Umferð - 01.11.1964, Síða 16
UMFERÐ
Tímarit Bindindisfélags ökumanna
um umferðarmál.
Ábyrgðarmaður:
Sigurgeir Albertsson.
Ritnefnd:
Framkvæmdaráð BFÖ.
Skrifstofa blaðsins og Bindindisfélags
ökumanna, Laugavegi 133.
Sími 1-79-47.
Prentsmiðjan Prentfell h.f.
____________________________________
Þessir menn sigruðu í góðaksturskeppni á Akureyri 1963. F. v. Páll Garð-
arsson, Níels Hansson og Ingi Þór Jóhannsson. (Ljósm.: E. D.)
bindindismenn I
Iryggiö bllinn
hjá
það borgar sig!
ÁBYRGÐ"
Tryggingalélag bindindismanna
Laugavegi 133
Símar 17455 — 17947
Frá deildiim
og félagsstarfi
Ekki er hægt annað að segja en
að áfram hafi miðað í rétta átt. Fé-
lögum hefur fjölgað, sumstaðar
mjög verulega, svo sem í Útnes-
deild, þar sem 12 nýir félagar hafa
bætzt við á árinu. Er það tiltölulega
mjög mikil fjölgun, enda harðdug-
legur, ungur hugsjónamaður fyrir
deildinni, Stefán Jóhann Sigurðs-
son, trésmiður í Ólafsvík. Deild
þessi nær nú orðið til Hellissands.
Hafa svo margir gerst þar félagar,
að Stefán mun hafa í huga að
koma þar upp sérstakri deild hið
fyrsta.
Á Siglufirði er Guðmundur
Kristjánsson, járnsmiður fyrir
hópnum, en þar hefur ekki enn ver-
ið mynduð deild, enda þótt félaga-
fjöldinn sé orðinn þar svo mikill, að
stofna mætti þar, hvenær sem vill,
eina af stærstu deildum Bindindis-
félags ökumanna. Guðmundur er
félagi, sem um munar.
í Húsavíkur-, Akureyrar-, ísa-
fjarðar- og Akranes-deildum hefur
og fjölgað, en hlutfallslega minna
en á fyrrnefndum stöðum. I Reykja-
vík fjölgar jafnt og þétt, en síst
meira að tiltölu en annars staðar. t
höfuðstaðnum er þó mikinn akur að
plægja og gæti félagstalan vafalítið
orðið margföld á við það, sem nú er,
þó ekki næðust inn nema nokkur
hluti þeirra, sem til greina geta
komið.
Annars staðar hefur félagatala
eiginlega staðið í stað. Ein deild,
Árnessýsludeildin hætti alveg
starfsemi, en það var minnsta deild
félagsins. 1 Borgarfirði leystist
deildin upp, en fólkið er áfram fé-
lagar í BFÖ. Sama mun sennilega
verða með Gerðadeildina. — Til
greina mun koma að sameina Hafn-
arfjörð og Reykjavík í eina deild.
Á Hólmavik og víðar eru nokkrir
hópar félaga, en ekki hafa verið
stofnaðar deildir þar enn og óráðið
hvað gert verður á næstunni.
Góðakstrar voru haldnir tveir á
s.l. ári, á Akureyri í ágúst og í
Reykjavík í september. Báðar þess-
ar keppnir heppnuðust mjög vel. Á
þessuári hafa engir góðakstrar ver-
ið haldnir, enda þótt okkur sé kunn-
ugt um, að einar fjórar deildir hafa
áhuga á því að koma þeim á, sem
föstu, árlegu félagsstarfi.
16
UMFERÐ