Alþýðublaðið - 21.03.1964, Page 16
Vfr. myndinni sjást talið frá vinstri, Stefán Thors, Erlingrur Gíslason, Borgar Garðarsson og Brynj-
* ólfur Jóhannesson,
SAGAN Af OUVERIWISI
Reykjavík 20, marz - KG
Síðastliðinn l>riðjudag hófst
í útvarpinu nýtt framhaldsleik-
rit gert eftir hinni frægu sögu
Charles Dickens „Oliver Twist'.
Þó að ekki sé enn búið að flytja
nema fyrsta þáttinn er leikrtið
þegar farið að njóta vinsælda.
Við hringdum í Baldvin Hall-
; > dórsson, leikstióra, sem stjórn
'! ar flu'.ningi leikritsdns og sagði
hann okkur aðeins frá leikrit-
inu.
— Það er brezkur bókmennta
fræðingur Giles Cooper, sem
;. færði söguna í leikritsbúning
11 og hefur gert það ljómandi vel
fyllt upp í á stöku stað til þess
að auka samræmið.
— Hvernig hefur upptakan
gengið?
— Þættimir eru 12 talsins og
verður einn flut'.ur á hverju
þriðjudagskvöldi. Þegar er bú-
ið að taka upp tvo þætti og við
gerum ráð fyrir að ljuka við
þann þriðja fyrir páska. Upp-
takan hefur gengið ágætlega
en helz!u leikendur eru Stef-
án Thors sem leikur Oliver
Twist, Brynjólfur Jóhannesson
leikur Fagin og Helga Bacli-
mann Nancy.
— Hefur ekki verið gerður
söngleikur eftir leikritinu?
—. Jú, Lionel Bart samdi
söngleik eftir sögunni og hann
er nú búinn að ganga í um
þrjú ár í Bretlandi. Hann hefur
ekki verið fluttur hér í íslcnzk
Um búningi og ég veit ekki til
þess að, það sé neins s'aðar í
undirbúningi, en lögin liafa að
sjálfsögðu oft verið leikin af
plötum hér í útvarpinu.
Þá gerðu Bretar kvikmynd
eftir sögunni rétt efir stríð og
var hún sýnd hér í Tjamarbíó
fyrir allmörgum árum. Það var
sérstaklega skemmtileg mynd
og þar lék Alice Guinnes gyð-
inginn á ógleymanlegan hátt
og margir fleiri voru þar s'.ór-
kostlegir.
og fylgt sögunni vel og aðeins
Verðlaun veitt í út-
varpssamkeppni
Iljörtur Hjálmarsson á Flateyri
tureppti fyrstu verðlaun (kr. 5.000)
Og Skúli Guðjónsson á Ljótunnar-
..jstöðum önnur verðlaun (kr.
SOOO). í nýlokinni ritgerðarsam-
í Hjörtur Hjálmarsson
keppni útvarpsins um efnið: ÞEG-
AR ÉG VAR 17 ára. Vilhjálmur
Þ. Gíslason útvarpsstjóri, skýrði
frá úrslitum í fréttaauka í gaer-
kvöldi. Þrenn 1500 króna auka-
verðlaun voru veitt, og hlutu þau
eftirtaldir Reykvíkingar: Benja-
mín Sigvaldason, Tryggvi Emils-
son og Jón Pálsson.
Auk verðlaunanna mun útvarp-
ið greiða höfundum venjulegt
flutningsgjald.
Boðið var til samkeppninnar í
janúar síðastliðnum og varð þátt-
taka mikil. 148 ritgerðir bárust,
og hefur dómnefnd lagt til að auk
verðlaunaefnisins verði 20-25 aðr-
ir þættir í þessum flokki keyptir
til flutnings.
Dómnefnd skipuðu: Björn Th.
Björnsson, Þorsteinn Hannesson
og Vilhj. Þ. GíslaSon.
Verðlaunaritgerð Hjartar Hjálm
arssonar verður flutt í útvarpið
Framhaid á síðu 4
Brendan Behan
lézt í gærkvöldi
írski ritliöfundurinn Brend-
an Behan Iézt í Dublin í gær
kveldi 41 árs gamall.
Behan hafði legið rænu-
laus dögum saman, en hann
þjáðist af sykursýki og lifrar-
sjúkdómi, og kom hann ekki
til meðvitundar áður en hann
lézt.
