Verkamaðurinn - 06.09.1968, Page 4
Utgefandi ALÞYÐUBANDALAGIÐ I NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
Ritstjóri: ÞORSTEINN JÓNATANSSON
Afgreiðslo: BREKKUGÖTU 5 . AKUREYRI . SÍMI 1-15-16
Prentsmiðja Björns Jónssonar . Akureyri
Verð órg. kr. 350,00 - Lausasala kr. 10,00 eint.
»Frelsi, jafnrétti, brœðralag«
Snemma á þessu sumri urðu nokkur mannaskipti
í forustu kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu. Við
forustu flokksins tóku yngri menn, fullir áhuga fyr-
ir að blása nýju lífi í sósíaliska uppbyggingu
þjóðfélagsins, veita nýjum straumum inn í þjóð-
lífið, auka athafnafrelsi íbúanna og bæta lífskjör
þeirra. í stuttu máli sagt, virtist stefnt að aukinni
lífshamingju, og vel sé hverjum þeim, er hamingju
færir.
Jafnframt urðu skömmu síðar stjórnarskipti í
landinu. í ráðherrastólana settust ýmsir hinna nýju
forustumanna kommúnistaflokksins og skoðana-
bræður þeirra.
í dag er Tékkóslóvakía hernumið land. Sama
ríkisstjórn er að vísu enn við völd og forusta komm-
únistaflokksins lítt breytt. En þeir, sem fyrr í sum-
ar komu fram sem eldhugar, frelsis boðendur og
aukinnar hamingju, eru nú kúgaðir menn. Erlent
herlið og njósnarar þess fylgjast með öllum störfum
þeirra og athöfnum og segja fyrir um hvað eina,
er þeim sýnist. Þrátt fyrir stálvilja og að því er virð-
ist mjög hetjulega baráttu á málþingum, hafa for-
ustumenn Tékkóslóvaka orðið að heita yfirboðurum
innrásarliðsins því að láta af flestum þeim nýjung-
um, sem boðaðar höfðu verið, en halda flestu í
gamla horfinu. Ráðamennirnir hafa áreiðanlega
því aðeins valið þennan kost, að annarra var ekki
völ. Þjóðin öll er ævareið, en má sín lítils gegn
margföldu ofurefli innrásarhersins.
Arásaraðilinn er Sovétrkin, fyrsta ríki jarðar,
sem lýsti því yfir, að þar hefði verið komið á sós-
íalísku þjóðskipulagi, og stjórnað er af mönnum,
sem öðrum oftar hafa tekið sér í munn vígorð
frönsku byltingarmannanna: Frelsi, jafnrétti,
bræðralag.
Hvað kom forustumönnum Sovétríkjanna til að
senda herlið inn í Tékkóslóyakíu og hefja fyrir-
varalaust afskipti af innanlandsmálum þar, og
hvaða rétt höfðu Sovétríkin til slíkra afskipta?
Síðari spurningunni er fljótsvarað: Rétt til þess-
ara aðgerða höfðu Sovétmenn engan.
Svar við fyrri spurningunni liggur ekki eins
ljóst fyrir. Þjóðir Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu
hafa talið sig vinaþjóðir og hvorar um sig talið
sig vera að vinna að framtíðar-uppbyggingu þjóð-
félags hagsældar og velferðar fyrir alla þegna sína;
milli þessara þjóða hefði því átt að ríkja bræðra-
lag.
Ríki beggja þjóðanna eru aðilar að Varsjár-
bandalaginu. Þar átti að ríkja jafnrétti og sízt af
öllu að koma til greina, að eitthvert þessara ríkja
gerði innrás í annað ríki bandalagsins.
