Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 11.08.1961, Blaðsíða 4

Verkamaðurinn - 11.08.1961, Blaðsíða 4
4 VERKAMAÐURINN Föstudagur 11. ágúst 1961 Gengisfellinjiin og Markaðsbondalagið Viðreisnarstjórnin sýndi enn á ný í sér vígtennurnar í síðast- liðinni viku, er hún lœkkaði gengi krónunnar í annað sinn á valdatímabili sínu og hótaði því að gera það daglega framvegis, ef hún scei ástæðu til. Og atburð- ir síðustu vikna sýna, hvenœr ríkisstjórnin œtlar að lækka gengið; hún œtlar að gera það í hvert sinn, sem alþýðan nœr fram einhverjum smákjarabót- um. Stefna viðreisnarinnar er fyrst og fremst sú að halda kjör- um alþýðunnar niðri. Hitt ligg- ur henni í léttu rúmi, hvort at- vinnuvegirnir ganga eða stöðv- ast, hvort það eru sölusamning- ar fyrir hendi, þegar síldin lœt- ur sjá sig, hvort það eru nœgar tunnur á landinu, lwort það tekst að halda togurunum úti o. s. frv. Hver er meiningin hjá ríkisstjórninni með öllu þessu? spyr fólkið, hvað höfum við lil saka unnið, að ríkisstjórnin skuli snúast svona á móti okkur og hagsmunum okkar? Því er til að svara, að viðreisnarstjórnin er einrœðisstjórn fjármála- og braskaravaldsins, og hún vinnur markvisst að því að brjóta nið- ur vald verkalýðsins í landinu til að létta þeim eftirleikinn, sem á eftir eiga að koma. Hverjir eiga að koma á eftir? Hér eiga að koma grímulaus yfirráð er- lends auðvalds, og viðreisnar- ráðstafanirnar í fyrra og geng- islcekkunin núna eru ekki annað en undirbúningur fyrir það. Það á ekki að selja erlendu auð- valdi einn og einn foss eða nokk- ur hlutabréf í flugfélagi, eins og hingað til hefur verið eina form- ið á erlendu einkakapítali hér- lendis og þótt nógu hœttulegt. Það á að leyfa þeim hvers kyns atvinnurekstur hér til jafns við Islendinga. Þetta á að gerast í eitt skipti fyrir öll. En til þess að útlendingum finnist þetta fýsi- legt, þá þarf að berja niður ís- lenzkan verkalýð. Hann verður að scetta sig við kúgunina, ann- ars er allt unnið fyrir gýg. Og hann verður að búa við lágt kaup. Takmarkið er: lœgra kaup á íslandi en í nágrannalöndun- um. Þetta er nú þegar orðið að raunveruleika. Kaupið er núna samkvœmt nýja genginu um þriðjungi til helmingi hœrra á Norðurlöndum en hér. Reiknað í bandarískri mynt var tíma- kaupið (þ. e. útgjöld vinnuveit- anda) 64 cent fyrir síðustu gengislœkkun, en er nú 57 cent tœp. Þetta þýðir, að það er mun hagkvœmara fyrir erlent auðvald að hefja hér atvinnu- rekstur nú heldur en áður. Við- reisnarpostularnir fara heldur ekki í launkofana með það, hvað fyrir þeim vakir með öllum sín- um ráðstöfunum. Þeir segja það í fyllstu einlœgni (sbr. útvarps- ávarp forsœtisráðherra á dögun- um), að helzta ástœða til gengis- lækkunarinnar sé sú að tryggja hlutgengi íslands í samtökum auðhringanna í Vestur-Evrópu. Hér er um að rœða hið lítt- nefnda Markaðsbandalag, en málgögn ríkisstjórnarinnar hafa lýst því yfir, að ísland skuli inn, hvað sem hver segir. Sem sagt: ísland er því aðeins nokkurs virði fyrir stórveldi Markaðs- bandalagsins, og verðugt inn- göngu, að íslenzkt vinnuafl sé sem ódýrast. Og viðreisnarpost- ularnir, sem ekki œtla sér annan hlut en verða aumir leppar er- lenda stórauðvaldsins, þeir flýta sér að gera þœr ráðstafanir, sem þeir hyggja að dugi til að fá auð og metorð hjá hinum vœnt- anlegu herrum