. — Hefur vitnunum verið safnað í sérstakt blað, sem mun vera að koma út. Mest áherzla hefur ver- ið lögð á það, að fá fólk, sem ekki hefur verið flokksbundið hjá Framsókn eða yfirlýstir stuðningsmenn flokksins til að vitna, en uppskeran orðið harla lítil, og smalarnir munu óþægi- lega oft hafa rekið sig á vaxandi andúð fólks á Framsóknar- flokknum. En KEA-klíkan hefur fyrr orðið fyrir vonbrigðum, enda þótt henni gangi seint að skilja það, að kaupfélagið og Fram- sóknarflokkurinn er ekki eitt og það sama. A aðalfundi KEA í vor reis t. d. upp einn fulltrúinn, háettsettur í Framsóknarfélagi Akureyrar, og lýsti því yfir, að hann skyldi als ekki, hvernig á því stæði, að á sama tíma og tfERKMURiÍ Ritstjóri: Þorsteinn Jónatansson. Prentverk Odds Björnssonar h.f. starfsemi KEA yrði meiri og margvíslegri ár frá ári, þá fækk- aði Framsóknarmönnum á Ak- ureyri og jafnvel í Eyjafjarðar- sýslu. „Eg skil þetta ekki,“ sagði fulltrúinn. Það virðist útbreiddur sjúk- dómur hjá Framsóknarmönnum að berja höfðinu við steininn og neita að skilja staðreyndir, neita að skilja það, að verzlunarfyrir- tæki og stjómmálaflokkur sé ekki eitt og það sama, neita að skilja, að það sé Iýðræði, að allir hafi jafnan kosningarrétt. Væri ekki rétt fyrir KEA að ráða sálfræðing og lækni í þjón- ustu sína? Og svo mættu þeir sumir muna þetta: 1 lögum um kosningar til Al- þingis stendur: „Það er óleyfi- legur kosningaáróður eða kosningaspjöll: .... Að bera á mann fé eða fríðindi til að hafa áhrif á, hvort hann greiðir at- kvæði eða hvernig han greiðir atkvæði, að svipta mann eða ógna manni með sviptingu at- vinnu peða hlunnindum í sama skyni, að heita á mann fé eða fríðindum, ef ksoningar fari svo eða svo, að torvelda hjúi sínu eða öðrum, sem menn hafa yfir að segja, sókn á kjör- fund eða til utankjörfundar- staðar, svo og að heita þving- unarráðstöfunum í sambandi við kosningar.“ Mætum til starfa á kosningaskrifstofunni kl. 9 fyrir hádegi á kjördaginn Þetta er áætluð f járþörf Alþýðubandalagsins á Akureyri vegna kosninganna 28. júní: Þetta hefur safnazt til þessa: Eflum kosningasjóðinn! Nú er aðeins lokaspretturinn eftir!

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.