Alþýðublaðið - 24.01.1964, Blaðsíða 1
Vantar 350 millj.
Jóhann Hafstcin, hcilbrigð
ismálaráðherra upplýsfcj á
fundi neðri deildar í gær, að
350 miirj. kr. vantaði til
þess að fullgera þær bygg-
ingar sem hafnar og ráð-
gerðar eru á lóð Landspít-
alans og við Borgarsjúkra-
húsið. Sjá nánar á blaðsíðn
5. Mvndin er af Borgar-
LANDHELGIN 0G FISKSÖLUMÁLIN
NORÐMENN ERU
ÁHYGGJUFULUR
NORÐMENN virðast óttast,
að Bretar og meginlandsþjóð-
irnar ætli að tengja saman
fisksölu og fiskveiðiland-
helgi, þegar Lundúnaráö-
stefnan kemur saman aftm’ í
febrúar. Kemur þessi óttí
fram í grein í Arbeiderbladet,
sem er málgagn norsku stjórn
arinnar.
í greininni segir, að Bretar
og Þjóðverjar muni vilja
tengja samninga um fisk-
markaði og fiskveiðiland-
helgi, en Norðmenn séu mjög
mótfallnir því. Síðan segir:
„Verði þetta tvennt tengt
saman, getur það orðið mjög
alvarlegt fyrir Noreg. Getur
reynzt nauðsynlegt að líta á
allt landhelgismálið í ljósi
fisksölumálanna”.
í lok greinarinnar segir:
Framh. á 10. síðu
Enn ein uppreisn
gerö í A-Afríku
FRUMVARP UM RAÐSTAFANIR VEGNA SJÁVARÚTVEGSINS
SÖLUSKATT URINN
2%
Söluskattur verður hækkaður
um 2%, úr 3% upp í 5%. Þe'.ta
mun veita ríkissjóði 310 milljónir
króna frá 1. febrúar til ársíoka
og renna 128 milljónir til frysti-
húsa, saltfisks- og skreiðarfram-
leiðenda og togara. 27 miiljónir
eiga að standa undir hlu*a ríkis-
ins af hækkun á bótum almanna-
trygginga og 55 milljónir renna
til niðurgreiðslu á verði ýmissa
lífsnauðsynja.
Þetta eru aðalatriðin í frum-
yarpi til laga um ráðstafanir
vegna sjávarútvegsins o.fl., sem
ríkisstóórnin lagði fyrir Alþingl
i gær. Eru þetta þær ráðstafanir
sem stjórnin telur nauðsynlcgar
vegna þeirra kauphækkana, sem
nýlega hafa orðið. Hafði s jórnin
lteitið að bæta hraðfrystihúsun-
um með einhverju móti 15% kaup
hækkunina, sem samið var um
fyrir jól og eru þetta efndir á því
heiti.
Samkvæmt útreikningum Fiski
félags íslands nemur útgjalda-
aukning frystihúsanna vegna 15%
liækkunarinnar, sem svarar til
5,% af framleiðsluverðmæti hús-
anna. Miðað við 1200 milljóna árs,
framleiðslu, vantar þau 62 millj.
króna.
erlenda síðan
Frumvarpið gerir ráð fyrir, að
útflutningsgjald á sjávarafurðum
sem nú er 6%, lækki á freðfiski,
saltfiski og skreið niður í 4,2%.
Jafngildir þetta 19 milljónum fyrir
frystihúsin, en 11 milljónum fyr-
ir íramleiðendur saltfiskjar og
skreiðar. Til viöbótar leggur rík-
issjóður fram 43 milljónir kr. til
„framleiðniaukningar og annarra
endurbóta í framleiðslu freðfisks"
Eru þetta samtals 73 milljónir,
þar af 11 til framleiðenda salt-
fiskjar og skreiðar en 62 milljónir
til frystihúsanna.
Þá mun ríkissjóðuf greiða til
togaranna 51 milljón á þessu ári.
Hefur nefnd skipuð þeim Davíð
Ólafssyni, Jónasi Jónassyni fram
kvæmdastjóra og Svavari Páls-
syni endurskoðenda, nýlega lok
Jið ranrjsókn :á hag togajranna.
