Alþýðublaðið - 28.01.1964, Page 7
Idheimtunni
★
★
★
Miðbæmim
EskihlíÖ
Lindargötu
★ Rauðarárholti
★ Tjarnargötu
'k Kleppsholt
AfgreSðsla AEþý^ubíaðsiiis
Sítni 14 S00
Samkvæmt reglugerð um sameiginlega innheimtu opin.
berra gjalda, ber hverjum gjaldanda í Reykjavík að greiða
á fimm gjalddögum, þ. e. .1. febrúar, 1. marz, 1 apríl, 1.
maí og 1. júní, fyrirfram upp í opinber gjöld 1964, fjár-
hæð, sem svarar helrriingi þeirra gjalda, er á hann voru
lögð síffast liðið ár. Fyrsti gjalddagi fyrirframgreiðslu er
því 1. febrúar.
Fjárhæð fyrirframgreiðsru Var tilgreind á gjaldheimtuseðli,
er sendur var gjaldendum að lokinni álagningu 1963 og
verða gjaldseðlar vegna fyrirframgreiðslu því ekki sendir
út nú.
Ai'greiðsia gjaldheimtunnar í Tryggvagötu 28 er opin
mánudag — fimmtudaga kl. 9.—16, föstudaga kl. 9—16 og
17—19 og iaugardaga kl. 9—12.
Cjaldheimtustjórinn.
vantar unglinga til að bera blaðið ti.1 áskril-
enda í þessum hverfum:
Útför móður okkar
Emilíu KófoGd-ííansen
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudagirtn 29. þ.m. kl. 14.00.'
Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum.
Sigrríður Egrgertsdóttir Agnar Kofoed-IIansen.
Jarðarför móður okkar
Ragnheiðar Helgu Jónsdóttur
fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 29. þ. m. Athöfnin
hefst kl. 1 s. d. með bæn frá heimili dóttur hennar, Sólheímum,
Grindavík.
Ferð verður frá Bifreiðasiöð íslands kl. 11,30 árd.
Börnin.
Hjartans þakkir viljum við færa öllu hinu mæta fólki og fé-
lögum, sem auðsýndu okkur vináttu og samúð við andlát og jarðar-
för okkar kæra eiginmanns, föður og fósturföður
Eiríks Einarssonar
Guð blessi ykkur öll.
Árni Eiríksson
Sigríður Olafsdóttir
Jón Eiríksson Sig:ríður Árnadóttir.
1964 móde'ið af DAF, holl-
enzka smábílnum er nú komið
á markaðinn hér. Þóit ekki sé
langt síðan farið var að flytja
þessa bíla inn hér, hafa þeir
áunnið sér miklar vinsældir
hér, sem reyndar annars stað-
ar.
DAF, sem raunar heitir
íullu nafni Daffodil, en það
þýðir páskali.ja, kemur nú ýrhs
um betri kostum búinn en
fyrr. Endurbæuxr og breyting-
ar eru 40 talsins,. og yrðí of
langt mál að geta þeirra allra
hér og skulu aðeins þær
helztu taldar.
Þakinu hefur verið lyft að
aftan, þannig, a'ð betur fer nú
um hávaxna farþega afcur í
bíinum og sömu leiðis hefur
útsýni batnað, því jafnframt
hafa fram- og afturrúður verið
stækkaðar að mun. Hægt er
nú að fá DAF með opnanleg-
um hliðarrúðum að aftan.
Einn þann kost hefur DAF til
að bera, sem hér hlýtur að
reynast þungur á metunum.
Hann er sá að á bílnum er ekk-
ert króm. Ekki ber þó að
skilja þetta svo, að hann sé
skrautlaus með öllu, heldur er
það sem á venjulegum bílum
er krómað, úr ryðf'ríu stáli og
þarf því engar viðhaldsáhyggj-
ur að hafa þess vegna. Þetta
er virsulega stór kostur hér
á landi þar sem allt króm cyði
leggst fyrr eða síðar nema því
sé sýnd sérstök natni.
Þá hafa sætin verið endur-
bætt, og eru þau nú mun þægi-
legri en áður, meira stoppuð
og veigameiri til að sjá. Mæla
borði hefur verið gjörbreytt.
Stefnu;jósarofi er á dálítið ó-
venjulegum stað, stöng út úr
borðinu liægra megin við
stýrið. Þetta er dálítið ó-
venjulegt, en sennilega þægi-
legt þegar til lengdar lætur.
