Alþýðublaðið - 15.03.1964, Side 7

Alþýðublaðið - 15.03.1964, Side 7
 £jjUIUiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiMiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiii»iiiMiiMiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiuiiimniiiiiimiiil»«#iiiiiliiniMMMiiMMiiMiiiiiiiiiii»iiMUiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiUiiiiuiMiuiiiiiiiiiiiintiiiiiiiiiiMiiiMimiiiiiiiiitMJiiiiiiiii* '•uiimMMiiiiiiMiiMMiiiiHiiiiiiMiiiMiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim 6 Sl fi Pcirísarbréf fró SvÖvu Sigurjónsdóftur París, 4. marz 1964. Margt hefur verið hér efst á baugi á undanförnum riián- uði, sv.o sem endurskipulagn- ing Tharísa, neðanjarðargöng undir Ermasund, sem mun taka fimm ár að ljúka við; verið er að dæma Naessens, sem sagð- ist hafa fundið upp lyf gegn hvítblæði, og voru börn send til hans frá mörgum löndum heims; forseta- og bæjarstjórn arkosningar eru í væ'ndum og mikið ér rætt um, hvernig þær muni fara; vietnamskir stúdent ar í París hafa gefið út bækl- ing með blaðaúrklippum, sem gefa til kynna ástandið í land- inu og svo framvegis. Eitt vek- ur furðu Parísarbúa, það er hvað kuldinn ætlar að vera líf seigur í ár. Hann hverfur venju lega með febrúarmánuði. Nú verður gert smáyfirlit yf- ir fréttir mánaðarins, sem ís- lendingar geta. haft gagn og gaman af. * * * Erhard kanzlari Vestur-Þýzka lands kom 14. febrúar til París- ar til viðræðna við DeGaulle og stjór.n hans. í fylgd með Er- hard voru 5 ráðherrar, þ. á m. Gerhard Schroeder utanríkis- ráðherra, Kai-Uwe von Hassel varnamálaráðherra, Kurt Scheu cker fjármálaráðhérra, Scheel, sem hefur með aðstoð við van þróuðu ríkin að gera og margir aðrir merkir menn. Þetta er önnur heimsókn Er- hards til Parkar, eftir að hann varð kanzlari. Fyrri heimsókn- ina hefði mátt kalla kynnis- heimsókn, en í þessari voru mörg sameiginleg hagsmuna- mál tekin á dagskrá. DeGaulle gaf til kynna, að enginn skoð- anamunur hefði komið í ljós ■ í viðræðum hans við kanzlar- ann. Þeir höfðu rætt um van- þróuðu löndin og um samband þessara tveggja ríkja.. Sumir samstarfsmenn Erhards. eru í ýmsu ósammála DeGaulle, og forsetinn hefur lýst yfir því, að skoðanarmunur ríki um fyr- irkomuiag og starfsemi Atlants hafsbandalagsins, á meðan eng in hætta er á klofnun þess. De Gaulle sagði viðurkenningarorð um stjórnina i Bonn út af við- brögðum hennar við samning- unum í Brussel. Erhard gaf fii kynna samhljóða ósk sína, að . stjórnmálalegt samband Evrópu gæti orðið að veruleika, og verð skráningar muni takast í Genf. Forsetinn lýsti einnig yfir stuðningi Frakklands við end- ursameiningu Þýzkalands og í Berlínarmálinu. Kanzlari þakk- aði fyrir þessi ummæli og henti á, að vinátta Þjóðverja og Frakka hvíldi á því að sorglegir atburðir sögunnar yrðu yfir- stignir, að báðar þjóðirnar ynnu saman að sköpun voldugr ar Evrópu og á þeim stuðningi, sem Frakkar veita Þjóðverj- um við framkvæmd þjóðarmark miða. Pompidou forsætisráðherra Frakklands ræddi við Erhard um f járhagsvandamál og komu þeir þar inn á stöðugleika verð lags. í sambandj við fjárhags- ’ega uppbyggingu Evrópu var lögð rík áherzla á flutninga og orkuvandamálið, skattaálögur og löggjöf. í iðnaðarmálum þarf að tryggja fyrirtækjum sterkan starfsgrundvöll, svo að þau geti staðið andspænis er- lendri samkeppni. Mikið hefur verið rætt um DeGaulle undanfarið. Lengi hef u’* hann verið talinn fara sínar eigin leiðir í stjórnmálum, og hafa margir liJð þetta „brölt“ hans óhvru auga. Þótt margs hefði mátt vænta af honum, vavS! mörgum vestrænum stjórn málamönnum bilt við síðustu tilkynningu hans að viður- kenna stjórn Rauða-Kina. Miklar viðræður og deilur hafa orðið út af þessari viður- kenningu. -DéGaulle varð sjálf ur að þola, að Tchiang Kai- chék sliti stjómmálaSambandi við 'Frakklönd, en > það virtist ekki vera ætlun forsetans í upphafi. Tchiang og Mao standa báðir jafnfast á því, áð. þeir séu hinir einu löglegu stjórn- endur Kína, svo að ekki var um annað að ræða. Álít