íslands. Yfirlýst stefna Markaðsbandalagsins er að útrýma tollamúrum og öðr- um höftum milli þátttökuland- anna, svo að vöruviðskipti, auð- magnsflutningar og vinnuafls- flutningar séu algerlega „frjáls- ir“ á öllu svœðinu. Þetta þýðir það, að tollverndun iðnaðar er bönnuð; auðmagnið fœr óskor- að frelsi til að leita einungis þeirra svœða, þar sem gróðinn er mestur án tillits til landa- mœra og fyrrverandi efnahags- byggingar; verkafólk fœr svo náðarsamlegast frelsi til að elta auðmagnið hérað úr héraði, land úr landi í leit að atvinnu, því að nú er ekki spurt lengur að hejðbundinni búsetu, þjóð- erni eða tungu, heldur einungis metið ódýrt og þœgt vinnuafl. Hver yrði hlutur íslands í slíku Markaðsbandalagi? Sá, að það yrði nýlenda tveggja-þriggja al- þjóðlegra auðhringa, og réði minna um sjálfs sín hag heldur en á hinum dekkstu öldum dana- kúgunar. ísland hefur hingað til byggt afkomu sína á matvœla- framleiðslu og gœti, ef rétt er á málunum haldið tryggt einhver beztu lífskjör í heimi með fisk- veiðunum. En innan Markaðs- bandalagsins yrðu Islendingar ekki annað en illa borguð vinnu- dýr ensk-hollenzka auðhringsins Unilever, en hann er lang stœrsti matvœlaiðnaðarhringur Mark- aðsbandalagssvœðisins og jafn- framt heimsins. Hann hefur yfir- ráð allrar fiskiðju í Bretlandi, svo að dœmi sé nefnt. Gegn hon- um mœtti enginn íslenzkur að- ili sín neins, enda svara eignir hans til samanlagðra þjóðar- tekna 15—20 ára á íslandi. Um hugsanlega stóriðju á íslandi gegndi sama máli; ef erlendum hringum fyndist það borga sig með tilliti til náttúruauðlinda, fjarlœgða á markað og verðs á vinnuafli, mundu þeir reisa hér verksmiðjur, annars ekki. í fyrrnefnda tilvikinu er senni- legt, að útlendingar flykktust hingað í atvinnu, og stafaði af því meiri þjóðernisleg hœtta en jafnvel ameríska hernáminu. Ef hins vegar þeim þœtti réttara að sniðganga Island í fjárfesting- aráformum sínum, þá má búast við svo stórkostlegu atvinnu- leysi hérlendis, að fólk leitaði utan í vinnu, og gœti svo farið, að við landauðn lœgi af þessum sökum. Ekki eru nú framtíðar- horfurnar glæsilegar, en þetta er samt það sem Markaðsbanda- lagið býður íslenzku þjóðinni upp á. í þessu sambandi er rétt að virða fyrir sér reynzlu ann- arra smáþjóða af Markaðs- bandalaginu, og því vísum við hér með á greinina um verkföll- in í Belgíu hér neðar á síðunni. Og þess skyldum við minnast, að svo mjög sem Belgía er þrúg- uð undir oki Markaðsbanda- lagsins, þá eru þó Belgar stór þjóð og auðug á móts við okkur íslendinga og þess vissulega megnug, að veita nokkurt efna- hagslegt viðnám. ÓNNIJM eru hin miklu verkföll í Belgíu um sl. áramót enn í fersku minni. Sjaldan hefur önnur eins verkfallaalda risið yfir nokkurt land og þá. í heilan mánuð má segja, að styrjaldarástand ríkti í landinu; yfir milljón verka- manna tók þátt í verkföllunum, og ríkisstjórnin beitti óspart vopnaðri lögreglu og herliði til að siga á friðsama borgara, sem Iagt höfðu niður vinnu. Hver var undirrót belgísku verkfallanna, hverjar voru kröf- ur fólksins? Forsaga verkfallanna er sú, að ríkisstjórnin (mjög hægri sinnuð stjórn undir forsæti hins „kristilega sósíalista“ Eyskens) lagði fram frumvarp í þinginu að svonefndum sparnaðarlög- um, en með þeim átti að minnka útgjöld ríkissjóðs um 20 millj- arða