Alþýðublaðið - 02.02.1964, Side 13
Á mánudag hefst
ÚTSALA I TOLEDO ÚTSALA
HERRAKULDAJAKKAR kr. 490.00 — HERRASKYRTUR kr. 140.00 — HERRA-
BUXUR, terylene, kr. 450,00 — DRENGJABLÚSSUR kr. 125.00 — DRENGJA-
BUXUR kr. 250,00 — HERRAVINNUBUXUR kr. 195,00 — DÖMUBUXUR
kr. 175.00 — DÖMUULLARVETTLINGAR kr. 35,00 — og margt fleira.
Ger/ð góð kaup og kaupið á útsölunni í
TOLEDO, FISCHERSUNDI
Framh. af S .síðu
nr hafa verið teidn í einu við
kandidatapróf í sögu Háskól-
ans eftir því sem prófessor
Steingrímur J. Þorsteinsson,
prófstjóri, sagði mér á dögun-
um. Það er sem sagt reiknað
með, að 3 af þessum 6 séu tek
in einu misseri fyrir kandidata
próf, eins og sex samstúdentar
mínir gerðu, en þeir ljúka sín
um kandidataprófum í vor.
— Hvað ertu þá búinn að
i vera lengi í prófum núna að
undanförnu?
— Stanzlaust frá 7. janúar.''
. Ég byrjaði á skriflegu prófun-
um sex í röð og tók þau dag-
ana 7.-18. þ.m. í vikunni þar á
eftir voru svo verkleg próf
og, síðan munnlegt próf á hverj
um degi, þangað til nú. Auk
þess sótti ég a'ltaf fyrirlestra
. norska prófessorsins í barna-
tannlækningum, Arvid Syrrist,
erfitt...
kl. 8-9 á morgnana, en hann
hefur dvalizt hér undanfarinn
hálfan mánuð og dvöl hans hér
vakið mikla ánægju meðal
tannlæknas.údenta.
— Og hvað tekur nú við?
— Vinna og aftur vinna.
Ekki veitir víst af. Ég held það
sé ákveðið, a3 ég verði við
skólatannlækningar í Mela-
skólanum fyrst um sinn. Ann-
ars ráða þeir því alveg á
Heilsuverndarstöðinni.
— Hyggurðu á framhalds-
nám?
— Já eins fljótt og ég mögu
lega get og hef efni á. Ég hef
mikinn áhuga á að læra kjálka
skurðiækningar. Það dregur
heldur ekki úr mér að fara í
þá sérgrein, að ég fékk 16
tvisvar sinnum sama dág í
verklegri og bóklegri, sér-
hæfðri handlæknisfræðí.
— Ertu ákveðinn í, livert
þú ferð?
— Ég hef lengst af haft Norð
,urlönd í huga, en nú var pró-
fessor Syrrist að benda mér á
að fara frekar til Englands.
Hann álítur, að það geti orðið
notadrýgra, svo að það gæti
býst ég við allt eins orðið úr.
— Ertu stærðfræðideildar-
stúdent?
— Nei, ég er úr máladeild.
—• Hvað viltu segja um tann
læknadeildina hér að loknu
námi þar?
— Ég vildi fyrst taka fram,
að þetta er mikið og þungt
nám og mjög tímafrekt, enda
bæði bóklegt og verklegt. All-
an tímann, sem við erum í
deildinni, byrjum við yfirleitt
kl. 8 á morgnana og komum
heim kl. 5-6 á kvöldin, og þá
er eftir að lesa. Samkvæmt
nýju reglugerðinni eru tann-
lækningar 6 ára nám, en al-
menn læknisfræði 6 og hálft
ár, svo að það er ekki eins
mikill munur á námi í tann-
lækningum og venjulegri lækn
isfræði og margir halda. Svo
er það yfirleitt wrðið þannig,
að tannlæknar leggja stund á
ýmsar sérgreinar að loknu
kandidatsprófi, og tekur það
nám sjaldnast skemmri tíma
en 3 ár, svo að þróunin er sú
sama og undanfarið hefur ver-
ið í almennri læknisfræði: allt
stefnir að aukinni sérhæfingu.
— Hvað þyrfti helzt að breyt
ast í tannlæknadeildinni?
— Fyrst og fremst þarf að
stækka deildina, því að nem-
endafjöldinn hefur vaxið
mjög. Þegar ég byrjaði var
þetta ósköp lítil og þægileg
deild, en nú er, hún orðin allt
of lítil. Það voru innan við 30
í tannlækningum þegar ég
kom í deildina, en nú eru þeir
rösklega 50. Og .auk þess þarf
að bæta við sérfræðingum í
ýmsum greinum, svo að kennsl
an nái enn betur tilgangi sín-
um. Þó stefnir þar allt í rétta
átt. Þórður Eydal kennir t.d.
tannviðgerðir og Örn Bjart-
marz tannsmíði að ógleymd-
um prófessor Jóni Sigtryggs-
syni, sem ég held, að ekki sé
ofmælt að kalla föður deildar-
innar. Þetta eru allt saman á-
gætir menn.
— Langar þig til að taka
eitthvað sérstakt fram?
— í nýju reg’ugerðinni fel-
ast ýmsar nýjungar, sem hafa
bætt deildina og menntun
tannlækna, sem þar læra, að
miklum mun. Þar má nefna
nýjar kennslugreinar, eins og
til dæmis lyflæknisfræði, al-
menna handlæknisfræði, röntg
enfræði og barnatannlækning
hn. Og námskeiðin, sem við tök
um þátt í sumarið fyrir kandi-
datspróf, bæði á handlækn-
inga- og lyflækningadeild
Landspítalans eru ómetanleg.
Við óskuðum Ómari Kon-
ráðssyni enn til hamingju með
glæsilegt próf og kvöddum
hann og fjölskylduna á Spít-
alastíg 4, enda lcominn tími
til að lofa henni að njóta gleð-
innar í friði. Kandidatinn
færði okkur staup að skilnaði.
Við skáluðum fyrir honum. Og
á stigapallinum mættum við
manni með blómakörfu.
hjp.
UTSALA UTSALA UTSALA
Opnum útsölu í fyrramálið
Olæsilegt úrval af karlmannafötum, stökism jökkum ©g stökum buxum.
MJÖG MIKILL AFSLÁTTUR
ERRAFÖT, HAFNARSTRÆTI 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 2. febr. 1964 U