Alþýðublaðið - 05.07.1964, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 05.07.1964, Blaðsíða 6
.V'iv:v\*v hÍ 'Q 5. jú.í 1S64 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ f október 1945 tók lútherska kirkjan í Þýzkalandi upp það sem nefnt er „Stuttgarter Sehuldbekenntnis”. Allir Þjóð- verjar, án tillits til afstöðu þeirra til Hitlers, báru sinn hluta af sektarbyrðinni fyrir að svo fór, sem fór. „Við ákær- um okkur fyrir að hafa ekki verið nógu hugrökk”. En einn maður, dr. Lothar Kreyssig, lét sér ekki nægja að gefa slíka yfirlýsingu. Eftir mikla baráttu og erfiðleika stofnaði hann ár- ið 1958 „yfirbótarhreyfingu” sína. Þýzkaland. Fyrstu mánuðina leið ekki sá dagur, en einhver úr hópnum kæmi ekki og bæði um heimfararleyfi. Það var aldrei veitt og eftir þessa byrj- unarörðugleika fór starfið að ganga vel.. F.TÁRSTUÐNINGUR VÍÐA A» Bakgrunnur hreyfingarinn- ar er kristilegur, en þeir fá stuðning- víðar að. Bæði ung- sósíalistar og sósíalískir stúd- entar veita stuðning sinn, og einnig sérgreinafélög iðnaðar- ins, og þau eru sérstaklega mik ilvæg þegar vantar sérmennt- aða menn til einhverra starfa. Fjárstuðningur kemur aðal- lega úr þrem áttum. Mestur hlutinn kemur í frjálsum fram lögum frá einstaklingum, sem margir hverjir hafa skuldbund- ið sig til að láta vissa upphæð renna til hreyfingarinnar á mánuði hverjum. Einnig koma framlög frá lúihersku og ka- þólsku kirkjunni, einnig öðrum trúfélögum. FRÁBIÐJA SÉR RÍKISSTUÐNING Hreyfingin nýtur einskis stuðnings frá Bonnstjórninni, en því veldur þeirra eigin af- staða. Það hefur iðulega sýnt sig, að þegar stjórnin veitir fjárhagslegan stuðning ein- hverju málefni, þá setur hún pólitísk skilyrði, og það er alls ekki í anda þeirra, sem vinna að málefninu. -Einnig myndi opinber stuðningur útiloka, að þeir gætu unnið i löndum aust an járntjalds. Áður en hópur- inn, sem vinnur að end'irreisn arstarfi í Skoplje komst af stað, fóru fram miklar viðræð- ur við júgóslavnesk yfirvöld. Hið fyrsta, sem Júgóslavar spurðu um, var hvaðan pen- ingarnir kæmu, og hver tilgang urinn væri. Ef Bonn hefði stað ið bak við fyrirtækið, hefði engin von verið til þess að fá fararleyfi til Skoplje. Þá hefði verið litið á starfsemina sem þýzka „Wiedergutmachung” og það vilja Júgóslavar alls ekki sjá, sem ekki er von. REYNSLAN í NOREGI Starfið í Noregi hefur geng- ið mjög að vonum. Árið 1960 byggði liópur frá félagsskapn- um kirkju í Kokclv á Finn- mörk. Allir staðarbúar vissu, að þeirra var von, en enginn tók á móti þeim. Mánuðir liðu áður en þeir tækju að heilsa Þjóð- verjunum — en skyndilega brotnaði ísinn. Á þeim mánuð- um, sem eftir voru bundust traust vináttubónd milli Þjóð- verja og Norðmanna. Síðan hafa sumir þeirra, sem tóku þátt í kirkjubyggingunni, farið í vinaheimsóknir til Kokelv. Sömif reynslu hafa þeir orðið fyrir í Júgóslavíu, Hollandi, Belgíu, ísrael, Frakklandi, Grikklandi og Bretlandi. Eins og sakir standa starfa 25 stúlk ur á norskum fávitahælum, deilt niður í fjóra hópa. STIMPLAÐIR SVIKARAR í HÆGRISINNUÐUM BLÖÐUM Yfirbótarhreyfingin hefur oftast mætt skilningi og stuðn- ingi heima í Þýzkalandi. Þó er ekki laust við, að hún veríi vör við andúð. Næstum dag- lega berast hótanabréf á skrif- stofur hennar og jafn oft er hringt þangað án þess, að hringjandinn segi til nafns og hellt yfir þá, sem svara, marg- víslegum svívirðingum og á- minningum. Einnig láta