Frelsi, aukið frelsi, var aðalinntak í boðskap
nýju stjórnendanna í Prag í sumar. Sovétmenn
segjast sjálfir liafa ráðizt inn í Tékkóslóvakíu
vegna þess að nýja stjórnin hafi verið komin á
villigötur með framkvæmd sósíalismans, og því
hafi orðið að kippa í spottann, koma sósíalisman-
um til varnar, beina stjórnendum Tékkóslóvakíu
aftur á rétta braut. Þeir réðust með öðrum orðum
inn í landið til að berjast gegn frelsinu, koma í
veg fyrir, að framfylgt væri fyrsta boðorði sósíal-
ismans: Frelsi. I leiðinni brutu þeir boðorð númer
tvö og númer þrjú: Jafnrétti og bræðralag.
Um allan heim líta menn aðgerðir Sovétstjórnar-
innar með andúð og fyrirlitningu, og ekki sízt þeir,
sem aðhyllast lífstefnu sósíalismans og æðstu boð-
orð hans: Frelsi, jafnrétti og bræðralag.
Sovétríkin hafa löngum talið sig forusturíki sós-
íalismans í heiminum, og einnig verið talin það
af milljónum manna um heim allan. En þau eru
það ekki lengur og verða ekki framar, nema þau
kveðji her sinn þegar í stað brott úr Tékkóslóvakíu
og biðji allan heiminn afsökunar á heimskulegu
frumhlaupi og illri framkomu gagnvart þjóð, sem
ekki hafði til saka unnið.
Þjóðir Tékkóslóvakíu njóta samúðar um allar
jarðir, og heiðarlegir menn eiga flestir þá ósk heit-
asta, að þeim hlotnist sem fyrst aftur frelsi til að
taka á ný til starfa af fullum krafti við uppbygg-
ingu síns sósíalíska þjóðskipulags á grundvelli
jafnréttis og bræðralags og raunverulegs frelsis.
GOTT FORDÆMI
fslenzki síldveiðiflotinn
stundar nú veiðar mjög fjarri
landi og hefur einnig gert það
að nokkru undanfarin sumur.
Miklir erfiðleikar hafa oft skap-
azt af því, að enginn læknir
hefur verið tiltækur á miðunum
til að sinna sjómönnum, er þeir
hafa veikzt eða orðið fyrir slys
um. Oft hefur verið leitað að-
stoðar Rússa, sem hafa góða
læknisþjónustu um borð í móð-
urskipum veiðiflota síns, og hef
ur sú aðstoð verið fúslega veitt.
En tungumálaerfiðleikar hafa
verið til mikils trafala, og eins
hafa íslenzku veiðiskipin ekki
alltaf verið á sömu slóðum og
Rússamir. Hefur þá ekki verið
um annað að gera, þegar á hef-
ur bjátað, en að halda sem snar
ast til lands, stundum fleiri sól
arhringa siglingu. En hvort
tveggja er, að siglingartíminn
getur þá orðið of langur fyrir
fársjúkan eða slasaðan mann,
og Svo hitt, að slíkar ferðir eru
feiknadýrar fyrir útgerð viðkom
andi báts.
Hefur því lengi verið um það
rætt, að nauðsyn væri, að ís-
lenzkir læknar fylgdust með
síldveiðiskipunum á miðin. Sjó
menn og útgerðarmenn hafa
mjög óskað eftir því, að svo
yrði, og tillögur hafa komið
fram um það á Alþingi. Og síð
asta Alþingi samþykkti að veita
fé í þessu skyni. En íslenzkir
læknar hafa ekki sýnt mikinn
áhuga á því að gerast skipslækn
ar, og síldveiðiflotinn hefur ver
ið vikrnn saman á miðunum án
þess að njóta læknisþjónustu,
utan hvað rússneskir læknar
'hafa komið til aðstoðar í nokkr
um tilvikum.
En nú hafa þau gleðilegu tíð
indi gerzt, að tveir af þekktustu
skuTðlaaknum landsins, Hannes
Finnbogason og dr. Snorri Hall
grímsson, hafa gengið á undan
með góðu fordæmi og ákveðið
að eyða sumarleyfum sínum við
læknisþjónustu á síldarmiðun-
um norðaustur í hafi. Hafa þeir
aðsetur um borð í varðskipinu
Ægi, en þar á að vera góð að-
staða til þeirra læknisaðgerða,
sem einum lækni er fært að
framkvæma án lærðra aðstoðar-
manna.
