Umferð - 01.11.1964, Side 6
TRABANT 601.
undirlyftur, sem oft þarf að stilla, engan kambás eða
olíudælu og þarf aldrei að óttast að vélin bræði úr sér,
svo fremi sem ekki gleymist að blanda olíu í benzínið,
sem nú fæzt blandað á mörgum benzínstöðvum í
Reykjavík.
Trabant 601 er léttur og lipur í akstri, sætin allgóð,
framstólarnir færanlegir fram og aftur, með stillan-
legu baki og nægilega hátt til lofts fyrir sexfetunga,
sem ekki verður sagt um alla nýja smábíla. En ekki
vildi ég þó feðrast langt í aftursæti, því fótarými er af
skornum skammti, séu tveir stórir í framsætum.
í reynsluakstrinum reyndum við bílinn að sjálf-
sögðu við ýmsar aðstæður. Þetta var á sunnudags-
morgni í rigningu og allar malargötur krökkar af hol-
um. Við ókum bílnum upp fyrir Grafarholt og þönd-
um hann í áttatíu kílómetra hraða og hann lá merki-
lega vel og var þýður, á holóttum veginum, enda er
hann framhjóladrifinn. Vinslan er einnig góð. Við vor-
um þrír í bílnum, sennilega samtals um 260 kíló, en
samt lék hann sér að fara á þriðja gír upp Ártúnsbrekk-
una og missti aldrei hraðann niður fyrir 40 km. Hann
er fjögurra gíra og eru allir gírarnir samstilltir. Gír-
stöngin er í mælaborðinu og býsna þægileg, þegar
maður er kominn upp á lagið með hana.
Hemlar eru léttir og sagðir sjálfstillandi, handhem-
ill er milli stólanna. Hann er með þverfjaðrir að aftan
og framan, léttur í stýri.
Að útliti er bíllinn fremur snotur, og þessi nýja gerð
er mun skemmtilegri en eldri gerðin, Trabant 600. Rúð-
ur hafa stækkað verulega og er útsýni gott úr bílnum,
hann hefur fengið heilan stuðara að framan, en stuð-
arar eru málaðir, hurðarrúðurnar eru nú með upphal-
ara. I verðinu, sem er 80.000 krónur, fylgir miðstöð,
sem sögð er hafa batnað um 50%, rúðusprauta, tveir
útispeglar fyrir utan innispegil, tvær sólhlífar, gólf er
allt teppalagt, með gúmmímottu undir fótum öku-
manns og blaðavasar eru innan á hurðum.
Mælaborðið er hvorki stórt né merkilegt. Aðeins
hraðamælir og kílómetramælir og tvö ljós, annað sýn-
ÖKUMENN!
Það er þægilegt að verzla í NESTI.
NESTI er verzlun ökumanna. Engin hlaup út í misjöfnu veðri.
MUNIÐ að NESTI er alltaf á leið yðar, þegar þér akið úr
bænum, því að NESTI er bæði í Fossvogi og við Elliðaár.
NESTI HF.
6
UMFERÐ