Alþýðublaðið - 06.06.1964, Side 11

Alþýðublaðið - 06.06.1964, Side 11
Jafntefli KR og MW 3:3 í allhörðum leik KR-INGUM tókst í grærkvöldi að að halda jöfnu gegn Bretunum frá Middlcsex Wanderers. Leikur- inn var spennandi lengst af, þó ýfirburðir Breta væru talsverðir úti á vellinum. Tókst KR-ingrum þó að halda vel í við andstæðinga sína er nálgaðist það að reka endahnútinn á sóknarloturnar. — Leiknum lauk með 3 mörkum gegn 3 og mega það teljast fremur sann gjörn úrslit eftir þeim tækifærum, sem gáfust. Hins vegrar segja þessi úrslit lítið eitt um þann gæðamis- mun, sem var á leik liðanna. FYRRI HÁLFLEIKUR 1:1. Þegar í upphafi átti KR mjög gott tækifæri til að ná forystu í leiknum. Þeir fá ' vitaspyrnu á Breta á 3ju mínútu, er brotið er á Jóni Sig. í góðu færi innan vítateigs. Gunnar Guðmannsson framkvæmdi spyrnuna og spyrnir ágætu skoti neðst í v. horn marks ins, en markvörðurinn Clark varði og má segja. að það hafi verið mjög vel af sér vikið. Aðeins tveim mínútum síðar ná Bretar svo forystunni í leiknum., Þá tekst Candy h. útherja að brjót ast í gegnum vinstri væng varnar KR. Skoraði hann síðan af stuttu færi, enda átti hann ekki annað eftir en markvörðinn, sem ekki hafði mikla möguleika til að koma neinum vörnum við. KR-ingar jafna á 31. mínútu, er þeir fá aukaspyrnu á Breta rétt utan vítatéígs. Ellert spyrnir á- gætu skoti rakleitt í net Breta. Höfuð Bretar þó vandað allan varn arundirbúning og fylkt liði sínu þannig, að markið átti að vera lokað. Ellert fann þó smugu í þeim varnarvegg og skoraði, svo sem fyrr segir. Annars einkenndist fyrri hálf- leikur af nær látlausri sókn gest- anna, þó sjaldan þannig að veru- leg hætta skapaðist við mark KR. Inn á milli náðu KR-ingar sæmi- legum sóknarlotum, en voru þó mun seinni við allar sínar aðgerðir en Bretarnir. SEINNI HÁLFLEIKUR, 2 gegn 2. í seinni hálfleik voru KR-ing- ar mun líflegri en í þeim fyrri. Frá EÖP.- mótinu í fyrrakvöld: KRISTJÁN OG KRiSTLHRJR VÖKTU MESTA ATHYGLI KNATTSPYRNUVÖLLUR VÍGÐURI KEFLAVÍK MÍKILL íþróttaáhugi er og hefur verið í Keflavík og þar hafa komið fram á sjón- arsviðið afreksmenn í flest- ium greinum,. Knattspyrnu- lið Keflvíkinga er nú með þeim beztu á lándinu og er ásamt KR eina liðið í I. deild án taps. Einn bezti sund- maður landsins er Keflvíking ur o.s.frv. Sú íþróttagreinin, sem mestrar hylli nýtur á Suður- nesjurn, er vafalaust knatt- spyrnan. Skortur hefur verið á nothæfum knattspyrnuvelli, enda liafa leikir Keflvíkinga í I. deiid farið fram í Njarð- víkmn. í dag kl. 4 verður vígður nýr og góður malarvöll ur í Keflavík. Hann er að vísu á sama stað og sa gamli, en skipt hefur verið algerlega um jarðlag. Það var ha’fin vinna við völlinn sl. haust og síðan hefur verið unnið' svo til sleitulaust og í dag Ieika þar vígsluleik I. og 4. aldurs flokkar KFK og UMFK. Verið er að vinna við gras- völlinn og er biiizt við því, að sáð verði í hann í sumar. Um- WWHWMMWWMMMMIWWW hverfis grasvöllinn vcrður og hlaupabraut og aðstaða fyrir frjálsíþróttir, en nær útilok- að hefur verið að æfa þá grein í Keflavik undanfarin ár. — Vinna við hlaupabraut muu sennilcga hef jast næsta sum- ar. Einkum voru þeir hættulegir and- stæðingum sínum framan af. KR-ingar taka forystuna í leikn um á 22 mín. Skorar þá Örn Stein sen glæsilega af stuttu færi í þröngri stöðu úr sendingu frá Ell- ert, sem átti mestan þátt í und- irbúningi marksins með gegnum- broti á vinstri væng. Bretar láta sér það ekki lynda til lcngdar, að KR-ingar hafi yfirhöndina í leikn- um hvað mörk snertir. Þeir jafna á 25 mín. og rak þá Fay h. inn- | herji endahnútinn á gott upp- j hlaup þeirra og skoraði af stuttu ' færi, án þess að vörn KR fengi að gert. Gera Bretar nú harða hríð að marki KR og á 31. mín. tekst þeim að skora. Lék O’Rurke, vinstri inn herji í gegnum vörn KR, vinstra megin, upp að endamörkum og sendi