Umferð - 01.11.1964, Qupperneq 10
NUAT ÞINGIÐ 1964
Aðalþing Norðurlandasambands bindindisfélaga
ökumanna — NUAT’S — var í ár haldið á íslandi 8.
júlí síðastliðið.
NUAT, sem er norræn samtök BFÖ félaganna á
Norðurlöndum heldur þing annað hvert ár, en í þetta
sinn voru liðin þrjú ár frá síðasta þingi, er stafaði af
því að í ár voru liðin 30 ár frá stofnun sambandsins
og 10 ár frá stofnun BFÖ á íslandi og hafði á síðasta
þingi verið ákveðið að minnast sameiginlega þessara
tug-afmæla með þinghaldi í Reykjavík.
Forseti Norðurlandasambandsins, Norðmaðurinn
Sigurd Jóhansen, setti þingið og greindi frá starfsemi
sambandsins frá síðasta þinghaldi.
Að loknu kjöri á starfsmönnum þingsins, fluttu full-
trúar skýrslur sínar.
í skýrslum fulltrúanna kom glöggt í ljós, að sam-
tökin hafa átt að fagna auknum vexti á undanförn-
um árum.
Félagsmannatal í Svíþjóð er nú um 150.000, og í
Noregi um 30.000, en alls eru innan Norðurlandasam-
bandsins — NUAT’S — um 250.000 félagsmenn.
Hlutverk sambandsins hefur verið margþætt og
mikilsvert. Það hefur unnið mikilyæg störf varðandi
umferðareglur og umferðarlöggjöf. NUAT hefur mjög
beitt sér fyrir samræmdum umferðareglum á Norður-
löndum t.d. að þar verði alls staðar tekinn upp hægri-
handarakstur.
Þá hefur sambandið komið á gagnkvæmum réttind-
um milli þátttöku landanna varðandi t.d. lögfræði-
lega og tæknilega þjónustu, ferðamál, þ.á.m. afslátt
á tjaldleigusvæðum og hótelum eða mótelum.
í skýrslum fulltrúa hinna ýmsu landa kom fram
meðal annars:
MHF (BFÖ) í Svíþjóð er stærsta félagið innan
NUAT og það öflugasta. Ansvar — tryggingafélag
bindindismanna í Svíþjóð er afar öflugt og fjölgar þeim
löndum sífelt þar sem slík tryggingastarfsemi er upp
tekin.
MA (BFÖ) í Noregi er í örum vexti. Félagið gefur
út myndarlegt mánaðarrit — Motorföraren. Það efnir
til góðaksturkeppni á ári hverju á fjölmörgum stöð-
um í landinu. S.l. 3 ár hefur félagið haldið 300 sinn-
um góðaksturskeppni og hafa um tíu þúsund bílar
tekið þátt í þeim.
Góðakstursstarfsemi félagsins nýtur mikils álits
hjá ráðamönnum norsku þjóðarinnar og veitir norska
ríkið álitlega fjárhæð til þessarar starfsemi.
BFÖ í Danmörku og Finnlandi eru einnig vaxandi
félög, þó að starfsemi þeirra sé ekki jafn mikil og BFÖ
í Noregi og Svíþjóð.
BFÖ á íslandi hefur verið vaxandi félagsskapur,
sem nú telur um 800 félagsmenn í 11 deildum og sex
hópum áhugamanna.
Það hefur all oft haldið góðaksturskeppni, gefið út
blöðin Umferð og Brautina, stofnað tryggingafélag
bindindismanna — Ábyrgð h.f. Félagið hefur jafnan
átt að fagna góðu samstarfi við samtök og einstaklinga
sem að umferðarmálum vinna m.a. lögreglu, bifreiða-
eftirlit og Slysavarnafélag íslands, en í samvinnu við
það lét BFÖ þýða og gefa út hina stórmerku bók „Mað-
urinn við stýrið. Þá hefur samstarf BFÖ og annara
bindindissamtaka í landinu verið mjög góð, einkum
þó við íslenzka ungtemplara, en þeir og BFÖ
efndu m.a. til mjög myndarlegrar umferðar-. og
bindindismálasýningar í Reykjavík árið 1961 og ann-
arar slíkrar s.l. sumar í sambandi við aðalþing
NUAT’S. Form. BFÖ á íslandi hefur verið frá upp-
hafi Sigurgeir Albertsson, trésmíðameistari og ritari
þess Ásbjörn Stefánsson læknir.
Form. íslenzkra ungtemplara hefur verið frá upp-
hafi séra Árelíus Níelsson.
Á aðalþinginu var mjög rætt um framtíð Norður-
landasambandsins. Stjórn sambandsins leit svo á, að
þeirrar aðstoðar, sem veitt hefur verið einstökum fé-
lögum væri ekki lengur aðkallandi, en í framtíðinni
bæri að leggja meiri áherzlu á mót formanna og fram-
kvæmdastjóra BFÖ | félaganna, norræna fundi for-
mannanna og sérstök norræn mór fyrir deildarfor-
menn, leiðtoga fræðsluhringa, æskulýðsleiðtoga o.s.frv.,
og að stofnað verði sérstakt málgagn í þessu augnamiði.
Undir umræðunum kom fram, að rétt væri að BRÖ
samtökin á Norðurlöndum tækju meiri þátt í alþjópa-
samtökum BFÖ og var samþykkt að þegar færi frám-
athugun á því, hvernig þetta mætti verða og að skap-
aður yrði fjárhagslegur grundvöllur fyrir breytihg-
unni, þ.e. að ekki sé bæði Norðurlandasamband og al-
þjóðlegt samband heldur aðeins eitt alþjóðlegt.
Ákveðið var að mál þetta yrði tekið upp að nýju
með haustinu.
1 sambandi við aðalþing Norðurlandasambandsins
10
UMFERÐ