Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 20.12.1966, Qupperneq 11

Verkamaðurinn - 20.12.1966, Qupperneq 11
ífcMA cr iKiðin ak Framh. af 4. síðu. an Hörgdæling til fylgdar við þá vestur yfir heið- ina og treyst á að sú fylgd fengist á efstu bæjun- um. Hvernig sem það var, brást sú fyrirætlan og þrír einir lögðu þeir upp frá Flöguseli um kvöldið. Húsbændur löttu þá þó fararinnar og buðu fram gistingu, en sýslumaður vildi ekki tefja. Fljótlega eftir að þeir kvöddu í Flöguseli tók veður að ýfast af norð-vestri og fylgdi bleytuhríð fyrst en síðar frost og fannkoma. Hörgárdalsrun- an er ærið löng og ekki greiðfær þegar veður stendur í fang og fönn fyrir fótum. Útlit er fyrir, að færðin hafi verið orðin það þung þegar þeir komu undir heiðina og jökulinn, að þeir hafi þá afráðið að skilja hestana eftir og freista að ganga vestur yfir. Veit nú enginn með vissu hvað næst gerist. * ÞESSA NÓTT og hinn næsta sólarhring var versta veður í sveitum beggja vegna fjallgarðsins, en fannburður til fjalla. Á mánudag, 14. október rofaði svo til, að byggðamenn gerðu leit að þeim félgum því strax var óttast um afdrif þeirra. Fund- ust þá hestar þeirra allir við Sandá, en það er þvergil efst í Hörgárdal. Bendir það til þess að þeir hafi aldrei á heiðina farið. Næstu daga var svo leitinni haldið áfram af fjölmenni þótt óhægt væri bæði færi og veður. Fundust smám saman hnakkar þeirra þremenninga og fleira af farangri svo og vettlingur Jóns Vídalíns og einhverjar aðrar'flíkur. Mikill snjór var á heiðinni og tók hann ekki upp fyrr en löngu seinna. Þá var enn mögnuð leitin, en kom þó fyrir ekki. Leið svo veturinn og vissu allir hver örlög þeir félagar hefðu hreppt á Hjaltadalsheiði. Hin sviplegu afdrif sýslumannsins unga voru hvarvetna hörmuð, en þó hvergi eins og heima á Hólum og í Víðidalstungu. Ekkjan, Helga Steins- dóttir, varð kona léttari skömmu eftir helför Jóns, eða 29. okt. Hún eignaðist sveinbam og var því vitanlega gefið Jónsnafnið. Sá Jón Vídalín lifði og varð hinn nýtasti maður og klerkur. Hann þjón- aði lengi í Laufási við Eyjafjörð. Kona hans var Sigríður systir Skúla landfógeta, en sonur þeirra Geir biskup Vídalín. Veturinn eftir slysið var harður og leysti snjóa seint um vorið. Steinn biskup var á varðbergi og lét hefja leit að afgangi þeirra þremenninga strax og tök voru á og tilgangur einhver. Svo var það loksins „degi fyrir Jónsmessu“ 23. júní, að lík þeirra fundust vestan til á heiðinni, nærri vegar- slóðanum, „við varða lítinn, heil og óskert44. Menn þóttust sjá merki þess að Jón Þorláksson frá Miklagarði hefði veitt sýslumanninum og sveininum unga hinzta umbúnað, lagt buru ofan á lík þeirra og brotið hana svo vel að allt í kring, að ekkert hafði rótast, en sjálfur lá hann þar skammt frá undir síðhempu sinni. Líkin voru flutt til Hóla og jarðsett þar. Þannig segir Gísli Konráðsson frá líkafundin- um, en heimildum ber ekki í smáatriðum saman, hvað það atriði sögunnar snertir, en að mestu þó. Þá segir G. K. einnig: „Mörgum þótti undarlega aðberast, ei á lengri leið, því þaðan er þeir fund- ust er ei langur vegur ofan í Hjaltadal og yfir að Reykjum, fremsta bæ í dalnum að vestan.“ Hefur svo og löngum viljað verða, að mönnum komi margt á óvart um tildrög lífs og dauða. Hitt er víst, að ekki hafa þeir félagarnir linnt göngu þarna nema fyrir það eitt að fjör og máttur hefur verið þrotið eftir löng fangbrögð við vályndar veðurnornir Hjaltadalsheiðar. * SVO SEM ÁÐUR SEGIR hefur ferðin frá upp- hafi lagzt illa í Jón Vídalín. Enn eru til sagnir um það, að síðasti áfangi hennar hafi ekki hvað sízt valdið honum ugg og angri, enda ekki ólík- legt, að honum hafi hrosið hugur við að leggja á Hjaltadalsheiði undir nótt í tvísýnu útliti, og hafa ekki traustari fylgd en hann hafði. Heim- ildir eru fyrir því, að þeir komu að Myrká á leið sinni fram Hörgárdalinn og falaði sýslu* maður þar fylgd vestur yfir, sem ekki var hægt af einhverjum ástæðum, að veita honum. Þegar hann reið frá Myrká, kvað hann: Ó, hve tíminn er að sjá undarlega skaptur. Hvað