Alþýðublaðið - 14.07.1964, Page 11

Alþýðublaðið - 14.07.1964, Page 11
i x'. -í ■ ÞAÐ hefur sýnt sig að undan- förnu, að erfitt er að sækja gull í greipar þeirra Skagamanna' ú heimavelli, knattspyrnulega talað. Yfirleitt hafa þeir, sem átt hafa í höggi við þá á heimavígstöðv- unum mátt láta í minni pokann,- að vísu misjafnlega mikið. — Það verður því að teljast vel af sér vikið hjá Fram, að koma þar, sjá og s.gra, svo sem raun varð á, ekki hvað sízt, þegar þess er minnzt hversu erfiðlega Frám- liðinu hefur gengið í mótinu til þessa. En hvað um það, sigur Staðan í l. deild Staðan í 1. deild er þessi: Akranes 8 5 0 3 22:17 10 Keflavik 5 3 0 2 12: 8 8 KR 5 3 0 2 9: 6 6 Valúr 7 3 0 4 16:17 6 Fram 7 2 14 15:18 5 Þróttur 6 114 7:17 3 Efnilegir þrí- stökkvarar A unglingameistaramoti Is landis frjalsum íþrottum um helgina atti Heraðssam- bandið Skarpheðinn þrja fyrstu menn 1 þns ökki og þeir stukku allir lengra en 14 metra. Sigurvegarinn, Karl Stefansson, stökk 14,54 m., sem er nytt unglingamet, Reymr Unns einsson, og Sig urður Sveinsson stukku bað ir 14,08 m., en Reynir sem atti betra næst bezta stökk varð annar. Reynir er til vin stri Frám 4:1 yfir stigahæsta liði I. deildar til þessa, varð raunveru- leiki á sunnudeginum var. Má því scgja. að Framárar hafi rétt hlut sjnri á' mótinu allmyndarlega. Þó hins /Vegar sé-sigur þessi lævi blandirin, vegna óskemmtilegs at- viks, sem fyrir kom seint í leikn- um, ög vitnar um skort skapstill- irigár "og þess .jafnvægis hugans, sem íþróttin á $ð þroska með þátt takendum, og gera þá hæfa til að mæta hvers kyns tilvikum með .jafnaðargeði. Er hér átt við við- uréign Geirs rparkvarðar Fram og Ríkárðar miðframherja ÍA. Báðir éru þeir þrautreyndir leikmenn.svo serii vitað er, hvor í sinni stöðu. Ekki verður annað sagt, en í þess- ari viðureign hafi Geir gengið feti framar, en hæft var, og sýnt af -sér þau viðbrögð, sem betur fer, eru með eindæmum í ísl. knatt- spyrnu. Þótt markverði sé, sam- kvæmt knattspyrnulögunum, ein- um leikpianna heimilt að nota hendurnar, nær sú heimild ekki, bótalaut, ’til þess að lumbra með þeim á nndstæðingi. í fyrri hálfleiknum skoruðu Framarar þrívegis og Akurnesing- ar gerðu þá þetta eina mark sitt. Þegar á fyrstu mínútu kom mark Fram frá Guðjóni Jónssyni af stuttu færi, og mjög illverjandi fyrir Helga. Bakvörður jafnaði svo að segja um leið og leikur var hafinn, síðan bætir Baldur Schev- ing öðru marki Fram við, og aft- ur bætti Guðjón þriðja markinu og þá úr aukaspyrnu af um 35 metra færi. Tvö þessi síðari mörk verða að skrifast á reikning Helga markvarðar, sem einhvern veginn tókst að misreikna sig í vörninni. Vissulega var þetta mikið áfall fyrir Skagamenn að fá á sig tvö mörk með slíkum hætti. En þrátt fyrir það, halda þeir uppi mikilli baráttu með góðum tilþrifum,.