Alþýðublaðið - 21.03.1964, Qupperneq 3
Athugasemd frá
Frjálsri þjóð
ÞEGAR Lárus Jóhannesson baðst
lausnar frá embætti sem hæstarétt
ardómari á dögunum, lét hann
hafa eftir sér í útvarpi og blöð-
um, að hann hefði síðan í haust
verið borinn ósönnum og órök-
studdum sökum í vikublaðinu
Frjálsri þjóð.
Vegna' þess að fréttir af þessu
tagi eru afar villandi fýrir útvarps
hlustendur og lesendur blaða, sem
ekki hafa greint nánar frá mála-
vöxtum, óskar Frjáls þjóð að taka
fram eftirfarandi:
Seint í ágústmánuði síðastliðn-
um var Frjáls þjóð beðin nm a®
birta kæru, sem reykvískur verka-
maður á sjötugsaldri hafði sent
saksóknara á hendur hæstaréttar-
lögmanni hér í bæ og Búnaðar-
banka íslands fyrir meinta fé-
flettingu. Kvaðst verkamaðurinn
hafa orðið að greiða 65 þúsund
króna afföll af 150 þúsund króna
víxli, sem hæstaréttarlögmaður-
inn hafði lceypt af honum gegn
tryggingu í íbúð hans. Var nafn
Lárusar Jóhannessonar ekki viö
þetta mál bendlað í kærunni né
dregið inn í skrif Frjálsrar þjóð-
ar um málið á því stigi. En strax
næstu daga upplýstist, að vixil
þennan hafði Lárus Jóhannesson,
þáverandi hæstaréttardómari, selt
Búnaðarbanka íslands á úrtgáfu-
degi.
Með þeim hætti tengdist nafn
Lárusar Jóhannessonar máli þessu
og vafðist af þeim sökum inn í um
ræður um má’ið í Frjálsri þjóð og
öðrum blöðum.
Borðið, sem mest liefur látið að sér kveða í baðstofunnl. Myndir: Grétar Oddsson.
Undrin að Saurum
/
Frh. af 1 síðu.
höndum hans eins og það væri
lifandi.
Þeir hlutir, sem færzt hafa úr
stað eða dottið, ei-u sporöskjulag-
aða borðið í baðstofunni, stóllinn
sem fyrr er getið, skápurinn í eld-
húsinu dívan sem þar stendur við
vegg og eldhúsborðíð sjálft. Þá
hefur annað rúmið í baðstofunni
færzt úr stað. Þá er búr inn af
eldhúsinu og þar í hillum var
stafli af leirdiskum. í dag um
sama leyti og skápurinn valt um,
datt þessi hlaði fram á gólf og
leirinn molaðist. Svo virðist, sem
hlutirnir fari einkum af stað, ef
þeir standa við vegg. Hinsvegar
hafa myndir á veggjum eða hlut-
ir á vegghillum ekki haggast.
Húsfreyju er mjög umhugað um
að hægt verði að skýra þetta sem
jarðskjálfta, en Guðmundur Kjart
ansson telur það af og frá. Bæjar-
húsin sjálf haggast ekkert við fyr-
irburðina. Bærinn stendur á stein
steyptum grunni og einskis hefur j
orðið vart á næstu bæjum, eða í \
næsta nágrenni. Þá er heldur ekki
hægt að tímasetja atburðina í
samræmi við jarðskjálftana við
ísafjarðardjúp. Hann telur að at-
burðir þessir eigi ekkert skylt við
sína fræðigrein, jarðfræðina.
Atburðunum fylgja engin hljóð
eða högg. Einu hljóðin munu vera
brothljóðin í diskum og kaffiboll-
um þegar eldhúsborðið fer af stað,
eða þrusk á baðstofugólfinu þegar
sporðöskjulagaða borðið leggur í
Sína ferð.
Ekkert markvert gerðist meðan
við stóðum við og drukkum kaffi
úr einu postulínsbollunum, sem
eftir eru á bænum.
Þarna var margt aðkomumanna.
Menn voru komnir af næstu bæj-
um og frá Skagaströnd og biðu
var ætlunin að ganga á fjörur í
landareign Saura og gá að sjó-
reknuin líkum, en fyrir tveim ár-
um fórust tveir menn á trillu í
Húnaflóanum undan Skaga og hef
ur þá ekki rekið svo vitað sé.
Þá er það og vitað að spánskir
skipsbrotsmenn voru rændir og
myrtir þarna skammt frá á 15. öld.
Þeir munu hafa verið dysjaðir á
staðnum.
Það eitt gerðist meðan við stóð-
um við, að dívan, sem ég sat á og
enginn var nálægt kipptist tvíveg-
j is til undir mér, þó ekki svo að
] aðrir tækju eftir en mjög greini-
lega. Þá þóttist undirritaður verða
var hreyfingar á skápnum, sem
datt fyrr um daginn, en ekki var
það eins óyggjandi og hitt.
Þegar við kvöddum á Saurum
voru mennirnir að leggja af stað
á rekafjöruna, en ekki höfum við
fengið fréttir af hvernig þvi
reiddi af.
Það skal tekið fram, að ná-
grannar og vandalausir hafa orð-
ið vitni að atburðunum og jafn-
vel horft á þá.
| KD Lfr CÍDA- IflYK HÁF-
’AP- UR EIDHUS VEl D*
VASKaoR*
KUM
Guðmundur bóndi
í Kálfshamarsvík.
í lendingunni
Reykjavík, 20. marz - KG
NOKKUÐ liarður árekstur varð
undir Ingólfsfjalli á móts við
Þórustaði um klukkan 3 í gærdag..
Lentu þar saman jeppi og lang-
ferðabíll og lenti jeppinn útaf
við höggið og á hliðina. Ekki urðu
nein meiðsli á mönnum en jepp-
inn skemmdist mikið og langferða
bíliinn nokkuð.
SANGUR
Kortið sýnir nokkurn veginn húsaskipan að Saurum. Það er dregið upp eftir minni og stærðarhlutföll
lierbergjanna ekki áreiðanleg. Sporöskjulagaða borðið stendur undir glugga á baðstofunni. Annað rúm-
ið, sem er við vegginn liefur einnig færzt til. í eldiiúsinu sjáum við dívaninn, scm kipptist til undir-
blaðamanni Alþýðublaðsins og við enda hans er skápurinn, sem féll á grúfu rétt áður en við komum.
Þar við hliöina er búrið, en þar inni sáum við greinileg verksummerki ókyrrðarinnar á gólfinu. Hrúgu
af brotnum leir. Teikn: Raguar Lár.
Sigurborg Guðmundsdóttir, dóttir hjónanna að Saurum.
Myndir: Grétar Oddsson.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. 'marz 1964 3