Alþýðublaðið - 20.03.1964, Blaðsíða 3
Harðir bardagar
milli þorpsbúa
Nicosia, 19. marz -
(NTB - Reuter)
NÝIR bardagar brutust út í kvöld
í þorpinu Ghaziveran ,65 km. fyr-
ir vestan Nicosia. Fyrr um dag-
inn hafði brezkum, grískum og
tyrkneskum fulltrúum tekizt að
koma þar á vopnahléi eftir að
harðir bardagar höfð'u staðið þar
í morgun. Bardagar þessir við hið |
tyrkneska smáþorp eru fyrstu. al-
variegu átökin á Kýpur í tíu
daga. Skömmu áður en vopna-
hléð fyrr í dag gekk í giidi til-
kynnti AFP-fréttastofan um bar-
daga í öðru þorpi, Kalokorio, sem
er um sjö kílómetrum sunnar. |
Yfirmaður brezku liðssveitar-
innar við Ghaziveran segir, að
a. m. k. 150 Kýpurgrikkir taki þátt
í bardögunum þar í bænum. Hafa
þeir ráðizt til atlögu við um 60—
80 Kýpurtyrki sem hafa búizt til
varnar í húsum sínum. Segir tals-
maður Breta að a. m. k. einn Kýp-
urtyrki sé látinn og annar hafi
særzt. í Aþenu tilkynnti gríska
upplýsingaþjónustan að í bardög-
unum hafi útta Kýpurgrikkir lát-
ið lífið og átta menn úr grísku ör-
yggissveitimum séu særðir.
AFP-fréttastofan segir, að bar-
dagarnir hafi brotizt út er Kýpur-
grikkir kröfðust þess að niður
yrði felldar veghindrahir þær, er
Kýpurtyrkir höfðu komið upp
hringinn í kringum þorpið. Segja
lalsmenn Kýpurgrikkja, að í stað
þess að svara, hafi Tyrkirnir í
þorpinu hafið skothríð á öryggis-
sveitir þær, er staddar voru í ná-
grenninu. — Tyrknesku íbúarnir,
er verjast í þorpinu, eiga við
mikið ofurefli að etja, þar sem
Grikkir eru, en þeir sækja að
þorpinu vopnaðir rifflum og vél-
byssum, handsprengjum og
sprengjuvörpiun. Verjendumir
eru sæmilega vopnum búnir.
Björgunarleiðangur
komst í tæka tíð
Lima, 19. marz (NTB-AFP)
í DAG tókst björgrunarleiðangrin-
um að komast til þeirra 33 Perú-
manna, er í heila viku hafa vcrið
umkringdir af herskara villtra
Indíána. Hafa þeir dvalið allan
þennan tíma á hæð einni í frum-
skóginum við Amazon-fljótið í
Perú. Það tók björgunarsveitina
fimrn daga að komast itil hins
innikróaða Ieiðangurs. Eru marg-
ir í jarðfræðileiðangriuum sjúkir
og tveir indíánskir leiðsögumenn
hans liafa verið drepnir með eitr-
uðum örvum, en nú er talið að
leiðangursmenn séu úr allri hættu.
í björgunarleiðangrinum eru 40
hermenn. Munu þeir nú hvílast í
einn sólarhring en síðan halda til
baka ásamt jarðfræðileiðangrinum.
Munu þeir halda til Yavari-ár-
innar en þar verða þeir teknir um
borð í fallbyssubát, er bíður þeirra.
Mun hann flytja þá til Iquitos. —
Flugvélar frá perúíska flughern-
um hafa undanfarna daga haldið
uppi árásum á Indíána þá, er tek-
ið hafa þátt í umsátrinu, skotið á
þá úr vélbyssum og hleypt á þá
papalsprengjum til að fæla þá
brott. Ekki er vitað live margir
Indíánar hafa verið drepnir í þess
um árásum.
Miklum erfiðleikum verður bund
Á FRÍMERKI
Póststjórn Jamaica gaf nýlega út
frímerki með mynd þessarar ungu
stúlku í 7 milljónum eintaka. Á-
stæðan fyrir því var sú, að ekki
aðeins hafði hún hlotið titilinn
Fegursta stúlka Jamaica, heldur
vann hún einnig í nóvember-mán
uði síðastliðnum titilinn Fegursta
stúlka heimsins. Það mun vera
annar titill en ungfrú Guðrún
Bjarnadóttir vann í Kalifomíu,
því að sá titill var Ungfrú Alheim-
ur. — Myndin sýnir fegurstu
stúlku Jamaica- og heimsins —
koma nýlega til Líndon. Nafn
hennar er Carole Crowford.
ið fyrir leiðangursmenn að komast
til baka til Yavari-árinnar. Svo
þéttur er frumskógurinn, að leið-
angurinn verður að höggva sér Ieið
til baka. Alla leiðina til baka mun
hann eiga á hættu nýjar árásir af j
hálfu Indíánanna. Yfirmaður j
björgunarleiðangursins hefur
skýrt frá því í loftskeytatækjum
sínum að hann sé sannfærður um
að þeim félögum hafi verið veitt
eftirför.
