Alþýðublaðið - 23.06.1964, Side 13
Vegagerðin
(Framu.ua al á. siðu).
fjörð. Þar verður unnið fyrir 1,5
millj. en talsvert af þvi fé fer í
skuldir, en 2 millj. á að verja til
Djúpvegarins frá ísafirði í Ögur
meðfram Djúpinu. í Vopnafirði
verður unnið fyrir nál. milljón,
svo og á úthéraði á Borgaríjarðar
vegi eystra.
Loks má ge a þess, að 2.3 millj
ónum verður var.ð til fjallvega,
reiðvega og ferjuhalds, og fer bróð
urparturinn af þeirri upphæð til
kláfferjunnar, sém verið er að
koma upp á Tungná hjá Haldi á
Sprengisandi. 200.000 munu einn
ig renna til Landssambands hesta
niannafé’aga. *
Tómstundagaman
(Framhald aí 6. siðu).
Johns litla og hefur höðið honum
að vera farþegi í þyrlu sinni á
opinberúm ferðalögum hvénær
sem hann öskar þess.
Og John litli hefur þegar farið
í tvær ferðir í þyrlunni og setið
á hnjám landvaínaráðherrans.
Hnííurinn beit ekki
(Fr»mháin *t i »
kleif upp þverhníptan klettastall.
Fietti hann sig þar klæðum og
bjóst til að rista sig á hol og ætl-
aði síðan að láta sig falla fram af
klettunum. Þegar til kom var hníf-
urinn ekki nógu beittur og komst
maðurinn ekki í gegnum bjórinn
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þó
fékk hann nokkrar rispur þannig
að úr blæddi.
Hætti maðurinn þá við tilraun-
ir sínar og klifraði niður aftur. —
Fékk hann sér nú brennivínsflösku
qg drakk úr henni og þegar lög-
reglan á staðnum ætlaði að fara
að skipta sér af honum, braut hann
flöskuna og bjóst til þess að verja
sig með brotinu. Að lokum lét
liann þó undan og var hann þá
tekinn og sendiir lögreglunni í
Reykjavík og lét hún hann lausan
þegar hann hafði skýrt mélavexti.
FÓRST THRISHER ÞANNIG?
(Framhald úr opnu).
. . &
SKiPAUTGCRB RIKISINS
^sia
fer austur um land í hringferð
27. þ. m. Vörumóttaka í dág ög
árdegis á morgun til Fáskrúðs-
fjarðar, Revðarfjarðar, Eski-
fjarðar, Norðfiarðar, Seyðis-
fjarðar, Raufarhafnar og Hú§a-
víkur.
Farseðlar seldir á fimmtudag.
SKJALDBREIÐ
fer véstur um land til Akur-
•eyrar 26. þ.m. Vörumóttaka í dag
og árdegis á morgun til áætlun
arhafna við Húnaflóa- og Skaga
fjörð og Ólafsfjarðar.
Farseðlar seldir á fimmtudag.
Heriólfur
fer til Vestmannaeyja og Horna-
fjarðar á morgun.
Vörumóttaka til Hornafjarðar.
í dag.
komu þá upp 15 pakkar af sérstök-
um þéttingum, sem m. a. notaðár
höfðu verið um borð í ThreSKer.
Opinber talsmaður sagði siðár, að
aldrei hefði verið efazt um:;rað
í>etta væri úr bátnum.
Stórbláðið New York Timés
skýrði frá því, að Thresher hefðf
fundizt og teknar hefðu verið
myndir af ýmsum hlutum skipslns
á botninum.
.. .•
Daginn eftir skýrði flotinn frá..
því að hér hefði verið um mistök
að ræða, myndirnar hefðu aðeins
sýnt hluta af umbúnaði myndavél-,
arinnar. Notað hafði verið annað
lóð en trenjuíéga til að sökkva;«él-
inni ( diúolð og visindamennirhir
könnUðúst ekki við það, er •■f>að
kom fram á myndunum.
Nö átti að senda'Trieste niður.
