Alþýðublaðið - 23.05.1964, Blaðsíða 8
8 23. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
AGNAR Guðmundsson ráðunautur
talaði við bændur í morgunút-
varpinu. Hann talaði í áminning-
artóni og bað þá blessaða að
haska sér til þeirra verka, sem
enga bið þola. Vorannir eru í
fullum gangi.
En það eru víðar vorannir en
hjá bændunum. Þær eru líka í
görðum bæjanna og Reykjavíkur-
bcrgar. Og það eru vorannar hjá
skógræktarfólki um allt land og í
gróðrarstöðvum.
Hjá Skógræktarfélagi Reykja-
víkur í Fossvogi vinna nú um 16
stúlkur og á þeim eftir að fjölga
um nærri helming. Algengt er að
þar vinni 20-30 stúlkur yfir há-
annatímann, sem er' næstu 7 vik-
urnar. Þá er unnið að gróðursetn-
ingu uppeldisplantna, dreifsetn-
/ngu eldri plantna og svo verður
auðvitað að sýna öllu saman hina
mestu umhyggju og umönnun, tii
að allt þetta 7 vikna starf verði
ekki unnið fyrir gýg.
Þá er sölumennskan á hástigi
einmitt þessa dagana. Fjöldi fólks
er að koma sér upþ görðum við
húsin sín og aðrir vilja bæta fal-
legum plöntum við það sem fyrir
er.
Byrjað er að gróðursetja í Heið-
mörk, þar sem 54 félög í Reykja-
vík hafa sína reiti. Skógræktinni
er mikið í mun, að þessir'aðilar
fari heldur fyrr af stað en seinna,
enda tíð og allar aðstæður hinar
heppilegustu.
Skógræktarstöðin í Fossvogi
mun vera nálægt þrítug að aldri,
en stúlkurnar, -sem þar vinna eru
Olafur F, Jónsson og Þorgrímur Einarsson spjalla saman á latínu.
þetta 13-20 ára. E'nar Sæmundsen
veitir henni forstöðu og Björn Vil
hjálmsson er verkstjóri úti við.
Björn segir mér undan og ofan af
um starfræksluná.
Grenið skemmdist mikið hjá
okkur í páskahretinu í fyrra og
heita má að öspin hafi alvel fallið.
Rótin er að vísu iifandi en þetta
verða aldrei tré aftur.
Þegar vorönnunum ^ýkur tekur
við algeng skógarvinna, grisjun og
þvíumlíkt.
— Getið þið nokkuð nýtt það
sem grisjast úr?
— Það er nú heldur lítið. Helzt
í kamínufóður og því um líkt. —
Hinsvegar vinna þeir í Hallorms-
stað og Vaglaskógi girðingar-
staura úr sínum úrgangi.
— Þú segir að vorhretið í fyrra
hafi farið illa með ykkur eins og
fleiri, en hvernig er útlitið núna?
— Gróðurinn hefur aldrei ver-
ið kominn svona langt á þessum
árstíma.
Stórvirk skurðgrafa er að verki
inni í miðjum lundi í stöðinni.
Hún hleður jarðveginum í stóra
hrauka á skurðbarmi bæði breið-
um og djúpum. Fossvogsræsið
mikla liggur þvert í gegnum stöð-
ina. v
— Er ykkur mikill ami að þess-
um framkvæmdum, Björn?
— Það er slæmt að fá þetta yfir
sig á þessum árstíma. Hi,ns vegar
getum við ekki verið á móti fram-
kvæmdunum sem slíkum, þar sem
um þjóðþrifafyrirtæki er að ræða,
en við vonum$t til að þessu verði
iokið í júlí — ágúst í sumar.
Ég hitti Einar inni á skrifstof-
unni.
Þær eru að hlú að skógarplönt
um, sem eiga að fara upp í Heið-
mörk.
— Hann Björn sagði mér að
stöðin hérna myndi vera nálægt
þrítugu?
— Já. Hér var fyrst byrjað að
girða árið 1933 og síðan tók Skóg-
ræktarfélag íslands við stöðinni
og rak hana til ársins 1946 þegar
við tókum við.
— Hefurðu nokkra hugmymLum
fjölda tegunda í ræktun hérna?
— Við höfum hér 70 hreinar
tegundir og fjölda afbrigða a£
hverri tegund.
Þið ættuð að koma hérna svo-
lítið seinna í sumar, þá verður hér
miklu meira af stúlkum og þær
verða minna klæddar en núna.
Það er nú það.
Skammt frá, á vegamótum
Reykjanesvegar og Sléttuvegar
eru nokkrar gróðrarstöðvar. Garðs-
horn og Sólvangur liggja þar hlið
við hlið.
Eigandi Garðshorns er Þorgrím-
ur Einarsson og hefur mikið að
gera. Viðskiptin eru í fullum
gangi. Fólk er alltaf að koma til
að fá sér trjáplöntur í garðinn
sinn eða þá skrautjurtir. Þorgrím-
ur bograr í einu beðinu þegar mig
ber að og er að afgreiða tré.
— Ræða svolítið við þig? Það
er nú það, Ertu frá blaði?
Hann er svolítið snöggur upp á
lagið.
Það er svo ógurlega mikið að
gera maður, ég veit bara ekki
hvort ég hef tíma til þess.
Við göngum heim í vinnu- og
afgreiðsluskúrinn á horninu. Hann
stendur svo sannarlega í garðs-
horni.
— Blessaður vertu, ég er búinn
að vera 40 ár í garðyrkju og 16
ár hérna á sama stað. Ég byrjaði
í Noregi, en þar er þetta 4ra ára
nám og fvrstu tvö árin verður mað
ur að vinna fyrir samasem engu
kaupi. Ég gafst upp eftir þau ár-
in.
Við byrjuðum hérna saman, Jón-
Gretin ©g myndii