Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 11.08.1961, Síða 2

Verkamaðurinn - 11.08.1961, Síða 2
2 VERKAMAÐURINN Föstudagur 11. ágúst 1961 Aðalfundnr Prentsmiðju Björns Jónssonar h/f verður haldinn í Ásgarði (Hafnarstræti 88) Akureyri, laugardaginn 12. ágúst 1961, kl. 16. D a g s k r á : 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Stjórn félagsins. ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■■ í suiinu<l;i»sma4 iim NÝTT HROSSAKJÖT í GULLASH NÝTT NAUTAKJÖT I BUFF OG GULLASH NÝTT KÁLFAKJÖT DILKAKJÖT, allar tegundir KJÚKLINGAR — SVARTFUGL NÝR LAX. Kjörbnð K E A _■_■ ■ _■_■_■ Lrvalsgróður hákarl KJÖRBÚÐ KEA AUGLÝSING urn lán úr Veðdeild Búnaðarbankans til greiðslu á lausaskuldum bænda. Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar og heimild í bráða- birgðalögum frá 15. júlí 1961, verður opnaður nýr flokkur Veðdeildar Búnaðarbankans og lánað úr honum samkvæmt sérstökum reglum, til greiðslu á þeim lausaskuldum bænda, er þeir hafa til stofnað vegna framkvæmda síðustu fimm árin. Umsóknir um lán ber að senda til stjórnar bankans fyrir 1. október næstkomandi. Lánbeiðnum þarf að fylgja: 1. Skrá um allar skuldir umsækjanda og hvenær til þeirra er stofnað. 2. Veðbókarvottorð. 3. Virðingargjörð tveggja dómkvaddra manna um jarð- eignina. 4. Afrit af síðasta skattframtali lánbeiðanda. 5. Veðieyfi, ef lánbeiðandi á ekki veðið. 6. Umboð, ef lánbeiðandi getur ekki sjálfur mætt við und- irskrift lánsskjala. Búnaðarbanki íslands. TILKYNNING Nr. 10, 1961. Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á smjöriíki: í heildsöiu pr. kg..... kr. 13.40 í smásölu pr. kg. með söluskatti.— 15.00 Reykjavík, 5. ágúst 1961. VERÐLAGSSTJ ÓRINN. SVESKJ UR RÚSÍ N U R GRÁFÍKJUR DÖÐLU R K Ú R E N U R. Athugið! Seljum framvegis ýmsar smá- vörur, sem ekki hafa fengizt hjá okkur áður, svo sem: SILKITVINNA SMELLUR SKÁBÖND NÁLAR PRJÓNA svarta FLAUELSTEYGJU svarta HEKLUNÁLAR PILSSTRENGI og margt fleira Markaðurinn Sími 1261 TAURÚLLA til sölu. JJpplýsingar í sírna 2158. Þannig hljóðar fyrirsögn yfir þvera síðu blaðsins Nútíminn hinn 22. fyrra mánaðar. Frásögn- in, sem á eftir fylgir, er frá dans- leikjum að Hellu og Hvoli á Rang- árvöllum næsta laugardag á und- an. Oft hefur verið um það rætt í töluðu og rituðu máli, að lítill menningarbragur væri á dans- leikjahaldi hjá okkur íslending- um, en drykkjuskapur úr hófi fram og alls konar ósómi í kjölfar hans. Sérstaklega hafa farið slæm- ar sögur af samkomuhaldi út um sveitir í nágrenni kaupstaðanna, en slíkar samkomur sækja ungl- ingar kaupstaðanna ákaft til að losna við eftirlitið heima fyrir og geta sleppt rækilega fram af sér beizlinu. Ymsar sögur hafa geng- ið af svalli og sukki frá félags- heimilunum hér í Eyjafirði, og þá ekki síður frá samkomum í þeim dásemdanna stað Vaglaskógi, en ef trúa má frásögn Nútímans af dansleikjunum á Hellu og Hvoli, er það, sem hér nyrðra gerist allt hreinasti barnaleikur miðað við það, sem tíðkast þar syðra. Hér koma nokkrar glefsur úr frásögn Nútímans: „Við fórum á dansleikinn í Hellu-bíói .... Naumast var hœgt að sjá þarna ódrukkinn karlmann og fjöldi þeirra var ofurölvi. — Konur voru þar allmargar af full- orðnari tegundinni, en þó öllu fleiri af yngri tegundinni allt nið- ur í ferjningaraldur. En það skal viðurkennt, að þær voru ekki all- ar ölvaðar.“ „Þó þetta væri eins og í forsal undirheima, tók þó útyfir á Hvoli.“ „Þetta kvöld var hið glæsilega félagsheimili ummyndað í við- bjóðslegt spillingardýki. í stað þess að vel helmingur samkomu- gesta á Hellu var fullvaxinn, voru nú, á þessum stað, tiltölulega fáir komnir verulega yfir tvítugt. All- ur fjöldinn virtist vera frá 19 ára og allt niður í 13 ára að sjá. Okk- ur var tjáð, að samkomu- og dans- salurinn tæki 300 manns, — en 800 manns er vart ýkjur að leyft hafi verið að hafast þarna við inni í einu.“ „Þar höguðu menn sér siðlaust og villt, — flöskur og stólar flugu um salinn, flestir dönsuðu í faðm- lögum, þéttfullir, drukknar stúlk- ur sátu í fanginu á jafndrukknum karlmönnum og föðmuðu þá og kysstu allt í kring.“ „Útifyrir var viðurstyggðin ekki í eins stórum stíl, né almenn. Þó mátti í ýmsum bifreiðum rétt við félagsheimilið sjá stúlku og pilt eða stúlkur og pilta í miklum faðmlögum, — faðmlögum, sem betur hæfa lokuðum herbergjum, með gluggatjöldum fyrir gluggun- um.“ „Vafalaust hafa það þá heldur ekki verið einu bifreiðarnar, sem ekið var frá Hvoli þessa nótt af ölvuðum ökumönnum, svo öfugt sem hlutfallið var milli bílafjöld- ans og þeirra, er ódrukknir voru.“ „Það má að lokum telja full- víst, að þeim skemmtistað í Reykjavík, sem boðið hefði upp á slíka samkomu, eins og þœr sem hér liefur verið lýst, þœtti ástœða til að loka þegar í stað.“ STAK Frá happdrœtti STAK. ísskáp- ur fyrir 25 krónur. Laxveiðitæki fyrir 25 krónur. Knittax prjóna- vél fyrir 25 krónur. „GriU“- steikarofn fyrir 25 krónur. — Ef heppnin er með. — Starfsmanna- félag Akureyrarbæjar.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.