Skirdð kafaði fvrst 24. júní, eða
fyrir tæmi Sri siðan. Árangur'áf
fyrstu köfiminni var litilí, því skip
ið bar af leið og lenti á öðrum
stað en til var ætlast. Þar sást
ekkert markvert á bdtninum. —
Tveim dögum siðar var kafað á
nýjan leik. Þá sást einhver stór’
hlutur á botninum. Stjórnendur
skipsins gásttu ekki að sér og
festu ba.ð í botnleð.iunni. Þar sat
skipið fast í rúman hálftíma með-
an ballest var dælt út. Þegar-það
losnaði haut það eins og kork-,
tappi tæn’pga fimm hundruð fet
upp frá botni.
Kafað var í briðja sinn 27. júní.
Þá sást. g”l skóhlff úr plasti, en
þannig skóhlífar höfðu starfsmenn
við kiarnaklíúfinn í Thresher ein-
mitt notað. Hún lá snyrtilega sam
anbro*in á botninum og upp sneru
stafirnir ..SSN5“, en það eru éin-
kennisstafir flotans fyrir kjarn-
orkukafhíta. sem ekki eru af Pöl-
aris gerð. í næstu tvö skiptin, sem
kafað var. fannst ekkert markvert,
nema hvað i fimmtu köfuninhi'
virtist aRt. gahga á afturfótunum,
ýmis tæki biluðu og draga varð
Trieste + il viðgerðar í Bostöh.
24. ágúst hófust kafanir að nýju,
og ekkert markvert skeði til að
byrja með. í þriðju köfunarferð-
inni skintust þremenningarnir uin
borð í Trieste að venju á um a&
kíkja út um eina gluggann á skip-
inu. Þrýstingur sjóvarins á glugg-*
ann var 240 tonn á hvert ferfet,-
Þótt léitarljósin væru sterk 'Sáu
þeir aðeins um fimmtíu fet 'frá
sér. Skvndilega sáu þeir við hæð
eina vmite konar dót. Þar sáust
stálplötur, sem fletzt höfðu sund-
ur, plöturriar voru margar og sum
ar stórar, ennfremur sáust röra-
bútar og Slitrur af rafmagnsköpl
um. Sumar sköguðu plöturnar all
langt upn frá botni og varð að
krækja sérstaklega fyrir þær. Þetta
var mikil hrúga og greinilegt var,
að plöturriar voru úr Thresher.
Svæðið, sem brakið var dreift á,
var um 250 fet í þvermál. Ekki
fuhdu þeir þó sjálfan skipsstrokk-
inn, sem verið hafði fyrir innan
bessar plötur, sem aðelns voru til
varnar brýstingi. Þeir fóru nú upp,
en þetta svæöi fundu þefr ekki
aftur, þrátt fyrir endurteknar til-
raunir. Enn vantaði lokasönnun
þess að brakið væri úr Thresher.
Á Trieste hafði verið komið fyr-
ir griparmi. Einn áhafnarmeðlima,
Keach að nafni, lét nú þennan
arm grípa um koparpípu, sem ein
hver hlutur var fastur við. Grip-
armuiýnn setti pípuna í körfu
neðan á skipinu. Síðar var stað-
fest, að þessi pípa var úr Thresh-
er, úr herbergi skammt frá kjarna
kljúfnutn. Pípan var eins og hún
hefðl verið beygð og síðan hömruð
flöt, og síðan snúið upp á hana,
eins og tappatogara. Á henni var
núhier, þannig, að ekki varð um
villzt úr hvaða skipi hún var.
En hvað hafði í raun og veru
skeð? Hvað hafði sökkt einum
fullkomnasta kafbáti í heimi?
Mögulegt er, að einhverjUm á-
hafnarmeðlimi hafi orðið afdrifa-
rik skyssa á í starfi, én heldur er
það þó talið ólíklegt. Rannsóknar-
nefndin komst að þeirri niður-
stöðu, að slikur möguleiki væri
„óhugsandi“.
Við rannsóknina kom þó ýmis-
legt í ljós. Hringsjárstillingin var
öfug, þ. e. a. s. þegar ýtt var á
takkann, sém stóð á ,,upp“, fór
liringsjáin niður. Nær fimmti hver
ventill í vökvakerfi bátsins vann
öfugt, eða lokaðist í stað þess að
opnast, þegar þannig var stillt.
Þessi vitneskja fékkst frá einum
áhafnarmeðlima, sem var f fríi í
umræddri ferð.
