Umferð - 01.11.1964, Síða 18
• • •
Margar breytingar
Framhald af bls. 13.
Hvað ytra útlit snertir, þá hefur hann fengið nýja
vatnskassahlíf, nýjar gataðar felgur og ryðfría hjól-
koppa. Hyðvörn hefur verið endurbætt og undirvagn-
inn galvaniseraður að hluta. Diskahemlar eru á fram-
hjólum. En merkilegasta nýjungin er þó framstólarnir,
sem eru gerðir í samráði við læknasérfræðinga og hafa
færanlega hryggstoð. Þegar ökumaður eða farþegi
þreytist í mjóhrygg þarf hann ekki annað en skrúfa
takka á hlið sætisins til þess að stilla bak sætisins
þannig, að það passi sem bezt fyrir bakið. Áklæðið á
stólnum er úr nýju efni, ofnu vinyl, sem er riflað eft-
ir miðju. Áklæðið virðist vera sterkt og auðvelt að
halda því hreinu. Armpúði er nú í miðju aftursætis-
baki og hitakerfi aftur í vagninum hefur verið endur-
bætt.
Verð á Volvo Amazon er tveggja dyra kr. 221.000.00,
fjögurra dyra kr. 224.000.00.
SAAB.
1 heimalandi sínu, Svíþjóð, er SAAB einn aðal-
keppinautur Volvo um heimasöluna, en Volvo hefur
alltaf haft betur, enda eldri og fastari í sessi. Fyrstu
sjö mánuði þessa árs voru skráðir 22.350 nýir Volvo
Amazon í Svíþjóð (18.991 á sama tíma í fyrra), 15.992
nýir SAAB (15.909 í fyrra) og 15.182 nýir Volkswag-
en 1200 (17.181 í fyrra). Eins og sjá má af þessum töl-
um hefur Volvo Amazon unnið á 3.360 vagna meðan
SAAB eykur söluna aðeins um 727 vagna. (Á þess-
um tíma minnkaði salan á Volvo PV 544 og P210,
station, um 1010 vagna). Eins og að framan segir kom
Volvo Amazon fram með þýðingarmiklar endurbæt-
ur nú í haust, sem án efa mun enn auka söluna.
Sem svar við þessari harðnandi samkeppni kynnti
SAAB nú í haust breyttan og endurbættan vagn, ár-
gerð 1965. Hafa verið gerðar miklar breytingar á fram-
hluta þessarar nýju gerðar, sem gerir hana bæði ný-
tízkulegri og rennilegri en áður var. Vélarhúsið hef-
ur verið lengt um 14 cm. ný vélarhlíf (grill) og nýtt
vélarlok, sem gefur vagninum fallegri svip. Nýir stuð-
arar eru að framan og aftan og hefur stuðarasvunt-
um verið sleppt. Vatnskassinn hefur verið færður fram
fyrir vélina og kælikerfið endurbætt, þannig að kæl-
ingin verður fullkomnari og vélin hitar sig fyrr upp.
Þá hefur miðstöðvarkerfið verið endurbætt, en það
þótti gott í eldri gerðinni. Nýtt útblásturskerfi er á
bílnum, sem gerir gang vélarinnar hljóðminni og þýð-
ari. Vökva-kúplingskerfi hefur verið komið fyrir og
nú eerð benzíndælu. Beygjuradíus minnkaður. Vélin
er áfram þriggja strokka tvígengisvél og hefur orka
hennar verið aukin um 2 hestöfl, eða í 44 SAE hestöfl.
Petalar eru nú af hangandi gerð, sem er góður kost-
ur, því þá losnar maður við göt í gólfinu, sem vatn og
aur vill svo gjarnan setjast í.
Allt fyrir öryggið auglýsir SAAB. Hann hefur tvö-
faldar bremsur, þannig að þó að bremsurör springur
eða eyðilegst á annan hátt, þá missir hann ekki nið-
ur allar bremsur, tvö hjól halda alltaf fullum brems-
um. Þá hefur hann stálbita í framgluggaumgjörð,
þannig að þó vagninn lendi á toppnum, á hann ekki að
geta dældast inn að neinu ráði.
Verð á SAAB 96 fólksbíl er kr. 168.050.
Umhverfis jörðina
Framhald af bls. 14.
einnig hafið framleiðslu á nýjum
smábíl, Fiat 850, sem er eins og
aðrir Fiat smábílar með vélina að
aftan. Annars er þessi nýi Fiat
nokkurs konar stækkuð útgáfa á
Fiat 600.
Volkswagen æ vinsœlli í
Bandaríkjunum.
Það er lítið lát á vinsældum
Volkswagen í Bandaríkjunum. Ár-
ið 1963 var hann 10. söluhæsti bíll-
inn þar og langmest seldi innflutti
bíllinn, því það voru hvorki meira
né minna en 240.143 nýir VW
skráðir þar í landi á síðastliðnu ári.
Sá innflutti bíllinn, sem næstur
honum komst var hinn franski
Renault, sem hefur um áraraðir
haldið öðru sætinu þar vestra, en
22.621 Renault voru skráðir í
Bandaríkjunum 1963. Og enn eykst
innflutningurinn á VW, því sam-
kvæmt síðustu fréttum setti hann
nýtt met í sölu til Bandaríkjanna
fyrstu sex mánuði þessa árs, eða
156.456 nýir vagnar í stað 138.487
á sama tíma í fyrra. Aukningin
nemur 13%.
18
UMFERÐ