Alþýðublaðið - 06.06.1964, Side 3
Innrásarinnar í
Normanndí minnzt
Douvrees la Delivrande, Nor-
mandi, 5. júní. (NTB-Reut.).
Gamlir hermenn, sem tóku þátt í
í mestu hernaðaraðgerðum, sem j
gerðar hafa verið á landi, sjó og
lofti, samtímis innrásinni, sem
var fyrirboði endaloka Hitlers-
Þýzkalands, hófu í dag sólarhrings
hátíðarhöld víðs vegar í Normandí
til að minnast hins mikla afreks
Bandamanna, 6. júní 1944.
í dag kl. 18.15 voru 20 ár liðin
síðan Dwight D. Eisenhower hers
höfðingi ákvað að hin sögulega
árás skyldi gerð daginn eftir. Um
kvöldið var fréttinni um innrásina
útvarpað í dulmáli til frönsku and-
spyrnuhreyfin’garinnar. Hálfri
stundu fyrir miðnætti liófust loft-
árásir á strendur Normandí.
Menn úr andspyrnuhreyfing- I
unni sprengdu brautarteina í loft
upp og skáru sundur símaleiðslur
til aðalstöðva Þjóðverja í Saint Lo.
Mikið var um dýrðir í Normandí
í dag. Á stöðum þar sem innrásar
sveitirnar stigu á land gengu menn
með bowler-hatta og hanska, en
aðrir uppgjafahermenn komu í
gömlum snjáðum jökkum og bux-
um. Lúðrasveitir léku og hermenn
gengu skrúðgöngu.
Veður var heldur slæmt <)g
minnti menn á, að vegna veðurs
lá við að fresta yrði innrásinni
fyrir tuttugu árum, en hún kall-
aðist „Operation Overlord.” Litil
börn með sandspaða ganga nú um
íjörurnar og klappirnar, þar sem
áður voru múrar úr stáli og stein-
steypu, gaddavírsgirðingar og
varðhús.
Myndin er frá innrásinnii Normandí 6. júní 1944.
TYRKIR RÆDA ENN
UM ÁRÁS Á KYPUR
de Gaulle
um Suðaustur-Asíu
París, Moskva, Vientiane, 5. júní.
(ntb-reuter). — Bandaríski að-
stoðarutanríkisráöherrann Georgc
Ball, sem er sériegur sendimaður
Johnsons forseta í sambandi við
deiluna í Suðaustur-Asíu, ræddi
í dag við de Gaulle forseta í Él-
ysse-höll. Ball afhenti forsetanum
boðskap frá Johnson forseta, en
vildi ekki segja blaðamönnum frá
viðræðunum nema hvað þær hefðu
verið gagnlegar og forvitnilegar.
Meðan þessu fór fram liöfðu
hormenn Pathel-Lao-ihreyfingar
kommúnis'a í Laos og Viet-Minh
hermcnn frá N-Vietnam gert á-
rás á hermenn hlutleysissinna á
Krukkusléttu. í Moskva var skýrt
frá því að Sovétríkin styddu til-
lögu Pólverja um undirbúnings-
ráðstefnu sex landa um Laos og
legðu til, að ráðstefnan yrði liald-
in mjög bráðlega í Sviss.
★ Viðræður Balls við de Gaulle
fjölluðu um Suðaustur-Asíu. Fyrr
í dag ræddi hann við Couve de
Murville utanríkisráðherra, sem
sagði á eftir, að ekkert nýtt væri
að segja um samskipti Frakk-
lands og Bandaríkjanna.
Þegar Ball var að því spurður
menn Laos-ráðstefnunnar. Ind-
við komuna til Parísar í morgun
hvort samskipti Frakklands og
og Bandaríkjanna hefðu versnað,
sagði hann, að þau væru enn tengd
mjög traustum böndum.
í september í fyrra sagði de
Gaulle, að eina leiðin til að af-
stýra síauknum áhrifum Kínverja ;
í Indó-Kína, væru stjórnmálavið-1
ræður og hlutleysi Laos, Suður- !
Vietnam og Kambódíu. í dag ótt-
uðust franskir diplómatar nýjar
deilur Bandaríkjamanna og
Frakka.
Sömu menn óttast, að sigur
Goldwaters öldungadeildarþing-
manns í prófkosningunum í Kali-
fomíu muni knýja Johnson for-
seta til að taka harðari afstöðu til
vandamálanna í Austurlöndum
fjær.