— áttu m. a. skot í stöng. Síðar í leiknum kom gott skot á mark Fram, sem Geir varði með föstu gripi. Ríkharður sótti allfast að honum, og gerði tilraun til að ná frá honum boltanum, er hann kastaði honum niður, méð því að spyrna til hans, aftur fyrir sig, lenti þá högg á fót Geirs, og féll Geir við. Baldur Þórðarson dómari stöðvaði leikinn og gaf aukaspyrnu. Geir varpaði þá bolt- anum í höfuð Ríkharði, visaði þá Baldur Geir út af, en það skipti éngum togum, að Geir snérist hart gegn Ríkharði og rak lionum höf- uðhögg, frekar tvö en eitt, og fgll Ríkharður við. Varð nú held- ur betur hreyfing á áhorfenda- svæðinu, hróp og köll, sem ekki var að ástæðulausu. Skipti það engum togum, að áhorfendur þyrptust inn á völlinn í vígahug og allt fór í upplausn um stund. Leikmenn Akurnesinga með Jón Leósson í fararbroddi, slógu hring um -hinn herskáa markvörð, og fengu borgið honum á örugg- an stað, meðan heift múgsins var að réna. Stuttu síðar hélt svo leik urinn áfram, Guðjón Jónsson fór í markið og Framarar léku tíu eftir það. En þrátt fyrir það gafst Akur- nesingum ekki að ná sér á strik og skora þrátt fyrir það. Hins vegar bættu Framarar einu marki við. Ásgeir Sigurðsson skoraði, en átti Helgi sinn þátt í því marki, eða mistök hans. Baldur Þórðarson dæmdi leik- inn, og miðað við allar aðstæður slapp hann furðu vel frá honum, að minnsta kosti heill á húfi. A.k.n. Guðmundur sigraði í ■ tveimur greinum og setti met, DANIR SIGRUÐU ÍSLEND- INGA i SUNDI MEÐ 39:38 Sett voru fjögur íslandsmet DANIR sigruðu íslendinga í sundi með einu stigi, 39 gegn 38, en keppninni lauk í Hilleröd í gær- kvöldi. Eftir úrslit 200 m. bringu sunds karla og kvenna, sem fram fór í Kaupmannahöfn á sunnudag, en í þeim greinum sigruðu Danir, var búizt við öruggum sigri Dana. En það fór á annan veg, íslend- ingar náðu frábærum árangri, m. a. voru sett f j.ögur íslandsmet. Guð mundur Gíslason og Ilrafnhildur Guðmundsdóttir settu sitt hvort metið, en einnig voru sett glæsi- leg met i báðum boðsundunum. Hér koma úrslit í einstökum grein um: 100 m: flugsund kvenna: Hrafn- hildur Guðmundsdóttir, 1.13,9 mín., sem er nýtt glæsilegt íslands met. Kirsten Strange gerði sitt sund ógilt. ísland hlaut 5 stig, Danir ekkert.. 100 in. skriðsund karla: Guð- mundur Gíslason, 57,0 sek., annár varð Lars Kraus Jensen, 58,3 sek. íslands 5 st., Danmörk 3, Tími Guð mundar er mjög góður, aðeins 2/10 úr sek. lakari en metið. 100 m. baksund kvenna: Þar sigraði Kirsten Michelsen á 1.11,2 mín., en önnur varð Ásta Ágústs- dóttir, 1.25,3 min. Danir 5 stig, íslarid 3. 200 m. baksund karla: Lars Kraus Jensen, 2.28,3 mín., Davíð Valgarðsson, 2.37,6 mín. Danir fengu enn 5 stig og ísland 3. 100 m. skriðsund kvenna: Kirst- en Strangé, 1.03,0 mín., nýtt glæsi- legt danskt met. Hrafnhildur synti á 1.04,5 mín. Danmörk 5 stig og ísland 3. 200 m. flygsund karla: Guð- mundur Gíslason, 2.20,8 mln., nýtt íslenzkt met. J. Pedersen, 2.43,& mín. Norðmaðurinn Per A. Peter- sen synti sem gestur og setti nýtt norskt met, 2.19,0 mín. Fyrir flug sundið fær ísland 5 stig og Dan- ir 3. 4x100 m. fjórsund kvenna: Dan- mörk sigraði á 4.58,2 mín. íslanri fékk 5.20,6 mín., sem er íslenzkí landsliðsmet. 4x100 m. fjórsund karla: íslanrt sigraði á glæsilegu landsliðsmeti, IFramhald á 4. Gíðul Hrafnhildur setti glæsilegt met í 100 m. flugsundi. Jafrítefli 2-2 í gærkvöldi léku Þróttur og Valur í I. dcild. Jafntefli varð, 2 möric gegn 2. ‘—■v ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. júlí 1964 If-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.