Verkamaðurinn - 04.12.1964, Qupperneq 1
Verkamaðurinn
DAVIÐSSTOFA
Bæj arstj órn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum á þriðju-
daginn uppkast að kaupsamn-
GLÆSIIEGT HAPPDRÆTTIALÞYDUBANDALAGSINS
Sala miða er hafin. — Fyrsti útdráttnr vinninga 24. des. nk.
Á kjördæmisþingi Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, sem haldið var á
Akureyri hinn 1. nóvember sl.,
var stjórn kjördæmisráðsins og
fjármálanefnd falið að gangast
fyrir myndarlegu happdrætti
með það fyrir augum að tryggja
nægjanlegt fjármagn til starf-
seminnar, bæði almennrar starf-
semi kjördæmisráðsins og útgáfu
Verkamannsins. Ef Alþýðu-
bandalagið á að geta starfað af
þeim þrótti, sem félagsmenn og
stuðningsmenn þess óska eftir,
er nauðsyn, að það hafi nokkur
fjárráð til fundahalda og er.ind-
rekstrar. Sömuleiðis er knýj-
andi nauðsyn á fjáröflun fyrir
Verkamanninn, svo að hægt sé
að gefa blaðið út reglulega í
fullri stærð og vanda til þess
eftir föngum. Að undanförnu
hefur Idaðið oftlega aðeins ver-
ið fjórar eða sex síður og þá
um leið lélegra málgagn en æski
legt væri. Ástæðan til þessa er
einungis sú, að ekki hefur verið
unnt að koma út stærra blaði
sökum fjárskorts, en úr þessu
verður að bæta.
Happdrættið
Nú hefur áðurnefnt happ-
drætti verið undirhúið, og dreif-
Fjorhitun
Ingólfur Arnason, bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, flutti eftirfar-
andi tillögu í bæjarstjórn Akureyrar
1. des. sl.:
„Bæjarstjórn Akureyrar felur bæj
arverkfræðingi og rafveitustjóra að
athuga möguleika ó því, oð fjar-
hitun verði sett i nýja ibúðarhverf-
ið veston Mýravegar.
Stefnt verði að því að nota af-
gangs-raforku og svartolíu til hit-
unar, þar til jarðvarmi verður til-
tækur."
Þessi tillaga var samþykkt með
atkvæðum allra bæjarfulltrúa.
Hinn góði órongur, sem nóðst hef
ur við borunina ó Laugalandi, lyftir
undir þær vonir manna, að hita-
veita verði innan skamms tima að
raunveruleika hér ó Akureyri og því
þurfum við strax oð hefja undir-
búning og framkvæmdir í þeim
íbúðahverfum, sem byggð verða ó
næstunni.
ing og sala miðanna er hafin.
Hafa miðar nú í vikunni verið
sendir til fjölmargra einstakl-
inga víðsvegar um kjördæmið,
og er það von kjördæmisstjórn-
arinnar, að þeir bregðist vel við
og vinni hver og einn eftir beztu
getu að því, að árangur þessa
happdrættis verði sem allra bezt-
ur, og helzt það góður, að ekki
þurfi strax aftur að fara af stað
með nýja fjáröflun.
Aðalvinningur í happdrættinu
er Trabant-bifreið eða húsgögn
að eig.in vali fyrir 80 þúsund kr.
Auk þess eru 150 aukavinningar
og verður dregið um þá í þrennu
lagi meðan á sölutímabilinu
stendur, en útdráttur aðalvinn-
ings verður 1. ágúst næsta ár.
Sömu miðarnir gilda við alla út-
drættina og gefa því vinnings-
möguleika í hvert skipti.
Fyrsti útdráttur aukav.inninga
verður 24. þessa mánaðar. Þá
verða dregnir út 15 vinningsmið
ar, sem gefa heimild til vöruút-
tektar fyrir kr. 1.000.00 hver og
35 miðar, sem veita heimild til
vöruúttektar fyrir kr. 500.00
hver. — Síðan verður aftur dreg
ið um 50 aukavinninga hinn 1.
apríl n.k. og loks 50 aukavinn-
inga 1. júní. En aðalvinningur-
inn verður, sem áður segir, dreg
inn út 1. ágúst og þar með lýk-
ur happdrættinu.
Það gefur mesta mögu-
leika að kaupa miða
strax
Augljóst er, að það gefur
mesta vinningsmöguleika að
kaupa miða í happdrættinu strax
eða fyrir fyrsta útdrátt, þar sem
sömu miðarnir gilda í öll skipt-
Einnig vill kjördæmisstjórnin
vekja athygli allra stuðnings-
manna Alþýðubandalagsins á
þeirri nauðsyn, að happdrættið
skili nú þegar í fyrsta áfanga
nokkrum arði, svo að hægt sé að
halda nauðsynlegu starfi uppi í
vetur. Alþýðubandalagið er vax-
andi flokkur og ærin þörf fyrir
vaxandi starf.
Verum samtaka um
að nó góðum órangri. —
Þetta er stærsta happ-
drætti, sem efnt hefur
verið til í þessu kjör-
dæmi. Árangur af því
þarf að verða glæsileg-
ur. Eflum og styrkjum
Alþýðubandalagið og
mólgagn þess, Verka-
manninn.
Iðja segir upp samningum
Á félagsfundi í Iðju, félagi
verksmiðjufólks, sl. laugardag,
var samþykkt að segja upp nú-
gildandi kaup- og kjarasamning-
um, en eins og kunnugt er samdi
Iðja í desember sl. til eins árs
og rennur því samningstíminn út
nú um áramótin.
Iðja átti ekki að.ild að því
samkomulagi, sem gert var á sl.
sumri milli verkalýðssamtak-
anna, vinnuveitenda og ríkis-
stjórnarinnar.
