Alþýðublaðið - 02.02.1964, Side 5

Alþýðublaðið - 02.02.1964, Side 5
Fyrirmyndar frystihús I tósíss HRAÐFRYSTING fiskjar er þýð- ingarmesta atvinnugrein íslend- inga, enda byggist meginþorri f isk- veiða á þessari geymsluaðferð, og freðfiskurinn er verðmætasta út- flutningsvara þjóðarinnar. Á miðju síðastliðnu ári sneru samtök frystihúsanna sér til ríkis- stjómarinnar og kvörtuðu undan stórhækkandi framleiðslukostnaði. Töldu ráðamenn húsanna, að þau yrðu að fá einhvers konar aðstoð, ef þau ættu ekki að stöðvast. Lögðu þeir fram reikninga nokk- urra húsa þessu til sönnunar. Ríkisstjórnin kannaði málið og lét sérfræðinga sína skoða það of- an í kjölinn. Hún taldi ekki á- stæðu til að veita aðstoð, fyrr en hækkunin varð fyrir jól. Var lof- að að bæta þau 15% upp, og verð- ur það gert samkvæmt frumvarp- inu, sem varð að lögum á fimmtu- dag. Ætlunin er að veita liúsunum ekki beina aðstoð, heldur hjálp til að taka upp vinnuhagræðingu, sem bæta mundi rekstur þeirra. Er þessi aðstoð mjög umdeild, og halda margir fram, að beztu húsin þurfi enn ekki á hjálp að halda, þótt hinni smærri og lakari þurfi þess vafalaust. Hvað um það munu þau nú öll fá einhverja aðstoð til að bæta framleiðsluhætti sína. í umræðum um þessi mál hefur verið bent á, að flest eða öll frysti hús okkar væru ófullkomin eða of , litil til að géta talizt samkeppnis- ! sem ekki er klúðrað saman af van- mætti og oft vankunnáttu, eins og oft hefur gerzt hér á landi. Verð- ur að snúa við blaði og koma upp fyrst eínu fyrirmyndarhúsi hvað stærð og tækni snertir, og lóta það verða fyrirmynd hagkvæmari og arðvænlegri framleiðsluhátta. Nú er verið að gera stórhöfn á Rifi á Snæfellsnesi, og skapazt Benedikt Gröndal skrifar um helgina fær við nýjustu frystihús annarra! fiskveiðiþjóða. Eru okkar hús yfir- | leitt svo lítil, að um verulega hag- j kvæman rekstur getur ekki verið að ræða, að ekki sé minnzt á þau ósköp, þegar tvö eða fleiri frysti- hús eru í sama þorpi. Fyrr eða síðar verður þetta að breytast og hér verða að rísa hús, þar áður en langt líður ein bezta aðstaða til útgerðar á landinu. En þar er enn lítið um fiskiðjuver. Að vísu munu Ólafsvíkingar geta bjargað nokkru með tveim frysti- húsum sínum, en það er ekki til frambúðar, því þeirra floti' er myndarlegur og höfnin að lagast til muna við nýjar framkvæmdir, svo að þeir munu hafa nóg með sín frystihús að gera. Einnig er frysti- hús á Hellisandi, en frekar lítið. Er ekki tilvalíð að reisa' fyrir- myndar frystihús á Rifi? Væri ekki rétt, að heildarsamtök frysti- iðnaðarins ættu hlutdeild í mál- inu með ýmsum heimaaðilum, og sjálfsagt þyrfti hið opinbera að greiða götu fyrirtækisins. Það mætti jafnvel reyna hugmyndirn- ar um almenningshlutafélög til að fá þátttöku sem flestra. Það er gott og blessað að veita öllum frystihúsunum einhverja hýru til að liagræða rekstri sínum, en innan skamms verður að stíga j stórt skref fram um veg með því að reisa voldugt fiskiðjuver, sem fullnægir kröfum tímans. Staður- inn er tilvalinn á Rifi. Tíminn er nú og næstu misseri. Að vísu eru flestir í vondu skapi og telja fráleitt að tala um að reisa ný frystihús. Þannig dugir 1 ekki að hugsa. Ef frystiiðnaðurinn gengur ekki þá er hætt við að fokið sé í flest skjól — og því fer j víðs fjarri, að þjóðin sé svo illá stödd, þótt erfiðleikar steðji að. Einangrunargler Framleitt elnungis úr firvtk* rleri. — 5 ira ábyrgð. Pantið tímanlega. Korkiðjan h.f. Sigurgeir Sigurjónssoiö hæstaréttarlögmaður Málflutningsskrifstofa Óðinsgötn 4. Slml 11043. Sölumaður Mattliías Bílasalan BÍLLINN Höfðatúni 2 hefur híliim. P^filliveggjar- plötur frá Plötusteypunni Sími 35785. Verzlunarhúsnæði Verzlunarhúsnæði við miðbæinn, talvalið fyrir radioverzlun, ásamt verkstæði, til leigu. Tilboð merkt „Verzlunarhúsnæði“ sendist afgreiðslu Al- þýðublaðsins fyrir miðvikudagskvöld. , / Orðsending til kaupsýslumanna Á skrifstofu Verzlunarráðsins Laufásvegi 36, getið þér fengið töflur yfir hækkun útsöluverðs, vegna hins nýja söluskatts. Opið kl. 2—4 í dag (sunnudag). Verzlunarráð íslands. 16250 VINNINGAR! •Fjórði hver miði vinnur að meðallali! Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur. Lægstu 1000 krónur. Dregið 5. hvers mánaðar. Odýrar telpnagolftr ey j ur Eiginmaður minn og faðir okkar Jósteinn Kristjánsson frá Stokkseyri andaðist á Landakotsspítala föstudaginn 31. jan., síðastliðinn. Ingibjörg Einarsdóttir, börn og tengdabörn. vlð Miklatorg Hinar viðurkenndu ALKON móterdælur fyrirliggjandi í eftirtöldun* stærðum: 1“, m“ og 2“. Pantanir óskast staðfestar sem fyrst. GlSLI JÓNSSON & CO. Skúlagötu 26_Sími 11740. er nú aftur fáanleg I afgrelöslu vorri og hjá bóksölum. Innan skamms verður bókiri eninig til sölu í handunnu skinnbandi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 2. febr. 1964 5

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.