Umferð - 01.11.1964, Qupperneq 13
Margar breytingar á vinsælum bílum
Volvo, Volkswagen og SAAB koma fram með nýjungar
Á hverju hausti opna bílaverksmiðjurnar „hinn
leyndardómsfulla kistil“ og bílakrítikerar fá tækifæri
til að sjá, hvort tilgátur þeirra og spár voru réttar eð-
ur ei Víða erlendis og reyndar nú orðið einnig hér-
lendis, eru skrifaðar langar greinar um væntanlegar
breytingar og nýjungar á bílagerðum og ýmsar tilgát-
ur og fullyrðingar koma fram, löngu áður en bílafram-
leiðendurnir sjálfir afhjúpa hinar nýju gerðir. En á
haustin koma í dagsljósið nýjar bílagerðir og bíla-
sýningar, sem safna að sér stórum hóp áhugamanna,
sem eru jaínvel enn spenntari að sjá hin nýjustu bíla-
módel en konurnar eru við opnun tízkusýninga á nýj-
ustu fatamódelum í París!
Að þessu sinni ætlum við að kynna nýjungar á þrem
vinsælum bílum, Volkswagen 1200, Volvo Amazon og
SAAB.
Volkswagen 1200.
Volkswagenverksmiðjurnar hafa ávallt haldið sig
fast við þá reglu að breyta ekki vegna breytinganna
einna saman, enda hefur lag VW haldist óbreytt að
mestu frá öndverðu. Þó hafa smá breytingar oft verið
gerðar, sem glatt hafa eigendurna og ekki rýrt endur-
söluverð. Endurbætur á 1965 árgerðinni eru í stuttu
máli þessar: Framrúða ívið bogin og stærri, aðrar rúð-
ur stækkaðar einnig, útsýni bætt um 15%. Nýjar
stærri þurrkur, nýtt bak á aftursæti, sem má leggja
niður og auka þannig farangursrými mikið, þegar
tveir ferðast í bílnum. Mjórri bök eru á framstólum
og fótarými meira aftur í. Ný vindrúða, ný tvö hand-
föng fyrir hitastillingu, sem stilla má hitastraum með
aftur í bílinn eða fram í. Og vélarhlíf opnast nú með
hnapp.
Volkswagen 1200 kostar nú kr. 133.310.00.
Volvo Amazon.
Fljótt á litið er ekki gott að sjá breytingarnar á
Volvo Amazon 1965, í sjálfu sér hefur útlit hans ekk-
ert breytzt frá því hann kom fyrst á markaðinn árið
1957. Þó hafa ýmsar þýðingarmiklar endurbætur ver-
ið gerðar á vagninum og þær mestu urðu nú á þessari
nýju árgerð. Volvo Amazon hefur átt miklum vinsæld-
um að fagna á undanförnum árum og hefur sala sí-
fellt farið vaxandi, meðan sala á eldri Volvonum
PV 544, hefur farið minnkandi. Hafa verið uppi ýms-
ar getgátur um að framleiðsla á PV 544 muni hætta
og í stað hans komi nýr vagn. En ekkert bólar á hon-
um enn. Þó höfum við frétt, að Volvo væri að smíða
nýja verksmiðju og ætti í henni að hefjast framleiðsla
á nýjum Volvo, sem verði stærri en Amazon. En um
sannleiksgildi fréttarinnar viljum við engu spá. Hér á
landi hafa menn tröllatrú á Volvo, og ekki af ástæðu-
lausu, því hann hefur reynst afbragðsvel og endur-
söluverð verið hátt. En hann þykir dýr.
Breytingar á 1965 árgerðinni eru þessar helztar:
Framh. á bls. 18.
U M F E R Ð
13