Hins vegar gerði Iðja bráða-
birgða samkomulag við vinnu-
veitendur iðnaðarins hér á Ak-
ureyri um 5.4% launahækkun
frá 1. júlí sl. Var það samkomu-
lag gert, þrátt fyrir það, að það
var skoðun Iðju, að umrædd
hækkun svaraði engan veginn til
þeirra launabreytinga, sem fól-
ust í samningum hinna almennu
verkalýðsfélaga, en gat þá ekki
náð meiru fram. Nú mun félag-
ið hafa í huga að ná fram ýms-
um lagfæringum á samningun-
um til hagsbóta fyrir iðnverka-
fólk.
Á fundinum voru eftirfarandi
ályktanir gerðar:
„Almennur fundur haldinn í
Iðju, félagi verksmiðj ufólks á
Akureyri, 28. nóvember 1964,
lýsir yfir andstöðu sinni við nú-
gildandi útsvars- og skattalög,
og telur, að þau séu í mörgum
efnum mjög ranglát. Skorar því
fundurinn á Alþingi og ríkis-
stjórn að breyta lögunum á þann
veg að m. a. persónufrádráttur
verði stórhækkaður, bæði varð-
andi álag útsvars og skatta, og
tekið verði að öðru leyti meira
tillit til ástæðna og efnahags
gjaldendanna en nú er gert.“
„Almennur fundur haldinn í
Iðju, félagi verksmiðjufólks á
Akureyri, laugardaginn 28. nóv.
1964, mótmælir fyrirhugaðri
hækkun á fasteignaskatti. Sér-
staklega bendir fundurin á rang
læti þess að hækka fasteigna-
skatt á íbúðarhúsnæði, sem not-
að er til eigin þarfa. Ennfremur
vill fundurinn benda á þá stað-
reynd, að hækkun fasteigna-
skatts fer út í verðlagið og lend-
ir á herðum launþegans fyrr eða
síðar. Ber að fara aðra leið ef
stöðva skal dýrtíðina.“
Páll Zophoníasson, fyrrum al-
þingismaður og búnaðarmála-
stjóri, lézt 1. des. sl., 78 ára að
aldri.
Með honum er fallinn í val-
inn sérstæður og heilsteyptur
persónuleiki og áberandi maður
í íslenzku þjóðlífi um áratugi.
Hann gengdi fjölda trúnaðar-
starfa um æfina og sinnti hverju
og einu af einlægni og alúð. —
Hann var maður sjálfstæður í
skoðunum og lét ekki hlut sinn
fyrir neinum, en var þó manna
ingi, sem erfingjar þjóðskáldsins
Davíðs Stefánssonar og bæjar-
stjórn hafa gert sín á milli um
kaup bæjarins á bókasafni
skáldsins fyr.ir fullt markaðs-
verð, kr. 2.824.000.00, sem grejð
ist fyrir 10. janúar 1965, að
hálfu í peningum en að hálfu
með 10 jafnháum handhafa-
skuldabréfum. Skuldabréf þessi
greiðast að fullu á næstu 5 árum
með jöfnum árlegum afborgun-
um og bera hæstu gildandi út-
lánsvexti banka á hverjum tíma.
I kaupbæti fékk bærinn hús-
muni hins látna þjóðskálds.
Ákveðið er, að í nýju Amts-
bókasafnsbyggingunni verði þess
um munum komið fyrir til minn
ingar um skáldið. — I. Á.
Póstor ti sími tpn við
Hofoorstrieti
I morgun voru bréfapóststof-
an og afgreiðsla landssímans
opnuð á ný á sama stað og áður
var í húsi Pósts og síma.
Frá því í vor hafa staðið yfir
gagngerðar breytingar á innrétt-
ingu neðstu hæðar hússins, og
áðurnefndar afgreiðslur verið á
hrakhólum. En nú hafa þær feng
ið hið vistlegasta húsnæði og
mjög bætta aðstöðu.
Þá eru komin ný pósthólf og
til muna fleiri en áður voru. Eru
þau staðsett, þar sem áður var
bögglaafgreiðslan.
Símanúmerin hækka
Símastjórinn auglýsir hér í
blaðinu í dag, að frá og með
miðnætti aðfaranótt sunnudags
verði tölustafnum einn bætt fram
an við öll símanúmer á Akur-
eyri. Verða þau þá fimm stafa.
Þá verður t. d. símanúmer Verka
mannsins eftir helgina ekki 1516
eins og verið hefur, heldur
11516.
Páll Zophouíassion
látinn
vinsælastur. Enginn maður mun
hafa haft aðra eins þekkingu á
íslenzkum landbúnaði og hann.
Páll var góður liðsmaður
flokks síns, Framsóknarflokks-
ins, en lét þó ekki flokksaga
segja sér fyrir verkum, ef hann
hafði sjálfur aðra skoðun. Þann
ig hafði hann t. d. margsinnis
sérstöðu í hernáms- og herstöðva
málum, er þau komu fyrir Al-
þingi, og var einlægur hernáms-
andstæðingur.
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ svo vel hafi fjérméloróðherr-
onum gengið að drago fé út
úr bönkum, að hann hafi ó-
kveðið að draga 25 milljónir
í viðbót.
AÐ þetta sé gert vegna margra
óskorano stórgróðamanna, er
orðnir séu í vandræðum að
fela peningana.
AÐ Eyþóri i Lindu sé ekki rótt
vegna óforma ríkisstjórnarinn-
ar um óheftan innflutning sæl
gætis.
AÐ hann beiti sér mjög að þvi,
oð fó vini sino til oð hætta
við þessa fyrirætlan.