á De Gaulle hefur aukizt í sambandi við þetta mál og ekki sízt í Frakklandi. Sumir hafa jafnvel lagt þá spurningu fyrir sig, hvort hann færi að skipa sess mikilvægustu stjórnmálamanna heims. Hvað því um líður, þá hefur DéGaulle tekið mikla á- byrgð á herðar sínar. Nokkrir franskir þingmenn með Francois-Bénard i farar- broddi hafa haldið til Peking. Létu þeir vel af dvölinni þar, og sérstaklega tóku þeir fram, hversu bráosnjallur og skemmti legur náungi Mao Tse Tung væri. í viðtali við „Le Monde“ lýsci Chou-en-lai yfir því, að þau lönd, sem viðurkenna Rauða-Kína, þyrftu að minnast skyldna sinna hjá Sameinuðu þjóðunum, — það er að standa við hlið þess. Sung Chih-Ku- ang, hinum nýja sendifulltrúa Rauða-Ktna í París, var vel tekið. Hann er 48 ára gamall og sagður vera mjög viðkunn- anlegur og brosmildur dipló- mat. í sambandi við heimsráð- stefnuna í verzlunarmálum, sem haldin verður í Genf á vegum Sameinuðu þjóðanna 23. marz, -reynir fyrst á Frakka að standa við yfirlýsingu Chou- en-!ai,. þar sem þeir geta stutt þar með þátttöku kínverskra kömmúnista. 122 ríki taka þátt Pekingóperan sýndi í París. í þessari ráðstefnu, og eru þau öll í Sameinuðu þjóðunum eða sérstofnunum þeirra. Hún er haldin til áð koma á stöðugu verðlagi, hagstæðum verzlun- arskiptum milli ríkja, og til að hjálpa vanþróuðum ríkjum að koma vörum sínum á heims- markaðinn o. fl. Þrir fulltrúar franskra skipa smíðastöðva halda til Peking í byrjun marz-mánaðar til að at- huga möguleika á sölu þar. Þeir munu dvelja í Kína í tvær vikur. Kínverski verzlunarflot- inn inniheldur aðeins 215 skip (skv. Lloyds Rcgister of Shipp- ing), sem eru samtals 502.000 tonn að stærð. Hann er tiltölu- lega gamall, og búast má því við, að hann þurfi á mikilli endurnýjun að halda. Peking-óperan hefur nýlega dvalizt í París. Sýningar voru fáar og snemma var erfitt að fá miða nema á uppskrúfuðu verði. Hún hefur hlotið mjög góða dóma. Nærri því hvert smáatriði í henni hefur verið tekið fyrir og hrósað. Sviðs- setningin var sögð einkennast a£ meiri glæsileika og fínleika en tíðkast, hafa bókmenntagildi og guðfræðilega undirstöðu. Peking-óperan heitir- á móð- urmáli sínu Ching Hsi, sem mcrkir „höfú5borgarleikhús“. Hún var mynduð 4 sínu núver- andi formi á 19. öld, en á tíma keisaraættarinnar Ching (1644 —191-2) streymdu beztu leikar- ar landsins til höfuðborgarinn- ar, Peking. Upphaf!ega ein- kenndist þessi léikstefna af skrautleysi. Það voru jafnvel hvorki notuð leiktjöld né áhöld. Nú er hún bundin erfðavenjum í sambandi við skemmtun hirð- arinnar, og mikiff er um striðs- senur, ski-autbúninga og vel málaða leikara. Heildarbragur- inn yfir þessu leikhúsi einkenn- ist af krafti, sem brýzt ósjálf rátt fram. Já, leikstefnan ein- kennist af nákvæmni, fínleika og fjöri. Sérscakt viff sýningarnar er látbragffsleikurinn. Lítið erum söngva, en lýsing í texta, hljóð fall tónlistarinnar og þó mest leikur leikaranna framkallar hreyfingu í tíma og rúmi. Leik- ararnir eru þekkcir fyrir að vera góðir fimleikatrúðar, lodd arar og látbagðsleikarar. Þeir skiptast í karlpersónur: Ungl- inga, aldraða, skeggjaða menn og hermenn; kvenpersónur, liverra hlutverk eingöngu karl menn léku fram á 18. öld: Ung ar konur, miðaldra- og valkyrj- ur: og skopleikara, sem hafa litað andlit: Hetjur, ræningja o. fl. Farði, skegg, látbragð, radd brigði og hljóðfærategundir hafa táknræna merkingu. í sam bandi við farða merkir hvítt: skort á ráðvéndni, hræsni ög svik; svart: harða ög grimma manngerð; rautt: heiðarleika = 5 = = = = a Erhard ræðir viff De Gaulle. Frh. á 10. síffu. llltlllllllIIlllllllllllllllllIIIIIIIlllllllllllllllllllllIIIIllllllllllllillllllllllllllllll 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111lllllllllllllltllt! 'IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIttllllIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIMMMMmMMMIIIIIIIIItltMlllkmilllllU^ ALÞÝÐUBLAÐIÖ — 15. marz 1964 - J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.