knöttinn síðan út fyrir mark ið, en þá var þar kominn Bond, miðframherji, sem afgreiddi knött inn léttilega í net KR-inga. Ekki blés nú byrlega fyrir KR, en þeir gáfust samt ekki upp, held- ur börðust af fremsta megni, þó nokkuð væri nú farið að draga af þeim. Þeir ná sóknarlotu og eig- ast þá við miðframv. Breta og KR-ingur. Taldi dómarinn Magn- ús Pétursson að Bretinn hefði þá brotið það mikið af sér, að víta- spyrna væri eðlileg refsing þar fyrir. Nokkuð strangur dómur að vísu. Ellert framkvæmdi og dugðu ekki minna en tvær tilraunir, þar til réttlæti væri fullnægt. KR-ing- ar börðust vel og er þetta vafa- lítið bezti leikur þeirra í sumar. Þó skortir mikið á, að þeir hafi í fullu tré við hina brezku áhuga- menn hvað knattmeðferð og úthald snertir. Brezka liðið leikur mjög skemmtilega knattspyrnu. Þar er samleikurinn í hávegum hafður, en þá skortir mjög menn, sem eru hættulegir fyrir framan mark and stæðinganna. Hið árlega EÓP-mót KR-inga í frjálsum íþróttum var háð á Mela vellinum í fyrrakvöld. Keppt var í 12 greinum, en alls voru kepp- endur milli 30 og 40 frá fjórum félögum. Veður var mjög gott til keppni, frekar hlýtt og logn. Ekki verður samt hægt að segja, að árangur hafi verið góður, bezt á okkar mælikvarða var 400 m. hlaup Kristjóns Mikaelssonar, ÍR, og 1500 m. hlaup Kristleifs Guð- björnssonar, KR. Kristján hljóp á sínum bezta tíma 50,9 sek. Hann ! náði bezt 51,6 í fyrra og virðist j í mikilli framför, það sýndi hinn ! ágæti sprettur hans í 200 m. rétt á eftir 400 m. hlaupinu, en hann varð þar annar á sínum langbezta tíma, 23,4 sek. og vann m. a. hinn efnilega spretthlaupara KR- inga. Annars var 400 m. lilaupið skemmtilegasta greinin, Ólafur Guðmundsson, KR, tók strax for- ystu og hélt henni þar til um 100 m. voru eftir, en þá fór Kristj- án fram úr og sigraði örugglega. Þórarinn Ragnarsson, KR varð_3. , á sínum bezta tíma, 52,3 sek. Ól- I afur náði einnig sínum bezta tíma ' 51.9 sek. Kristleifur hljóp 1500 m. á 3:- 59,2 mín. keppnislaust, sem er góður árangur og það var augljóst á hlaupi Kristleifs, að hann er í góðri æfingu og líklegur til stór- afreka í sumar. Halldór Guðbj., KR, varð annar og fylgdi bróður I sínum eftir fyrstu tvo hringina, ! en þá varð hann að gefa eftir. Köslin og stökkin voru frekar léleg, bezt var kúluvarpið, en þar sigraði Guðmundur Hermannsson KR með 15,39 m., en næstur varð Jón Pétursson. KR, varpaöi jafn- langt, en næstbezta kast Guð- mundar var lengra og það gerði gæfumunmn. Kiartan Guðíóns- son, ÍR, sigraði í hástökki, stökk 1,85 m. Hann lét hækka í 1,94 m. og var mjög nálægt því* að fara yfir. Rétt hefði verið að reyna að komast 1,90 m. Erlendur Valdi- marsson, ÍR, náði sínum bezta ár- angri, stökk 1,80 m. Þó að lítið hafi verið um góð afrek á EÓP-mótinu gefur þaO samt góðar vonir síðar í sumar, Hér eru helztu úrslit: ÚRSLIT : 200 m. hlaup: Valbiörn Þorl. KR 23,0 Kristján Mikaelsson, ÍR 23,4 Einar Gíslason, KR 23,4 400 m. hlaup: Kristián Mak. ÍR 50,9 Ólafur Guðm. KR 51,9 Þórarinn Ragnarsson, KR 52,3 Þórarinn Arnórsson, ÍR '53,9 1500 m. hlaup: Kristl. Guðbi. KR 3:59,2 Halldór Guðbj. KR 4:13,0 Þörður Guðm. UBK 4:35,3 110 m. grindahlaup: Valbiörn Þorl. KR 15,5 Sigurður Lár. Á. 16,1’ Kiartan Guði. ÍR 16,2 Þorv. Ben. KR 16,2 1000 m. boðhlaup: A-sveit KR 2:03,7 Sveit ÍR 2.06J) B-sveit KR 2:10,3 Kúluvarp: Guðm. Herm. KR 15.39 .Tón Póturss.. KR 15.39 *'Kiart.an G»ðiónsson, ÍR 13.70 ..Erlendur Vald. ÍR 13,33 Krinelnkast: Jón Pótnrsson, KR 41.91 Biörsvin Hólm, 41.20 Guðión Guðm. KR 41,00 Friðrik Guðm. KR 39,36 Hástökk: Kjartan Guðjónsson, ÍR 1,85 Erlendur Vald. ÍR 1,80 Sigurður Lárusson, Á 1,73 Langstökk: Ulfar Teitsson, KR 6,79 Kjartan Guðjónsson, ÍR 6,32 Páll Eiríksson, KR 6,28 Ólafur Unnsteinsson, ÍR 6,20 (Fran.hald á 10. síðu). ALÞÝÐUBLAÐSÐ — 6. júní 1964 If,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.