★ Tillaga Pólverja, sem Rússar
lýstu yfir stuðningi við í dag, er
á þá lund, að fulltrúar Sovét-
ríkjanna, Bretlands, Kanada, Ind
lands, Póllands og foringjar stjóm
málahreyfinganna þriggja í Laos
lialdi með sér ráðstefnu. Rússar
og Bretar taki þátt í ráðstefnunni,
þar eð fulltrúar þeirra voru for-
verjar, Kanadamenn og Pólverjar
Ankara, 5. júní. (NTB-Reuter).
Utanríkisráðherra Tyrkja, Feid-
un Kemal Erkin, sagði í dag, að ef
áfram héldi, sem nú horfði, væri
engum blöðum um það að fletta,
að Tyrkir gengju á bnd á Kýpur.
Jafnframt benda diplómatar i
Ankara á, að um þessar mundir séu
stjórnmálamenn önnum kafnir
vegna Kýpurdeilunnar. Þessa hef-
ur einkum orðið vart síðan Mak-
arios lögleiddi herskyldu á eynni
og um það bárust fréttír, að Grikk
ir væru farnir að flytja inn vopn.
Erkin utanríkisráðherra ræddi
við blaðamenn um Kýpurdeiluna
þegar hann hélt til forsetahallar-
innar að ræða við Kemal Giirsel
forseta. Forsetinn hafði rætt við
sendiherra Kanada í Tyrklandi,
Bruce William, og þvi næst við
Ismet Inönu forsætisráðherra.
Það sem enn hefur aukið spenn-
una er frétt um, að Makarios for-
seti hafi hafnað þeirri áskorun dr.
Kutchuk, varaforseta Kýpur, að
grískir og tyrkneskir ráðherrar
Kýpurstjórnar haldi fund með sér
til að ræða vopnahlésvandamál.
í gærkvöldi bað bandaríski
sendiherrann, Raymond Hare, um
viðtal við Inönu forsætisráðherra
og stóðu viðræður þessar fram á
nótt.
Á Kýpur hefur allt verið með
kyrrum kjörum, að öðru leyti en
því, að skipzt hefur verið á skot-
um í einu úthverfi Nikosíu og í
Cyreníafjöllum. Formælandi SÞ
rannsakar fréttir um vopnasmygl
Grikkja og Tyrkja á eynni. Hann
segir, að U Thant aðalfram-
kvæmdastjóra sé skýrt frá öllum
vopnabirgðum, sem Kýpur-stjórn
berst.
Haft er eftir opinberum heimild
um, að ákvörðun sú frá í gær, að
kalla árgangana 1943, 1944 og
1945 til herskyldu feli ekki 1 sér,
að nýliðar verði kvaddir til starfa
nú. Ekki hafi verið ákveðið hvenær
það verði gert.
Innbú hótelsins
slegió á 750 þús.
vegna þess, að þeir standa að al-
þjóðlegu eftirlitsnefndinni.
Áður hafa Rússar viljað, að öll
þau ríki, sem fulltrúa áttu í La-
osráðstefnunni 1962 haldi nýja
ráðstefnu. Bretar hafa lagt til, að
fulltrúar hinna 14 ríkja ráðfærist
í Vientiane, þar eð formlfig ráð-
stefna muni tákna, að menn telji
Laos-samninginn frá 1962 mark-
leysu. Kínverjar vilja fjölmenna
ráðstefnu í Kambódíu.
(Framhald á 4. síðu).
BHEZKIR 1AFMAÐAR-
IVIENN VINNA SIGUR
Faversham, Englandi, 5. júní.
(NTB-Reuter).
Brczki Verkamannaflokkurinn
vann yfirburðasigur í aukakosn-
ingunum í Faversliam í Kent í
dag.
Verkamannaflokkurinn hélt þing
sæti sínu með 4.941 atkvæða
meirihluta, en meirihluti hans í
kosningunum 1959 nam aðeins
253 atkvæðum. Úrslitin eru mikið
áfall fyrir íhaldsflokk Sir Alec
Douglas-Home forsætisráðherra,
sem vinnur af kappi að því að
auka álit kjósenda á sér fyrir
lcosningar til þingsins í október.