ofsa- menn til hægri oft til sín heyra1 opinberlega. Hér er eitt dæmi úr blaðinu Deutsche National Zeitung: „Þýzka þjóðin er saklaus, hún hefur aldrei viljað vinna öðrum þjóðum mein. Ef ábyrg ríkisstjórn framkvæmdi glæp- samleg verk, þá.yar það án vit- undar og vilja þýzku þjóðar- innar. Öðru vísi var háttað með þqji illvirki, sem Pólverj- ar, Tékkar og Júgóslavar unnu á opnum götum borga og bæja: Milljónir kvenna, barna og gamalmenna voru brytjaðar niður af fullkomnu miskunnar- leysi. En hefur nokkur heyrt um yfirbótarhreyfingar þessa fólks?” EKKI OF LANGT UM LIÐIÐ Langt er nú liðið frá stríðs- lokum, en ekki svo langt, að störf, sem þau, sem nú hefur verið lýst, séu orðin óþörf. Einn þeirra, sem tóku þátt í starfinu í Noregi, var að því spurður, hvers vegna hann tæki þátt í þessu. „Vegna þess, að ég trúi, að ég vinni að einhverju, sem á sér tilgang”, svaraði hann. Tilgangurinn er ekki einvörð- ungu, að ungir Þjóðverjar taki þátt í endurreisnarstarfi er- lendis. Jafn mikilvæg eru vin- áttuböndin og samskiptin, sem myndast, og allar þjóðir þarfn- ast svo mjög. !!!!III[!li!!!!l!!i!![H)(lL,i:!ilii!I!IIIl!li!iniiHltl!l1!linniniIII]llllIli!lli!iIliíli!lll!!llli!!i:ii!!:!!lliiilllIlUIIiIiiiilliillliJlllll;ILHIJIiIiIlllKililliii:'!!ii!il<i!liL'!.,iiiiillli:iiii;>ÖII!illllll!JIIUIl!iiJi]>liJllli!iiIilIlIil!U!J!i;ii!I!i[!!!:! íhhh® Á FÁVITAHÆLI í Noregi, í jarðskjálftabænum Skoplje í Júgóslavíu, á samyrkjubúunum í ísraeÞ og á fjölda annarra staða vinna nú hópar ungra Þjóðverja, sem hafa yfirgefið vellaunaðar stöður heima í Þýzkalandi til þess að lifa í lönd um þeim, sem urðu fyrir her- námi Þjóðverja á stríðsárun- um. Oft búa þeir við fjandsam- lega afstöðu íbúanna á stöð- unum þar sem þeir dveljast. Þetta æskufólk er allt saman meðlimir hreyfingar, sem nefn- ist „Aktion Siihnezeichen”, en hún hefur sett sér það mark að vinna að einhvers konar upp- byggingu á' sömu landsvæðum og þýzkar hersveitir og SS- sveitir óðu uppi á áður með of- beldi og hryðjuverkum. í þýð- ingu mætti nefna þetta yfirbót- arhreyfingu. Það undirstrikar, að það sem um er að ræða er alls ekki að gera aftur gott það sem Þjóðverjar brutu af sér gagnvart þjóðunum á stríðsár- unum, heldur að unga fólkið vill gera yfirbót og gefa til kynna, að þeim er ljós sú á- byrgð, sem öll þvzka þjóðin ber 'á atburðum stríðsáranna. FRITT UPPIHALD og tvö mörk á dag., Nú stendur Klaus Wilm fyrir stofnuninni. Hann segir svo frá, að þeir sem koma til að starfa fyrir hreyfinguna séu frá öllum stéttum þjóðfélags- ins, iðnverkamenn, sfúdentar, tæknifræðingar, blaðamenn. — Allir skuldbinda þeir sig til að vinna í átta til tólf mánuði fyr- ir hreyfinguna. Hún greiðir kostnað við ferðir og uppihald, og þess utan fá allir þátttak- endur 2 mörk á dag í vasapen- inga. Það er allt og sumt. Til að byrja með var aðsókn- in að þessum störfum fremur dræm, en nú er svo komið, að forráðamennirnir geta valið úr liðinu eftir því hvernig fólki er lielzt þörf á í hverjum stað. Það er ekki alltaf auðvelt að finna hinn rétta. Allir hafa hið rétta hugarfar, en sumir end- ast ekki til að búa við þá kosti, sefn beim eru settir. í fyrsta sinnið, sem hópur var sendur til Norður-Noregs, komu í ljós erfiðleikar þeir, sem eru á því fyrir Þjóðverja að vinna við mjög ólík skilyrði miðað við Kirkjan, sem ungir Þjóðverjar byggðu í Kokelv á Finmnörk.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.