Væntanlega fara fleiri Iæknar
að fordæmi skurðlæknanna af
andspítalanum, ef þörf krefur.
Læknar eru orðnir margir á ís-
landi. Þeir þurfa hvarvetna að
vera nálægir, þar sem fólk dvel
ur langdvölum við 9törf sín, en
ekki aðeins á sjúkrahúsum og
læknastofum höfuðborgarinnar.
Lögreglan flutt
Nýverið flutti lögreglan á Ak
ureyri aðsetur sitt úr gömlu,
litlu lögreglustöðinni við Smára
götu í myndarlegt nýtízkuhús
við Þórunnarstræti.
Ölstrídi
í Sv/Jb/oð
lýkur
Mikil og hörð barátta hefur
verið háð í Svíþjóð frá síðustu j
áramótum eða lengur um sölu
á sterku öli í landinu. Sterkt
öl heíor lengi verið bruggað og
selt í Svíþjóð, en eingöngu selt
frá áfengiseinkasölunni, eins
og annað áfengi, og á stöðum,
sem fengið hafa heimild hins
opinbera til sölu eða veitingar
áfengra drykkja.
Fyrir rúmlega hálfu ári var
gerð nokkur undanþága frá lög
um og reglugerðum í þessum ;
efnum vegna voldugrar sóknar
ýmissa þeirra aðilja, sem kröfð j
ust frjálsrar sölu á sterku öli.
Var því óspart haldið fram, að
öl væri tiltölulega meinlaus
drykkur og neyzla sterkra
drykkja (brennivíns) myndi !
minnka að miklum mun. Sú
staðhæfing kemur hins vegar
algerlega í bág við reynslu Norð
urlandaþjóðanna, því að mörg
undanfarin ár sýna opinberar
skýrslur, að neyzla sterkra
drykkja hefur farið þar vaxandi
þrátt fyrir mikla ölsölu. Gildir
þetta jafnt um Danmörku, Finn
land, Noreg og Svíþjóð.
Undanþágan var fólgin í því,
að leyft var að selja sterkt öl á
frjálsum markaði í tilrauna-
skyni um óákveðinn tíma í
þremur ömtum eða lénum í Sví
þjóð: Gautaborg, Báhus og
Vermalandi, Talið er, að alls
hafi ölið verið selt í 2200 verzl-
unum í þessum þremur ömtum
eða landshöfðingjaumdæmum.
Reynslan varð mjög neikvæð.
Ölsalan óx stórlega frá því, sem
hún var, eða varð samkvæmt
blaðafréttum átta sinnum meiri
í Gautaborg, en 15—16 sinn-
um meiri í Vermalandi. ^
Hófst fljótt mikil gagnrýni á
þetta hömlulausa sölufrelsi á
sterka ölinu. Voru skólayfirvöld
in þar í fararbroddi, en flest á-
hrifamestu dagblöð landsinS
veittu þeim öruggt brautargengi.
í ljós kom, að drykkj uskapur
bama og unglinga var að verða
alvarlegt vandamál. Gekk víða
svo Ingt, að á skólaskemmtun-
um og samkomum nemenda var
mikill hloÞ nemendanna ofur-
ölvi.
Gagnrýnin á þetta ölævintýii
fór því stöðugt vaxandi, Þótti
rikisstjórninni að lokum mælir
inn fullur og mun hafa talið full
reynt um þessa tilraun. Um
mánaðamótin júní/júlí gaf hún
svo út stjórnarúrskurð um mál'
ið og tilkynnti, að tilráuninni
um frjálsa sölu á sterku öU ,
skyldi hætt frá og með 15. júU
1968. T 1 '
Saga þessa ölmáls í Svíþjóð
er lærdómsrík, því að réynslan
er ólýgnust.
Áfengisvarnaráð.
4) Verkamaðurinn
Föstudagur 6. sept. 1968