Eftir því sem bezt er vitað eru
Indiánarnir undir stjórn hvítra
ævintýramanna, sennilegra smygl-
ara, sem vilja koma í veg fyrir að
hin „innri svæði” Perú verði opn-
uð. Á svæðum þessum er mikil
náttúruauðæfi að finna. Var til-
gangur jarðfræðileiðangursins að
finna vegarsvæði í frumskóginum
svo að unnt yrði að hagnýta þessi
náttúruauðæfi.
Kvöldsöumálið
i borgarstjéru
Framh- af 1. síðu
og 8 fyrir söluturna hjá biðskýl- I
um.
Um endurnýjunina jpgði hann,
að þegar hefðu 23 verið endur-
nýjuð en 30 væru nú hjá heil-
brigðisnefnd til umsagnar. Einn-
ig gat hann þess að ekki væri get-
ið um skiptingu milli söluturna og
þeirra, sem seldu matvöru.
Óskar Hallgrímsson tók næst-
ur til máls og ta’di, að dregizt hef
úr hófi, að kaupmannasamtökin
kæmu með ákveðnar tillögur sér-
staklega þar sem þeir fóru sjálfir
fram á að þessar breytingar yrðu
gerðar. Og vegna þess að ekki
væru neinar ákveðnar tillögur
framkomnar , væri hætta á að
þessi þjónusta við borgarbúa félli
niður í april án þess að nokkuð
kæmi í staðinn Þá benti hann
einnig á að með þeim tillögum,
sem fram væru komnar, væri gert
ráð fyrir að 800—1000 manns
þyrfti að ná í nauðsynjar sínar í
hverja verzlun.
Einnig harmaði hann, að ekki
skyldi vera Ijóst hverjar af þeim
verzlunum, sem fengið hefðu leyfi
eða sótt um það, væru eingöngu
sölutm-nar og hverjar væru mat-
vöruverzlanir með söluop eða sér-
deild fyrir kvöldsölu.
Sigurður Magnússon tók einnig
»vv»n»»»»wi»wf»»»i'rKm,fwVwywi
Grikkir og Tyrkir á Kýpur
haf í bardögum undanfarnar
vikur beitt öllum þeim vopn-’
um og verkfærum, sem til-
tækileg hafa verið. Meðal
annars hafa þeir byggt yfir
jarðý'ur, sett á þær skotheld
hús. Hefur þessum farartækj
um óspart verið beitt í orust-
tmi mn þorp og bæi.
MMHHWWMmVMtniHMMH
til máls í þessu sambandi og taldi
hann, að með þessu nýja fyrir-
komulagi yrði þjónustan við borg-
arbúa bæði meiri og betri og að
þjónustan hér ýrði betri en í
nokkurri annarri höfuðborg í ná-
grannalöndunum. Enda væru
hvergi jafnrúm verzlunarákvæði.
Þá var einnig rætt töluvert um
gatnagerðarframkvæmdir og gerði
Óskar Hallgrímsson sérstaka fyr-
irspurn um gatnagerð í Rauðarár-
liolti, sem hann taldi að gengið
hefði verið framhjá þar sem þar
hefði þegar verið samfelld byggð í
25 ár, og hefði því meiri rétt til
götulagningar en hin nýrri hverfi.
Einnig taldi hann að Stórholtið
væri það mikil umferðaræð að láta
mætti aðrar götur bíða'.
Geir Hallgrímsson sagði í svari
sínu, að ekki hefði verið gert ráð
fyrir því að Holtin yrðu malbikuð
fyrr en á næsta ári og stafaði það
af því að þar þyrfti sérstaklega
mikinn verkfræðilegan undirbún-
ing í sambandi við götuhæð og
leiðslur en götur í nýrri hverfum
væru aftur á móti rétt undirbyggð
ar og til þess að tryggja, að véla-
kostur borgarinnar væri sem bezt
nýttur, væru þær teknar á undan.
Einnig hefði vinnuaflsskortur
valdið því að undirbúningsvinna
liefði dregizt
Óskar Hallgrímsson tók aftur
til móls vegna þessa og gat þess
að hitaveitan hefði komið í Holtin
fyrr en áætlað liefði verið og því
væri viðhorfið breytt. Einnig end-
urtók hann þá skoðun sína að þessi
hverfi væru orðin svo gömul að
þau ættu fullan rétt á að verða
malbikuð hið fyrsta.
Bar liann síðan fi-am tillögu þess
efnis að verkfræðilegum undir-
búningi, þar sem með þyrfti, yrði
hraðað og var samþykkt að vísa
tillögunni til borgarráðs.
v
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 20. marz 1964 3