Alþýðublaðið - 20.03.1964, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 20.03.1964, Blaðsíða 6
 Austrænt brúðkaup, nítján ára gamallar brezkrar síma- stúku og tuttugu og sex ára gamals Indverja. Hún heitir Joan Livíngstone, hann heitir Harindar Singh Selhi. Þau kynntust á dansieik og felldu hugi saman. Hún tók trú unnusta síns og jiau voru síöan gefin saman í Sík tmusteri í London. „Tysnaden”, mynd Ingmars Bergmans er nú sýnd víða um heim og vekur hvarvetna umtal. Höfundurinn er á sama tíma byrjaður á næstu mynd sinni. Að þessu sinni ætlar hann að gera gamanmynd. „Svo maður tali ekki um allar þessar konur“, á myndin að heita. — Það verður gaman að að sleppa fram af sér beizlinu og njóta lífsins, segir Berg- man í sambandi við þessa mynd sína. Það er auðvelt að vera honum sammála í þessu efni, þetta er fyrsta gamanmyndin, sem Bergman gerir í níu ár. Fyrirtækið, sem stendur að gerð myndarinnar, er Svensk Film, og verður hún dýrasta kvikmyndin, sem það hefur gert til þessa. Hún kostar full- gerð 1.700.000 sænskra króna, en sænskar krónur eru rúmlega átta sinnum stærri en íslenzk- ar. Það, sem gerir félaginu fært að leggja svo mikið fé í þessa mynd eru þær geysilegu tekjur, sem það þefur haft af fyrri myndum Ingmars Bcrgmans. Þessi gamanmynd fjallar um frægan fiðluleikara, sem heit- ir Felix. Hann sést þó ekki í myndinni vegna þess, að haiin dauður, þegar hún hefst. Það er vinur hans, Cornelius, lcikinn af Jarl Kulle, sem kem- ur atburðarásinni af stað. Cor- nelius kemur til hallar hins látna vinar síns í þeim erind- um að skrifa s'ðasta kafla ævi- sögu hans, sá kafli á að fjalla um persónuleika han«. Þarna kemur kvenfólkið til sögu. Á- horfendur kynnast konu hins fræga manns, leikinni af Evu Dahlberg, og opinberri hjá- konu hans, leikinni af Bibi 'Anderson. Auk þeirra kemur fjöldi annarra kvenna við sögu, Myndin er tekin í litum og búningarnir einir út af fyrir sig erii mikil listayerk, að sögn. Magasár meðal barna virðist vera miklu algengara en hingað til hefur verið talið, skrifar Fritz Karletröm í sænska læknablaðið. Dr. Karlström þefbur safnað upplýsingum um öll kunn maga- sárstilfelli í Svíþjóð síðastliðin 10 ár meðal sænskra barna. Hann fann 184 tilfelli. En þetta. er, segir hann lágmarkstala. Ofan á þetta bætist sá fjöldi, sem al- drei hefur verið greindur. — Af þessum öruggu tilfellum voru 66% drengir og 34% stúlkur. Menn velta mjög fyrir sér á- Kennarinn: — Taktu nú eftir, Hannes: Ef þú átt fjörutíu þúsund krónur, og ætlar að kaupa þér íbúð, sem kostar þrjú hundruð jþúsund, hvað skortir þig þá? Hannes: — Ríka konu. Illil stæðunum til þess, að þessi sjúk- dómur skuli koma fyrir meðal I barna. En, rétt eins og með full- orðna, er orsökin oftast nær ó- ljós. í 10%-30% af tilfellum eru ! erfðir taldar vera ástæðan. í þeim efnivið, Sem Karlström hafði úr að vinna, fannst magasár innan fjölskyldunnar í 47% og oítast , var það faðirinn, sem hafði hann. 1 Sjúklingamir voru flestir háir og horaðir og mikill meirihluti und- ir meðaltali hvað þyngdina á- hrærðri. Annað atriði hefur einnig vak- ið athygli, það er, hvort nokkurt samband geti verið milli magasárs , og ákveðins blóðflokks. Af sjúkl- ingum þeim, sem Karlström hef- ur upplýsingar sínar um, voru 53% af þessum flokki, en Svíar eru annars 38% af þessum flokki. Flestir unglingarnir liöfðu haft sjúkdómseinkenni í meira en tvö ár áður en sjúkdómsgreining fór fram. Af þessum 184 voru 13 skor- in upp og heppnaðist þjá öllum. Heimsfrægt danspar António og Rosario. Þessi tvö eru í flokki spanskva dansara, sem um þess- ar mundir sýnir í London. BAK VH> TJÖLDIN Það kemur oft fyrir, að □ áheyrendur í fundasölum Sameinuðu þjóðanna haga sér á þann veg, að ekki er ann- ars kostur en fjarlægja þá. Hingað til hafa þessir óróaseggir verið afhentir lögreglunni í New York, en nú hefuir hún beðizt undan þessum störfum vegna þess, að þetta fólk veldur henni oft mikl- um lögfræðilegum vandræðum. Þess vegna hafa nú verið innrétt- aðar sérstakar vistarverur í kjall- ara byggingar samtakanna fyrir þá, sem hér eftir trufla fundi. — Hvaðan skyldu þeir hafa fengið hugmyndina? Það var í Róm um daginn. □ Smáþjófur einn hafði orð- ið sér úti um bíl. Hann var fljótur að koma honum í gang og ók af stað. En nokkur' hundruð metrum neðar í götunni stanzaði hann og stökk inn í símaklefa og hringdi til lögreglunnar. — Eg var að stela bíl. Komið og hirðið mig í snatri. — Hvað, hefur þú stolið bil og hringir til okkar? — Já, flýtið ykkur, það er smá- krakki í aftursætinu. □ María Callas ster.dur nú frammi fyrir miklum vanda og ekki auðleystum: Annað hvort verðúr hún að fórna hinum þekkilega vexti sínum eða kveðja stjörnuhimininn. Tónlistargagnrýnendur skrifa með sívaxandi eftirsjá, að rödd hennar hafi tapað bæði styrk og , tærleika. Læknir hennar hefur ráðið I lienni til að taka til við spag- 1 hettikúr af miklum krafti til þess I að vinna sem fyrst upp hluta a£ [ kílóunum öllum, sem þún skildi við sig fyrir 15 árum síðan, þegar hún hitti og giftist Meneghini. — Vesalings María. Bergman gerir gamanmynd Magasár algengt meðal barna £ 20. marz 1964 — ALÞÝÐUBLAÐI0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.