Verkamaðurinn - 11.08.1961, Blaðsíða 1
Verkamaðurinn
VÍSA VIKUNNAR
Vi3 í miklum vanda finnum
vesturheimsku hjörðina,
af því Títoff sautjón sinnum
sveiflaðist kringum jörðina.
Þýzknr íálkafang-
ari á Fiateyjardal
Festi R»|öllur á nngrana
TJARNARBORG í OLAFSFIRDl
Sú var tíðin, að fálkaveiðar
voru mikið stundaðar á íslandi,
ekki aðeins sem íþrótt heldur og
sem sérstök atvinnugrein. Nefnd-
ust þeir, sem þetta atvinnu stund-
uðu fálkafangarar og þótti heldur
virðing að þeirri nafnbót.
Fálkafangararnir voru bæði ís-
lenzkir menn og erlendir, en fálk-
arnir voru fluttir úr landi og
tamdir þar til veiða. Þegar fyrsta
allsherjarmanntal var tekið á ís-
landi, árið 1703, voru skráðir 6
fálkafangarar, einn þeirra var bú-
settur í Gullbringusýslu, en 5 á
Snæfellsnesi.
En nú eru fálkafangarar útdauð
stétt, enda er fálkinn orðinn næsta
sjaldséður fugl og alfriðaður.
Liggja við því báar sektir að
veiða fálka eða raska ró hans, þar
sem hann hefur gert sér hreiður.
Ekki er einu sinni heimilt að nálg-
ast hreiður hans til myndatöku
nema fyrir liggi sérstakt leyfi
náttúruverndarnefndar.
En þrátt fyrir það, að fálkinn
er orðinn sjaldgæfur fugl, og
kannski einmitt vegna þess, ber
það öðru hvoru við, að einstaka
menn grípur sterk löngun til að
handsama þennan sterka fugl.
Nýlega fréttist af ferðum eins
slíks manns á Flateyjardalsheiði.
Höfðu ferðamenn hitt hann þar
og séð hjá honum fálkaunga, er
hann hafði í eldi.
Sýslumanninum í Þingeyjar-
sýslu, Jóhanni Skaftasyni, bárust
fréttir af þessu, og ákvað hann,
að takast ferð á hendur á Flateyj-
ardal og kanna, hvað sá hefði fyr-
ir stafni, er þar hefði gerzt úti-
legumaður.
Árla dags á miðvikudaginn
hélt sýslumaður ásamt lögreglu-
þjóni til Akureyrar. Þar kom
flugleiðis til móts við þá Finnur
Guðmundsson fuglafræðingur.
Var síðan haldið út á Flateyjar-
dalsheiði og allt að Brettingsstöð-
um á Flateyjardal, sem síðastur
bæja var þar í byggð. Sáust þess
merki, að þar myndi útilegumað-
urinn hafa aðsetur, en ekki var
hann heima við. Var ákveðið að
bíða komu hans, og eftir alllanga
hið birtist Þjóðverjinn Egon
Miiller frá Westfalen, en sá var
útilegumaðurinn.
Ekki firrtist hann neitt við að-
komumenn og féllst á að fylgjast
með þeim til byggða. Var þá hald-
ið til baka og til Húsavíkur. Er
þangað kom var nótt gengin til
síðari hluta og höfðu heimamenn
haft 20 stunda útivist.
Var þá gengið til náða, en
snemma í gær var réttur settur og
tekin skýrsla af hinum dularfulla
Westfalen-manni.
Sá þýðverski játaði að hafa
handsamað sex fálkaunga og
kvaðst hann hafa náð þeim í
hreiðrum austur við Jökulsá, en
síðan flutt þá með sér vestur á
Flateyjardal og alið þá þar.
Hafði hann skotið ýmsa fugla til
matar handa ungunum einkum
svartbak. Ekki sáust þess merki
né kom fram í yfirheyrzlu, að
maðurinn hefði drýgt önnur lög-
brot í útilegu sinni en fálkarán.
Leyfi hafði hann haft til silungs-
veiða, og hefur því trúlega lifað
góðu lífi á silungi og fuglakjöti.
Hann mun hafa verið búinn að
dveljast þrjár vikur fjarri manna-
byggðum.
Ungar þeir, sem Muller útilegu-
maður tók við Jökulsá eru orðnir
allstálpaðir. Hann hafði þá ekki
í búri, heldur flugu þeir um
frjálsir ferða, en bjöllur hafði
liann bundið við fætur þeirra.
Kvaðst Múller alls ekki hafa haft
í hyggju að flytja ungana með
sér úr landi, heldur hefði hann
tekið þá og alið sér til gamans,
því hann væri mikill fuglaunn-
andi. Sýslumaður og aðstoðar-
menn hans sáu ungana á flugi þar
á Flateyjardal, en ekki var unnt
að ná þeim.