Eini gallinn er,að stefnuljós-
in fara ekki af sjálfu sér, þeg
ar stýrið er rétt af. Rofinn
fyrir háu Ijósin er sömuleið-
is stöng út úr borðinu vinstra
megin við stýrið. Mjög þægi-
legur. Rétt við hlið hans eru
rofarnir fyrir biðljós og venju
leg Ijós.
Þá her þess að geía að lijól-
barðar eru nú stærri en áður
veldur það bæði því, að bíll-
inn verður þægilegri í akstri
og eins er hann 4 cm. hærri
frá jörðu, en áður var og er
það vissulega kostur í landi veg
s'óða og troðninga.
Variomatic, sem óhætt er að
kalla undradrifið, hefur enn
verið endurbætt með tilliti til
endingar og betri skiptieigin-
leika.
Þetta eru aðeins fáar af þeim
breytingum, sem gerðar hafa
verið, aðrar helztar mætti
telja í stuttu máli: Ný gerð
blöndungs, ný gerð af út-
b'.ásturskerfi, breytt hemla-
stigshlutfall, stærri benzín-
geymir, festingar fyrir öryggis-
helti, ný gerð hitunarkerfis,
endurbætlur ráðublásari og
nýjar gerðir læsinga bæði fyrir
vélarhlíf og farangursgeymslu.
DAF mun vera einn ódýrasti
smábíllinn, sem hér er á
markaðnum, ef undan er skii-
inn austur-þýzki plastbíllinn
Trabant.
Fyrir þá, sem ekki vita, skal
þess getið, að hann er algjör-
lega sjálfskiptur, og byggist
það á ful'komnum, en samt ein
földum útbúnaði, sem nefndur
er Variomatic.
Fáanlegar eru 2 gerðir af
DAF, F2 og F3, er sú síðar-
nefnda búin ýmsum smáhlut-
um, sem ef til vill eru ekki
nauðsynlegir en samt þægileg
ar og oft illt að vera án.
Þrátt fyrir allar þessar gagn
gerðu umbætur og breyt-
ingar hefur verð DAF ekki
hækkað, heldur þvert á móti
lækkað. Hann kostar nú 124.
■200 kr., en kostaði áður 125.
000 kr. Taka má það fram, að ef
farmgjö’d hefðu ekki hækkað,
hefði verð bílsins lækkað c.nn,-
meira.
Umboðið hefur gefið út
smekklegan litmyndabækling,
og ennfremur skrá yfir þær,
breytingar sem á DAF hafa orð
ið með 1964 módelinu.
DAF-inn, sem ég prófaði nú
fyrir helgina var mjög þægi-
legur í akstri. Hemlar afbragðs
góðir og betri en á mörgum
smábílum í sama verðflokki.
Handbremsa heldur vel og virð
ist öflug. Vinnsla og viðtök
voru góð. Ef eitthvað mætti að
finna væri það ef til vill helzt
til lícið fótapláss fyrir stór-
fætta menn, en ætti þó ekki
að koma að sök því að aldrei
þarf að nota, nema hægri fót.
Ekki gat ég varizt þeirri til-
liugsun að þarna væri kominn
draumabíllinn fyrir kvenfólk,
sem aldrei, hefur getað lært á
kúplingu, en ekur samt. Þarna
þarf ekki annað en að snúa
lykiinum og ræsa bílinn og aka
síðan af stað.
Söluumboð fyrir DAF hefur
O. Johnson & Kaaber í Sæ-
túni og þar er einnig á vegum
umboðsins starfrækt verk-
stæði, sem eingöngú gerir við
DAF-bíla, og veitir þeim þá
þjónustu er þeir þurfa.
EkiII
DAF
tiiiHimiiti
.......-=T
SÆMGUR
REST BEZT-koddar
Endurnýjum gömlu sængurnar,
eigum dún- og fiðurheld ver.
Seljum æðardúns- og gæsadúns
sængur — og kodda af ýmsum
stærðum.
DÚN- OG
FIÐURIIREÍNSUN
Vatnsstíg 3. Sími 18740.
óskast strax. — Mikifl. vinna.
ByggEngaféíagiö Brú h.f.
Simar 16298 og eftir kl. 5, 17499 og 17182.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 28. jan. 1964 7