Alþýðublaðið - 06.06.1964, Side 9

Alþýðublaðið - 06.06.1964, Side 9
Litla myndin er af regnguði, en stóra mýndin af leik Indíánanna, sem minnzt er á í greininni, ir með höfuðin á undan af ramm- anum. Þá kemur í ljós, að þeir hanga í köðlum, sem þeir hafa bundið um sig, og sveiflast nú stöðugt í hingi, en með einhverju móti lengist alltaf í köðlunum, sem þeir hanga í. Gengur svo langa lengi, að mennirnir sveifl- ast þarna í hringi og nálgast stöð ugt jörðu, en upp reisa þeir sig ekki fyrr en komið er svo til al- veg niður að pallinum. Þá hefur litklæðamaðurinn sérstöðu í þessu sem öðru. I-Iann reisir sig upp í miðju kafi, tekur upp hljóð pípu sína og trumbu og byrjar hljóðfæraslátt sinn að nýju. Það er einkennilegt; að fastar situr í manni endurminningin um kjark og hugrekki en minningin um alls konar tæknileg afrek, sem er að sjá á sýningu þessari. Áfram var haldið vappinu um víðáttumikið sýningarsvæðið. í Afríkuhúsinu eru sýnd ýmis þau dýr, er einkenna Afríku, auk ým- issa muna og mynda, er sýna eiga þróun mannsins um þúsundir ára. En sem við gengum inn í húsa- garðinn barst til okkar einhvers konar sönglist, og þegar nær kom reyndist þarna vera hópur mis- munandi mikið (eða lítið) klæddra Afríkunegra af báðum kynjum, sem. söng og dansaði uppi á palli. Venjulega var einn forsöngvari, en hinir tóku undir eitthvert við- lag, og iíktist þetta þó ekkert Ólafi, sem reið með björgum fram. Karlmenn sóku spjót í ákafa og virtist sem sum sönglaganna væru til þess ætluð að koma mönnum í vígahug, enda gerðust forsöngvarar tíðum all ófrýnilegir í söngnum, og hefði ég ekki viljað hitta þá í slíkum ham hefði ég verið á labbi í myrkviðum Af- ríku. Var manni nokkur huggun í að lita kringum sig og sjá, að maður var ekki einn. Einhverj- um varð að orði, að þetta væri tómt plat og þarna væru á ferð Samór Dankar og Þjóðdansafélag Vestur-Afriku, og má það svo sem vel vera, en allt um það var þetta mjög svo sannfærandi sýning. Víðar var að sjálfsögðu farið, bæði fótgangandi og í skemmti- legum vögnum frá langferðavagna félaginu Greyhound, sem sér um alla flutninga innan svæðisins. Of langt yrði að rekja allt það ferða lag, en hinu má slá föstu, að varla höfum við á þessari dagstund séð meira en tuttugasta hluta hinnar tröllauknu sýningar. Gífurlegt fé hefur vafalaust ver ið lagt í að koma sýningu þessari upp, og á hún að vera opin þar til í haust, en opnast síðan aftur í maí n.k. og vera opin til haustsins l'Ö65. En fjórum mánuðum eftir að sýningunni lýkur eru allir sýnend ur skuldbundnir til að hafa fjar- lægt sýningarhús og önnur mann virki, hafa grafið sem svarar fjög ur fet ofan í jörðina, ekið þar of an í mold, sléttað og sáð grasfræi eða sett grasþökur á svæðið. Ekk ert á að standa þar eftir nema merki sýningarinnar; hnötturinn og eitt eða tvö hús, og skal þetta standa til minnis um heimssýning una 1964—65. Sami háttur var á hafður um heimssýninguna i New York árið 1939. A fimmtudagskvöld var svo ek- Brúðan, sem er nákvæm eftirlíking af Abraham Lincoln. Framhald á síffu 10. Opnum í dag Verzlun með ýmsar vörur til hitalagna. Sér* staklega koparpípur, koparfittings og krana. Vér munum leggja sérstaka áherzlu á faglega fyrirgreiðslu um efnisval. Gjörið svo vel að leggja inn uppdrætti að hita- kerfum þeim. er þér hafið í hyggju að láta vinna og vér munum annast uppskrift á efnislista og af- greiðslu eftir óskum yðar. Munið viðurkenndar vörur. Sendum í póstkröfu um allt land. GEISLAHITUN H.F. X. Brautarholti 4. — Reykjavík. Sími 19804. — Pósthólf 167. VERKAFÓLK SÍLDARVINNA Síldarstúlkur og karlmenn vantar á nýja söltunarstöð á RAUFARHÖFN. . ... j Nýtízku íbúðir og mötuneyti á staðnum. Upplýsíngar í síma í 36, Raufarhöfn, og 50165, Ilafnarfirffi. Til síldarsöltunar Viljum ráða stúlkur og nokkra dixelmenn, sem fyrst á söltunarstöðvar vorar Siglufirffi, Raufarhöfn, Vopnafirffi. Fríar ferðir, húsnæði og kauptrygging. Upplýsingar í símum 41868 og 34580. GUNNAR HALLDÓRSSON H.F. Farangursgrindur LÉTTAR — ÞÆGILEGAR — RYÐVARÐAR ÓTRÚLEGA ÓDÝRAR (Verð frá kr. 575,00). FYRIRLIGGJANDI Á FLESTAR GERÐIR FÓLKS- OG STATIONBÍLA. BIN Bolholti 4 — Reykjavík — Sími 32881. AUGLÝSIÐ í ALÞÝÐUBLAÐINU ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 6. júní 1964 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.