Er blaðið hafði tal af Jóhanni
Skaftasyni sýslumanni síðdegis í
gær, kvað hann óráðið, hvort
gerður yrði út leiðangur til að ná
Fyrra laugardag var vígt í Ól-
afsfirði nýtt og myndarlegt fé-
lagsheimili, sem þar hefur verið í
byggingu undanfarin sex ár. Eig-
endur þess eru Ólafsfjarðarkaup-
staður og félagasamtök í bænum,
alls 10 félög. <
Hið nýja félagsheimili er 506.5
ferm. að flatarmáli og 3800 rúm-
metrar. I kjallara er leiktjalda-
geymsla, hitunar- og loftræsti-
tæki, inngangur fyrir leiksvið og
eldhús, geymsla og hluti af eld-
húsi (smurstofa).
Á aðalhæð er anddyri, miða-
og sælgætissala, fatageymsla,
snyrting og forsalur 53 ferm.,
ungunum og losa þá við bjöllur
Þjóðverjans eða hvort því yrði
treyst, er Þjóðverjinn héldi fram,
að festing bjallanna væri þannig,
að þær mundu fljótlega losna.
Sýslumaður kvað Þjóðverja
þennan koma vel fyrir og liti út
fyrir að vera duglegur maður og
kjarkgóður og ekki myrkfælinn.
Yfirheyrzlu í máli þess þýzka
lauk um fimmleytið í gærdag.
Sýslumaður kvað saksóknara rík-
isins síðan mundu skera úr um
frekari aðgerðir, en vafalaust
hlyti maðurinn einhverja refsingu
fyrir brot sitt á fuglafriðunarlög-
unum, því að mjög alvarlegum
augum væri litið á slík brot, þeg-
ar um svo fágætar fuglategundir
væri að ræða sem fálka.
samkomusalur 136 ferm., ætlaður
fyrir 230 sæti, veitingasalur 70
ferm., 80 manns geta setið þar við
borð, eldhús, leiksvið 69 ferm. og
búningsherbergi leikara.
Á efri hæð eru svalir, ætlaðar
fyrir 96 sæti, fundasalur 56 ferm.,
þrjú herbergi til afnota fyrir eig-
endur byggingarinnar, snyrting-
ar, skrifstofur, sýningarklefi og
forstofa.
Teikningar af húsinu gerði
Halldór Halldórsson arkitekt, en
innanhússteikningar gerði Sig-
valdi Thordarson og sagði einnig
fyrir um gerð húsgagna og liti á
málningu og tjöldum.
Byggingameistarar voru Gísli
Magnússon og Gunnlaugur Magn-
ússon Ólafsfirði. Yfirsmiður við
trésmíði innan húss var Þórður
Friðbjarnarson, Akureyri.
Við vígslu hússins 29. júlí var
saman kominn mikill mannfjöldi,
því að auk heimamanna fjöl-
menntu burtfluttir Ólafsfirðingar.
Um 500 manns sátu til borðs.
Samkomunni stjórnaði Björn
Stefánsson skólastjóri, vígslu-
ræðu flutti sr. Kristján Búason,
Gísli Magnússon lýsti bygging-
unni og Ásgrímur Hartmannsson
rakti byggingarsögu. Margir fleiri
tóku til máls og skemmtiatriði
voru flutt.
Með byggingu þessa félags-
heimilis er leyst úr mikilli og
knýjandi þörf Ólafsfirðinga fyrir
gott samkomuhús, og verður það
væntanlega mikil lyftistöng fyrir
allt félagslíf á staðnum.
Framkvæmdastjóri hússins er
Jakob Ágústsson.
í. B. A. : VALCR
Nú fækkar óðum leikjum í I.
deildarkeppninni í knattspyrnu og
líður að úrslitum.
Á sunnudaginn kl. 5 keppa Ak-
ureyringar og Valsmenn á íþrótta-
vellinum á Akureyri.
I gær sigruðu Akurnesingar
KR með 3:1 og Fram Hafnfirð-
inga með 4:1.
HEYRTÁ GÖTUHNI
AÐ ritstjórn Dogs hafi ekki enn-
þó borizt fréttir af geimför
Títoffs, sem var sólarhring í
geimskipi og fór 17 ferðir um-
hverfis jörðina, en aukabloð
af Degi muni koma út um
leið og fréttin berst þangað.
AÐ Jónasi Rafnar alþingismanni
hafi verið boðið til Austur-
Þýzkalands, en honum sé um
og ó, hvort leggja skuli í svo
hættulega ferð.
AÐ enn sé von ó nýrri húsgagna-
verzlun ó Akureyri. Væntan-
legur eigandi Oddur Thoraren-
sen.