En viö þétta átti allt að vera
búið að gera. Eftirlitsmenn, sem
fylgdust með viðgerðum, voru á-
nægðir og allmargir þeirra voru
með í hinni afdrifaríku reynslu-
för.
Raimsóknarnefndin komst að
þeirri -niðurstöðu eftir umfangs-
miklar rannsóknir, að líklegast
væri .að samskeyti á leiðslu hefðu
gefið sig.
Sérfræðingar flotáns töldu, að
yfirmaður bátsins hefði gefið skip
un um að kafa klukkan 7,48. Síðan
liefði verið gætt gaumgæfilega að,
hvort einhvers staðar væri um
leka að ræða. Hinn mikli þrýsting-
ur reyndi óskaplega á öll sam-
skeyti á öllum pípum. Einhvers
staðar liefur þéttir ekki verið full
komlegá í skorðum, en ekki ból-
aði á neinu strax. Skipstjóri var
í turnihum og fylgdlst með mæli-
tækjuni öllUm. Klukkan 9,12 brast
eitthvað. Pípurnar I bátum þess-
um eru til saínans margir kíló-
metrar að lengd, líklegast er að
einhver hafi brostið, þar sem kæli
sjór er tekirin inir í skipið. Þegar
klefinn fylltist af sjó er líklegt,
að skammhlaup hafi orðlð í ein-
hverjum mikilvægum stjórntækj-
um.
Þá er talið að reynt hafi verið
að losrta við ballest úr köfunar-
tönkunum, en um leið hætti vél-
in að ganga og skipið byrjaði að
síga. Hraðinn jókst eftir því sem
Thresher Seig. neðar. Síðan brotn-
aði kafbáturinn um miðjuna, rétt
eins og hann væri gerður úr eggja
skurn. Vatnsflaumurinn skapaði á
undan sér óskaplega hitabylgju,
en ekkert gat brunnið, því vatn
var í kjölfarí ’hitans. Bátshemlarn-
ir féllu síðan til botns og brotnuðu
um leið, svo ekkert varð eftir af
einum fullkoriinasta kafbáti Banda
rikjanna nema brak eitt.
Veitingaborð og
sfólar til sölu
Til sölu er nokkurt magn af stólum og borðum.
(2 manna og 4 manna). sem selt er þasr sem
félagsheimilið BIIRST hefur neyðzt til að
hætta störfum. Húsmunir þessir eru vel með-
farnir og verða seldir á góðu verði. Þeir, sem
þurfa á húsgögnum sem þessum að halda, geta
fengið nánari upplýsingar í símum 10769 og
16724.
Félag ungra jafnaðarmanna
í Reykjavík.
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiðir:
1) Skoda, Felicia, árg. 1962.
2) Willys Station, árg. 1959.
3) Federal, vörubifreið, 7 tonna, árg. 1951.
Bifreiðarnar verða til sýnis í portinu að Skúlatúni 1,
þriðjudaginn 23. júní frá kl. 1—3.
Upplýsingar veitir vélaeftirlitið á sama stað.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonarstræti 8,
kl. 4 e. h. sama dag.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Bv. Bjarni riddari GK 1, eign h.f. Akurgerðis verður eftir
kröfu Stofnlánadeildar sjávarútvegsins o. fl. seldur á
opinberu uppboði, sem fer fram á eigninni sjálfri föstu-
daginn 26. júní n.k. kl. 14,30. — Uppboð þetta var aug-
lýst í 50., 52. og 54. tbl. Lögbirtingablaðsins.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
NA UÐUNGARUPPBOÐ
Húseignin Kaldakinn 25, Hafnarfirði eign Einars Kr.
Enokssonar verður eftir kröfu Jóhanns Þórðarson, hdl.
og fleiri, seld á opinberu uppboði sem fram fer á eign-
inni sjálfri föstudaginn 26. júní n.k. kl. 14. Uppboð þetta
var auglýst í 35., 39. og 43. tbl. Lögbirtingablaðsins.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Utför
Lárusar Lýðssonar
kauþmanns
fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 24. þ.m. kl. 3 s. d.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna
Iljalti Lýðsson.
ALÞÝÐUBLAÖIÐ - 23. júní 1964 |,3