Alþýðublaðið - 02.02.1964, Page 9
R REYNOLDS, KANADiSKAN SJÓNVARPSMANN
varpsstöðvar, svo að sjónvarp-
ið nái til allra. Auk CBC eru
reknar fjöldamargar einka-
sjónvarpsstöðvar í landinu, og
mjög auðvelt er einnig að horfa
á bandaríska sjónvarpið, eins
og nærri má geta. CBC nær
bæði til frönsku- og enskumæl-
andi Kanadamanna, og er aðal-
dagskráin fyrir franska hlut-
ann unnin í Montreal, en sú
TEXTI:
HJÖRTUR PÁLSSON
MYND:
JÓHANN VILBERG
enska í Toronto. Frá þessum
tveimur borgum fara því aðal-
útsendingarnar fram, en eins
og fyrr segir er hægt að láta
þær ná til allra landsmanna
með millisendingum og endur-
varpsstöðvum. í fjölmörgum
borgum og bæjum, þ. á m.
stærstu borgum hvers fylkis
eru svo „útibú” frá CBC, og
eru unnar þar dagskrár, sem
oft eru bundnar við viðkomandi
fylki eða næsta nágrenni stöðv-
arinnar, m. a. hefur hvert fylki
fréttaþjónustu út af fyrir sig.
íslandsþáttur Reynolds verður
sendur út frá aðalstöðinni í To-
ronto.
Sjónvarpsreksturinn er mjög
dýr, en Reynolds sagði, að dag-
skrá CBC bæri af dagskrám
allra einkastöðvanna, sem hefðu
það eitt að markmiði að græða
á auglýsingum og ómerkilegu
léttmeti. Slíkt gæti opinber
sjónvarpsstöð ekki leyft sér, þó
að hún kæmist ekki hjá að
byggja að talsverðu leyti á aug-
lýsingum. CBC nyti þess hins
vegar, að af hverju sjónvarps-
tæki, sem selt er í landinu,
rynni ákveðinn skattur til
stöðvarinnar. Upphaflega hefði
verið hafður svipaður háttur á
og hér er á innheimtu afnota-
gjalda fyrir útvarp — að krefja
hvern sjónvarpseiganda um ár-
gjald, og þetta væri gert hjá
BBC, en í Kanada hefði verið
horfið frá þeirri aðferð og
skattlagning sjónvarpstækj-
anna tekin upp í staðinn. Reyn-
olds kvað ekkert þvf til fyrir-
stöðu að reisa íslenzka sjón-
varpsstöð, ef fjármagn væri
fyrir hendi, en sjónvarpsdag-
skráin væri dýrari en margir
álitu. Hins vegar varaði hann
okkur við að treysta of mikið á
auglýsingar, því að það kæmi
óneitanlega illa niður á dag-
skránni.
Peter Reynolds fer héðan
flugleiðis til London á morgun,
en hann sagðist hafa hug á að
koma hingað seinna og vildi þá
gjarnan vinna að öðrum þætti,
m. a. um Vestur-íslendingana í
Vestmannaeyjum.
ÚTSALA ÚTSALA
Hin árlega vetrarútsala hefst á morgun.
VETRARKÁPUR — TERYLENEKÁPUR —t
POPPLÍNKÁPUR — HATTAR og HÚFUR
mikil verðlækkun.
BERNHARD LAXDAL
Kjörgarði.
STÚLKÖR
óskast strax. — Uppl. í síma 17758.
NAUST, Vesturgöiu.
ULLARVINNA
Röskux iH'aður óskast til vinnu strax við ullar-
tætingu. — Nánari upplýsingar hjá verk-
stjóra.
Ullarverksmiðjan Framtíöin
Frakkastíg 8.
Afgreiðslustúlkur
Nánari upplýsingar í skrifstofunni.
Sláturfélag Suðurlands.
Sinfóníuhljómsveit
Islands
Endurnýjun og sölu áskrifarskírteina fyrir síðara misseíS
(8 tónleikar) lýkur mánudaginn 3. febrúar.
Afgreiðslan er opin frá kl. 9—12 og 1—5 í Ríkisútvarpinu,
Skúlagötu 4, 1. hæð. — Sími 22260,
Auglýsingasíminn er 149 06
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 2. febr. 1964 «$