Alþýðublaðið - 18.01.1964, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 18.01.1964, Blaðsíða 8
Með Gísla Sigur- björnssyni SKÖMMU fyrir hádegi var lagt af stað auslur til Hveragerðis þeirra erinda að skoða nýjung í elliheimilismálum, sem Gísli Sig- urbjörnsson, forstjóri hefur hrint í framkvæmd. Starfsemi þessi er kölluð samhjálp eldra fólksins og verður nánar sagt frá henni hér á eftir. Einnig var komið við í gróð- urhúsunum, sem rekin eru í sam- bandi við elliheimilið, en þar eru kaffitré, sem eru að byrja að bera ávöxt, líklega ein af þeim fyrstu hér á landi. Vegurinn austur fyrir Fjall var eins og oft vill verða á þessum árstima þegar einhverjar rigning- ar hafa verið sérlega holóttur og oft tafsamur yfirferðar. Og ekki bætti úr skák, að þegar við vorum á ferð þarna var hvassviðrið það mikið, að bílstjóranum þótti ekki vænlegt að láta vinnukonurnar ganga nema andartaksstund í einu af ótta við að þær fykju út í loftið. það var engiijn snjór á Hellisheið- inni nema örlitlir skaflar á stöku stað og allir lækir kolmórauðir eins og í vorleysingum. í helztu skíðahrekkunni við skálann var ekki snjóblettur og ekki var hjá því komizt að velta fyrir sér vanda- málum skíðamanna hér á Suður- landi. Hér búum við á nyrstu mörkum hins byggilega heims, en það tekur því varla að eiga skíði, því að ekki gefst tækifæri til þess að nota þau neins staðar nálægt bænum nema endrum og eins og oft tæplega það. En áfram var ek- ið og þrátt fyrir slæman veg kom- umst við óhappalaust til Hvera- gerðis. Þar blasir við okkur ein- kennileg staðreynd. Vegirnir í þorp inu sjálfu eru holóttari og enn verri yfirferðar heldur en þjóðveg urinn, sem liggur til þorpsins, og ekki bætir úr skák að sé ekki í þessa mörgu og stóru polla ekið með mikilli gát er hætta á að slettist á saklausan vegfaranda, sem í örvæntingu hallar sér upp að næstu girðingu, því að göturn- ar eru flestar mjög mjóar og sam- felld girðing víða meðfram götun- um endilöngum. Við ökum í gegnum þorpið og áleiðis að elliheimilinu og sé ein- hver vafi á því hvaða hús heyri Gísla til þá er vafinn fljótlega úr sögunni, því að hans hús hafa þá sérstöðu að meðf’am girðingum eru gangstéttir. Okkur er boðið að borða nýja ýsu og með kaffinu eftir matinn byrjar Gísli að segja okkur frá samhjálp gamla fólksins og um TEXTI og MYNDIR: KARL GRÖNVOLD leið og kaffinu er lokið, leggjum við af stað til að skoða með eigin augum aðbúnaðinn. Þetta er vist- legt einnar hæðar hús með tepp- um út í öll horn. Þarna er hug- myndin að fjórar eldri konur búi saman og hugsi um sig sjálfar að miklu leyti og aðstoði hver aðra eftir föngum, en undir umsjón elliheimilisins, sem einnig legg- ur þeim til efni til matargerðar. Hver íbúi hefur sitt eigið herbergi en svo er sameiginlegt eldliús, setustofa og þvottahús. Þegar eru tvær konur fluttar í húsið og eru þær hinar ónægS- ustu með aðbúnaðinn og dvölina. Og á meðan við sitjum í setustof- unni og spjöllum við þær segir Gísli okkur að nú sé rúm fyrir tvær í viðbót. Eliiheimilis Ás í Hveragerði. — Vantar þriðja og f jórða mann í vist, segir hann og kímir. Eftir að hafa kvatt gomlu kon- urnar förum við að skoða gróður- húsin og kaffibaunirnar. Á leið- inni inneftir gróðurliúsinu sýnir hann okkur sítrónutré, sem þegar ber margar sítrónur misjafnlega mikið þroskaðar. Sumar eru enn grænar en aðrar eru orðpar gul- ar og líta út fyrir að veraí svo til þroskaðar. Þarna er einhig röð af bananatrjám á mismunandi stigi. Sum eru með klasa af full- vöxnum ávöxtum en önnur stutt komin upp úr jörðinni. Af þess- um trjám koma meira en 20 kíló af bönunum á 10 mánaða fresti. í afhýsi í enda gróðurhússins eru kaffitrén 10 talsins. Þau eru um það bil einn metri á hæð og á einu þeirra eru kaffibaunirnar byrjað- ar að myndast. En tilsýndar eru þær á stærð við fremsta köggnl á fingri, rauðgrænar á lit. Trén eru nú orðin 6 ára gömul og nú má bú- ast við að þau fari öll að bera á- vöxt. Þarna inni hjá kaffinu er líka fleira, vanilla, sem er klifurjurt, og ananas. Þegar við komum þavna út, sýnir Gísli okkur nýlega rann- sóknarstofu, sem er þarna í sam- bandi við gróðurhúsið, búin öllum nauðsynlegum tækjum. Síðan göngum við í gegnum húsin og sjá- uni fullt hús af rósatrjám og ým- iss konar blóm og kaffiplöntur frá Ghana, sem eru nú um tveggja ára gamlar. Þessari hringferð lýkur svo með því að við setjumst inn í það, sem Gísli kallar gestahús eða dúkkuhús, en það er lítið tveggja herbergja hús, sem hann leigir ut helzt göm’u fólki til stuttrar dval- ar. En einnig mun vera hægt fyrir þá aðra, sem þurfa að hvíla sig í ró og næði í nokkra daga, að fá þar inni. Og þarna inni höldum við áfram að spjalla. Gísli ræðir nokkuð um þá miklu fjölgun sem orðið hefur á gömlu fólki, en nú er meðalald- ur karla hér á landi orðinn 71 ár en kvenna 75. -— Það verður að gera einhverjar ráðstafanir áður en allt fer í hnút. Og sam- hjálp gamla fólksins virðist vera leið, sem er vel fær fyrir okkur. Enda er oft verið að tala um að það þurfi að liagnýta þá starfs- krafía, sem gamla fólkið býr yfir. Og þarna er dvölin 50 krónum ó- dýrari á dag. Það er algjör misskilningur, að elliheimili þurfi að vera mjög stórar stofnanir. Það sem við þurf- um eru fleiri minni elliheimili út um allt land, og samhjálpin virð- ist vera lausnin. — Mín von er sú, að kirkjan og söfnuðirnir taki málið í sínar hend- ur og leiði það til farsælla lykta. — En vilja ekki flestir vera í Reykjavík, þar sem flestallir eiga einhver skyldmenni? — Jú, jú, glaumurinn dregur alla til sín, bæði unga og gamla. En oft kemur það fyrir, að ég fæ fólk til þess að dvelja hér í Hvera- gerði á meðan það er að bíða eftir plássi fyrir sunnan og iðulega fer það svo, að það vill ekki héðan fara. Og með heimsóknirnar. Hingað kemur fólk í heimsókn úr Reykjavík og notar ferðina sem einskonar skemmtiferð og dvelur þá allan daginn. — Hvað er starfsemin umfangs- mikil hér núna? — Nú höfum við hér 12 hús fyr- ir vistmenn og starfsfólk. Vist- menn eru nú 35 talsins og pláss Bananatré á ýmsu skeiði. 8 18. janúar 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.