belgískra franka á ári og ná þannig endum saman á fjár- hagsáætlun ríkisins. Samkvæmt lögunum átti að hækka stórlega óbeina skatta (nýr 10% e. k. söluskattur), laun opinberrá starfsmanna átti að lækka, lækka eftirlaun og minnka at- vinnuleysisstyrki. — Á hvert mannsbarn í Belgíu hefði þetta þýtt um 2 þúsund króna tekju- sviptingu. Við þetta gat þjóðin ekki unað og reis upp til mót- mæla. (í sviga skal þess getið, að síðasta gengislækkun við- reisnarstjórnarinnar hér þýðir sennilega 5—6 þúsund króna tekjurán frá hverjum íslend- ingi.) Verkaföllin hófust 20. desem- ber, daginn sem farið var að ræða sparnaðarlagafrumvarpið á þingi. Fyrstir til aðgerða voru ríkisstarfsmenn eins og járn- brautarmenn, gasiðnaðarmenn, skólakennarar, en einmitt þeir urðu mest fyrir barðinu á „sparnaðinum“. Aðeins seinni til urðu járn- og stáliðnaðar- menn, vélsmiðjuverkamenn og námumenn. Þegar fyrir jól var verkfallið orðið svo algert, að það lamaði allt efnahagslíf landsins. I byrjun janúar efld- ust verkföllin enn og náðu þá til yfir milljón manna, en það er geysihá tala hjá 9 milljóna þjóð. Mest áberandi var hin al- gjöra þátttaka málmiðnaðar- manna og námumanna í helztu iðnaðar- og námuhéruðum landsins. Fyrst eftir mánaðar baráttu fengust allir flokkar til að fall- ast á þingrof og nýjar kosning- ar, og hinn 23. janúar héldu verkamenn til vinnu aftur, syngjandi Internasjónalinn. Kosningar voru haldnar 26. marz. Þá tapaði flokkur Eysk- ens, forsætisráðherra, 8 þing- sætum, sósíalistar unnu 5 og kommúnistar unnu 3. Straum- arnir lágu til vinstri, jafnvel þó að afturhaldsflokkarnir fengju haldið þingmeirihluta sínum. Að sjálfsögðu beilti afturhald- ið tæki sínu, ríkisvaldinu, til hins ýtrasta í því skyni að berja niður verkföllin og andstöðuna gegn sparnaðarlögunum. Það var ríkisvaldið, sem efndi til hinna alvarlegu átaka og al- þýðan, sem átti í vök að verjast. Stjórnin gaf út tilskipun um vinnunauðung; skyldi hver rík- isstarfsmaður hverfa aftur til vinnu og fá uppsögn ella. Hin borgaralega lögregla og ríkis- Iögregla var þæg svipa í hönd- um stjórnarinnar, og henni var att gegn verkamönnum í götu- bardögum. Lögreglan varpaði táragassprengjum á fólkið og notaði vatnsspúandi slökkviliðs- bíla og jafnvel skaut á vopnlaus- an mannfjöldann. Stjórnin kvaddi heim þúsundir belgiskra hermanna úr herstöðvum NATO-s í Vesturþýzkalandi og lét liðið setjast að í helztu verk- fallsborgunum, og var svo að sjá sem óvinaborgir væru. Og vissulega voru þetta óvinaborgir stjórnarinnar og málaliða henn- ar, og það var engin tilviljun, að eitt af vígorðunum, sem tug- þúsundir verkamanna kyrjuðu, var „Niður með NATO“.--------- Samkvæmt opinberum skýrslum drap lögreglan fimm verkfalls- menn, særði tvö hundruð og varpaði í fangelsi á annað þús- und manns. Þegar mikið liggur við, fer mesti helgisvipurinn af frelsinu og lýðræðinu. Hvað kom belgísku ríkis- stjórninni til að setja sparnaðar- lögin? Hvaða erfiðleikum á belgíska auðvaldið í, að það grípur til slíkra ráðstafana? Það er þrengt að belgíska auðvaldinu á þremur sviðum. í fyrsta lagi er það Kongó, sem er að ganga belgísku auð- hringunum úr greipum. Gróði þeirra hefur stórminnkað þar upp á síðkastið, enda þótt þeir Belgíshu verhföllin og Marhaðsbandolugið

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.