mun dagur heita sá að hingað kem eg aftur? Einhverntíma um veturinn, eftir að lengi hafði verið leitað að þeim þremenningum, án árangurs, vitraðist Páli lögmanni það í d'raumi, að lækur rynni undir hnésbætur Jóns sonar hans, þar sem hann væri niðurkominn. Sagði lögmaður ýmsum nákomnum frá þessu, en þegar líkin fundust stóð það heima, sem hann hafði sagt. Þá er það og í annála fært, að Jón heitinn hafi af forsjálni stungið fingurgulli sínu upp í sig áður en hann sofnaði svefninum langa, en fingurgull það var bæði fagurt og dýrt, sem siður var með heldri mönnum á þeirri tíð. Líkræningjar hafa verið til á voru landi, íslandi, og sannaðist það eftirminni- lega hálfri öld seinna, við aldurtila þeirra Reyni- staðarbræðra á Kili, þótt engar líkur bendi til, að slíkt hafi komið fyrir á Hjaltadalsheiði, anno 1726. * Helztu heimildir: Húnvetningasaga G. K. (handrit), Annálar Hins ísl. bókmenntafélags, Vísnakver Páls lögmanns Vídalíns, Manntal 1703,, ísl. æviskrár, Sýslumannaævir B. B. o. fl. imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHmn Gaddaskata Framh. af 11. síðu. þegar hann uppgötvaði, að hann var sjálfur laus við feimnina. Þá gerðu þeir út, hann og Halldór bróðir hans, frá Húsavík eystra, og áttu tvo sexæringa. Svo sem þá tíðkaðist á Austurlandi réðu þeir Sunnlend- inga á bátana hjá sér. Meðal Sunnlendinganna var tiltölulega ungur maður, kallaður Sveinn kvongaði, vegna þess að honum gleymdist sú staðreynd, að hann var gift- ur maður. Sveinn þessi hafði eitt sinn farið til Ameríku og kunni vel að segja frá reynslu sinni þar. í verbúðunum á kvöldin og eins undir færum sagði hann Ameríkusögur af slíkri list, að unun var á að hlýða, og þeim bræðrum fannst skömm að því, að fleiri skyldu ekki fá að njóta þeirra en ver- menn í Húsavík. Á miðju sumri höfðu þeir talið Svein á að halda samkomu í Bakkagerði á Borgarfirði eystra og segja fólki frá Ameríku. Samkoman var síðan boðuð, — sennilega full fljótt, því kvöldið fyrir hana setti að Sveini voðalegan kvíða fyrir morg- undeginum. Hann svaf lítið um nóttina, og daginn eftir, á leið til samkomustaðar, veitti Runólfur því athygli, að hann nagaði ákaft hárgreiðu sína. Þegar til Bakkagerðis kom, var ekkert eftir af henni nema stór tindur og ræfill af þremur öðrum. Þetta var á sunnudegi og Borgfirðingar fjöl- menntu til samkomunnar. Þegar Sveinn sá fólks- fjöldann í húsinu, varð hann náfölur og svitaperl- ur spruttu fram á enni hans. En nú var of seint að snúa við. Hann komst með einhverjum hætti í ræðustólinn, en þar með var honum líka öllum lokið. Hann stóð þar og gapti, og á augabragði fóru gárungarnir á áheyr- endabekkjunum að skopast að honum. Þá sagði Runólfur, að rétt hefði verið að styðja ræðumann á dyr án frekari umsvifa. En þeir höfðu selt innganginn á tvær krónur. Sveinn hafði fengið þarna næstum eins háa upphæð og nam öllu sumarkaupinu hans, og einhverja til- raun varð hann að gera til að halda fénu. Svo byrjaði hann og sagði: „Það er óskaplega heitt hérna.“ Þá kallaði einhver spéfuglinn: „Það finnum við sjálfir. En hvernig var í Ameríku?“ „Ég vann þar fyrst á bóndabæ,“ sagði Sveinn. „Það eru nú til fjósamenn hér í Borgarfirðin- um,“ sagði einn gárunginn. „Þetta var stórbýli,“ sagði Sveinn. „Það voru meira en hundrað kýr í fjósi.“ „Hundrað mjólkandi kýr,“ sagði gárunginn. „Hver heldurðu að trúi því?“ Þá brast Svein kjarkinn með öllu og hann sagði: ,,Það voru náttúrlega ekki allt saman mjólkandi kýr, því sumt voru hænsni.“ Þá sprakk þetta litla samkomuhús utan af hlátri Borgfirðinga. Runólfur sagðist hafa hlegið líka, því á þessu sumri var komið svo mikið sigg utan á sálina í honum, að hann var hættur að kveljast með hinum feimnu. Sveinn var leiddur út úr húsinu, öngviti nær, og Borgfirðingar heimtuðu inngangseyri sinn greiddan til baka. Þó urðu einar tíu krónur eftir af sjóðnum, merki þess, að þar í firðingum fund- ust fimm menn, miklu betur innrættir en títt er í mannheimi. 12) Verkamaðurinn Þriðjudagur, 20. desember 1966.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.