Frambjóðandi Verkamanna-
flokksins, Terrence Boston, hlaut
24.749 atkvæði, en frambjóðandi
íiialdsflokksins, frú Elsie Olsen
19.808 atkv. Óháði frambjóðand-
inn Russel Ecklay hlaut 352 atkv.
Verkamannaflokkurinn hafði
fyrir fram talið sér sigur vísan,
en yfirburðirnir voru meiri en
bjartsýnustu menn höfðu þorað að
vona. Kosningarnar í Faversham
sýna, að fylgisaukning Verka-
mannaflokksins er 5%. Ef slík
fylgisaukning endurtæki sig í
þingkosningunum fengi flokkur
Harold Wilsons 55 þingsæta meiri
hluta í Neðri málstofunni.
Hin 630 þingsæti í Neðri mál-
stofunni skiptast nú þannig: í-
haldsflokkurinn 359, Verkamanna-
flokkurinn 259, Frjálslyndi flokk-
urinn 7 og óháðir 2. Auð sæti: 3.
Akureyri, 5. júní. — GS-HP.
KLUKKAN TVÖ i dag hófst á
Akureyri uppboð á hluta af eign-
um Brynjólfs Brynjólfssonar, veit-
ingamanns. Það, sem boðið var upp
úr þrotabúinu í dag, var allt inn-
bú og tæki Hótel Akureyrar, á-
leggsskurðarvél og flygill. Innbú-
ið var allt boðið upp í einu lagi
að ósk kröfuhafa og slegið Árna
Árnasyni, kaupmanni á Akureyri,
á 750 þús. Á þriðjudaginn verður
boðinn upp vörulager þrotabúsins
en bú veitingamannsins og aðrar
eignir síðar samkvæmt nánari aug-
lýsingu bæjarfógeta.
Skiptafundur hófst f veitinga-
sal Hótel Akureyrar kl. 2' í dag.
Auk bæjarfógetans á Akureyri,
Friðjóns Skarphéðinssonar, Sigurð
ar M. Helgasonar fulltrúa og starfs
manna bæjarfógetaembættisins,
var allmargt fólk viðstatt, þ.á.m.
Brynjólfur Brynjólfsson og nokkr
ir fulltrúar kröfuhafa.
í upphafi skiptafundar lýsti
bæjarfógeti því yfir sem vilja
kröfuhafa, að innbú og tæki Hót-
el Akureyrar yrði selt í einu lagi
ef sómasamlegt boð fengist. —
Nefndi hann síðan töluna 900 þús.
sem hugsanlegt boð, lækkaði síðan
boðið ofan í 800 þús. en enginn
sinnti þyí. Loks nefndi bæjarfó-
geti 750 þús. og lýsti því jafn-
framt yfir, að neðar færi hann
ekki. Var síðan Árna Árnasyni, for
stjóra Byggingavöruverzlunar
Tómasar Björnssonar, slegið inn-
búið á 750 þús. kr. Síðan var
boðin upp áleggsskurðarvél og sleg
in KÉA á kr. 16 þús. Uppboðs-
þingi var síðan frestað til kl. 3,
en þá var boðinn upp flygill, sem
notaður hefur verið á Hótel KEA,
sem Brynjólfur hafði á leigu til
skamms tíma. Flygillinn var að lok
um sleginn Skarphéðni Ásgeirssyni
(Framhald á 4. síöu).
SföðumæJar
Framhald af síðu 1.
til aS leysa umferSarvandamál
borgarinnar, sem verð'a ískyggi
legri meS hverjiun deginum
sem liSur?
Hversvegna halda yfirvöld að
sér höndum, meSan slysum og
árekstrum fjölgar óhugnanlega
ört?
Hversvegna eru ekki sett
upp umferðarljós á fleiri gaina
mótum hér í, borginni, eins og
umferðarnefnd hefur þó mælt
með?
Ofangreindar tölur bera meS
sér, að ekki er fjárskortur á-
stæðan fyrir framkvæmdaleys
inu.
Þeir sem greiða fé í stöSu-
mæla við götUr borgarinnar
eiga skilyrðislaust kröfu 4, að
það fé sem þannig fæst, verði
notað iil að efla öryggi í um-
ferSinni. Þessar 2,5 milljónir
eiga ekki að liggja hjá bönk-
um og sparisjóðum, þær á að
nota strax því allir munu sám-
mála um að nóg sé við féð að
gera og jafnvel þótt upphæðin
væri hærri.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 6. júní 1964 3