Tadi nefndin að ekki þyrfti
minna en 3 milljónir á skip á
þessu ári. Getur Aflatrygginga-
sjóður greitt 1,5 milljónir en
fær nú 51 milljón til að standa
undir hinum helmingnum. Þá
er gert ráð fyrir að auka fjár-
framlög til fiskleitar fyrir tog-
arana um 4 milljónir króna.
Aðstoð ríkisins við frystiliúsin
verður til framleiðniaukningar og
endurbóta, sem bæta afkomu hús
anna. Er gert ráð fyrir, að styrkur
inn sé bundinn við 1964, en Stofn
lánadeild sjávarútvegsins úthluti
fénu til tiltekinna framkvæmda í
samráði við Landsbankann og
Útvegsbankann eftir reglum, sem
sjávarútvegsmálaráðherra setur.
Tekjum af útflutningsgjaldi
verður nú ráðstafað þannig: 73,4%
til vátryggingar fiskiskipa, 17,2%
til Fiskveiðasjóðs íslands, 5,9%
til Fiskimálasjóðs, 1,53% til bygg
Framhald á bls. 10
Kampala, 23. janúar
(NTB - Reuter)
HERMENN tveggja herflokka í
Uganda gerðu uppreisn í dag gegn
brezkum liðsforingjum sinum í
Jinja skammt frá Viktoríu-vatni
og rændu Felix Onama innanríkis
ráðherra þegar hann kom á vett-
vang til að ræða kröfu hermann-
anna um hærri laun.
Milton Obote, forsætisráðherra
Uganda, beindi þegar þeim tilmæl
um til Breta, að þeir sendu her-
menn til Uganda til að halda uppi
lögum og reglu. Að sögn sam-
veldismálaráðuneytisins í London
eru sjö flugvélar með brezka her-
menn þegar á leið til Uganda frá
Kenya.
• AFP-frétt frá Nairobi hermir,
að það séu aðeins hermenn í tveim
herflokkum, sem hafi gert upp-
reisn. Brezku liðsforingjarnir virð
ist hafa stjórn á öðrum flokkum
hersins.
Reuter hermir, að uppreisnar-
mennirnir, 150 til 200 hermenn,
hafi tilkynnt, að þeir muni halda
Onama innanríkisráðherra í gísl-
Framh. á bls. 10
ARANGURSLAUSIR
FUNDIR í GÆRDAG
Reykjavík 23. jan. — ÁG
Samningafundur með bifreiða-
stjórum á sérleyfislaiðum hófst
kl. 5 í dag—. Þegar blaðið fór í
prentun um miðnætti hafði ekkcrt
samkomulag náðst, og lítið miðað
í samkomulagsá t. Útlit var fyrir
að fundurinn hélda áfram citt-
hvað fram eftir nóttu.
Fulltrúat’ starfs: úlkuafélágsins
Sóknar voru á samningafundi i
dag við forráðamenn sjúkrahús-
anna. Ekkert miðaði í samkomn-
lagsátt. Sáttasemjari hefur enn
ekki fengið deiluna '.il meðferðar
en Sókn hefur boðað verkfall frá
og með 27. þ.m.
EGGERT
ÞORSTEINN
JON
SIGURÐUR
Á FUNDI Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur I kvöld kl. 8,30 verður frumvarp ríkisstjórnarinn-
ar um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o. fl. til umræðu. Munu umræðumar þar ntcö væntan-
lega snúast m. a. um kjör láglaunafólksins að verkföllunum loknum, hækkun söluskattsins,
frestun á lækkun niðurgreiðslna, hækkun tryggmgabóta o. fl. Umræðum stjórnar Eggert G.
Þorsteinsson alþm., en ræðumenn verða alþingismennirnir Jón Þorsteinsson og Sigurður Ingi-
mundarson og Þorsteinn Pétursson skrifstofustjóri. Ennfremur verða frjálsar umræður. Félags
menn eru hvattir til að sækja fundinn vel og stundvíslega.
mtHMMHMMHmMtHMMMIHHHMHMtMtWIWIíMMMttHMMHttWWMMMMMIHtMltMI
ncmmj
45. árg. — Föstudagur 24- janúar 1964 — 19. tbl.