Eitt leikrita hans, Gísl, er
um þessar mundir sýnt I Þjóð
leikhúsinu og verður sýnt í
kvöld
HUHHHHHVMmWWmWI
Norðurlandamót í körfubolta:
SVÍAR SIGRUDU ÍSLEND-
INGA NAUMLEGA 65:59
NORDURLANDAMÓT í körfu-
knattleik, sem einnig hefur hlot-
ið nafnið „Polar-cup”, hófst í Hel-
singfors í gærkvöldi. Öll Norður-
löndin taka þátt í mótinu nema
Noregur. Þetta er önnur keppnin.
Fyrsta mótið fór fram í Stokkhólmi
haustið 1962. Þá tóku íslendingar
einnig þátt og voru í þriðja sæti,
sigruðu Dani, en töpuðu með all-
rniklum mim fyrir Svíum og Finn-
farir að ræða. Finnar burstuðu
Dani með 105 stigum gegn 40, eu
í hléi var staðan 63-15. í dag leika
fslendingar og Danir og Svíar.. og
Fiunar.
Norðurlandamót unglinga í hanð
knattleik hófst í Eskilstuna í gær.
Svíar unnu Norðmenn með 14-10.
ísland Iék ekki í gær.
wwMuwwmwwww
í keppninni í gærkvöldi léku Is
lendingar við Svia og leikm-inn
var frá upphafi jafn og spennandi,
mun jafnari en búizt hafði verið
við fyrirfram. Sérstaklega þegar
þess er gætt, að cinn sterkasti
maður íslenzka liðsins, Guðmund-
ur Þorsteinsson gat ekki-farið ut-
an vegna veikinda. í leikliléi var
staðan 25-23 fyrir Svía, en í lokin
höfðu Svíar aðeins 6 stig yfir —
65-59.
Einar Matthíasson, fréttaritari
Alþýðublaðsins í Helsingfors,
sagði í skeyti í gærkvöldi, að þetta
væri langbezti landsleikur íslend-
inga í körfuknattleik til þessa. I
Þorsteinn Hallgrímsson skoraði
meir eu helming allra stiga eða
meira en 30 og var langbezti leik-
maðurinn á vellinum.
í síðasta leik íslenzka liðsins við
Svíþjóð unnu Svíarnir með 63-38.
Er því lxér um greinilegar fram- I
ÚIHLUTÁ LISIA-
MANNALAUNUM
Reykjavík, 20. marz - EG
I DAG var kosin í samein-
uðu þingi 7 manna nefnd er
anuast skal úthlutun þess-
f jár, sem á f járlögum er ætl-
að til listamannalauna.
í nefndina voru kosnir, Sig
urður Bjarnason, Bjjartmar
Guðmundson, Þórir Kr. Þórð
arson og Helgi Sæmnndsson,
af lista Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisffokksins Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli
og Andrés Kristjánsson af
lista Framsóknarflokksins og
Einar Laxnes af lista Komm
únista.
■hwmwhwmwmwwwi
Áhugamenn um sjón
varp stofna félag
Ákveðið hefur veriff áð efna tii
stofnunar Félags sjónvarpsálxuga-
manna, og hefur stofnfundur verið
boðaður í Sigtúni (Sjálfstæðisbús-
inu) á morgun, sunnudag kl. 4 e. h.
Tilefni félagsstofnunar þessarar
1 eru umræður, sem að undanförnu
| hafa orðið um sjónvarpsmál á ís-
landi yfirleitt, og áskorun 60 þjóð-
| kunnra nianna til Alþingis, um að
| það hlutist til lun að lokað verði
fyrir sjónvarpið frá Keflavík.
Undirbúningsnefnd hefur starfað
í vikunni og gert frumdrög að lög
um fyrir félagið, sem gera ráð fyr-
ir því, að meðlimir í félaginu geti
orðið allir þeir íslendingar sem I
hafa áhnga á að fá notið sjónvarps.
Lagáuppkastið gerir eindregið
ráð fyrir því að stuðlað sé að stofn
un íslenzks sjónvarps hið íyrsta,
og að þeir, sem vilji, geti notið
þeirrar sjónvarpssendinga, sem ís-
lendingum er kleift að ná til og
tækni leyfir á hverjum tíma.
I Vonast undirbúningsnefndin
fastlega til þess að þeir, sem á-
huga hafa á og hlynntir eru sjón-
1 varpi, fjölmenni á stofnfund fé-
lagsins kl. 4 e. h. á sunnudag, en
vísar að öðra leyti til auglýsinga
í dagblöðum og útvarpi. — (Frá
undirbúningsnefnd Félags áhuga-
manna um sjónvarp). ,