Alþýðublaðið - 23.07.1964, Blaðsíða 7
^pmiimmiitiiuiiiiiiuiiiiimim
^tliiiiititiiitiiimmimiiuimii
miiii>m iMiiiiiimiiimmiiiiimimmiiimmmimimmiiiiiiiiiimimiiiiimmiimiiiiiiiiiiiiiimmimiiiiiiiiimcimiii'mif
KONUNGUR I
1700 DAGA
%
G
Z
S
5
::
I:
r.
::
::
ij
5
e
e
e
c
i
Be^f leM »o opl .moM:>
‘ Rclls al a hjgK.price
I Bloom Wolfson linis
Arlíclc onfiloon- ‘i.1’
HnoHiual ticalings
, Öiit > I itiilííig. .p/oti©*• Ií9'
March 22 M«rch29 Apnl 5-26 May July5
1964
Jan May June Nov
196? 1963
I fjrstunni hafói hann aðeins 12 punda kaup á viku. En hann átti í pokahorninu snjalla hugmynd,
sem hann var ákve.ðinn í að hrinda í framkvæmd. Hann gerði það' og. varð milljónamæringur á
henni aðeins þrítugur að aldri. Nú er konungsríki hans hrunið' til grunna.
Hann hóf framleiðslu á mið-
stöðvarkerfum, sem menn áttu
sjálfir að geta sett upp. Því var
spáð, að kerfin mundu séljast
fyrir fimm milljónir steriings
punda fyrsta árið. En um kerf
in hefur ekki heyrzt eitt ein-
asta orð síðan sala þeirra var
fyrst auglýst. Nú fór að halla
undan fæti. Þrátt fyrir ýmsar
tilraunir til að komast á rétt
an kjöl.
Hann reyndi að keppa við
JOHN BLOOM var konungur
ríkis síns í 1700 daga. Hann
byrjaði sem skrifstofumaður í
múrsteinaverksmiðju, en áður
en hann var orðin þrítugur var
hann orðinn margfaldur mill-
jónamæringur (í sterlings-
pundum.) Nú er ríki hans
hrunið til grunna.
Saga John Bloom byrjar í
nóvember 1959, og ef til vill
má segja, að henni hafi lokið
síðastliðinn föstudag, þegar fyr
irtæki hans, sem fyrir einu ári
Var virt á 13 milljónir ster-
lingspunda, lýsti sig gjald-
þrota.
Bloom er nú 32 ára gamall,
og er dæmigerður fyrir þá sem
snögg frægð varpar ljósi á um
skamma hríð, en hverfa svo.
Þegar hann vann í múrsteina
verksmiðjunni hafði hann tólf
sterlingspund í kaup á viku.
28 ára gamall hafði hann eign-
azt fyrstu milljónina, en þrí-
tugur var hann orðinn marg-
milljóner.
Þá 1700 daga sem ríki hans
stóð, var næstum ómögulegt að
líta í blað, horfa á sjónvarp,
eða hlusta á útvarp, án þess að
heyra þar eitthvað um John
Bloom, fyrirtæki hans og fram
leiðslu ■ þeirra. Ríki hans, eða
aðalstoð þess hrundi meðan
hann sjálfur var á skemmtisigl
ingu á Svartahafi undan strönd
Búlgaríu. Skemmtisnekkja
hans kostaði um fjórar milljón
ir íslenzkra króna.
Bloom var snemma ákvcðinn
í að komast áfram. í skóla
seldi hann skólabræðrum sín
um gömul myndablöð, og þegar
hann var í hernum, seldi hann
félögum sínum fargjöld með af
slætti með ýmsum áætlunar-
vögnum. Síðar ferðaðist hann
milli húsa sem sölumaður og
seldi þá sitt af hverju tagi.
í kring um 1955 datt hann
niður á einstæð kostakjör.
Hann fann hollenzka þvottavél,
sem hann keypti á 29 pund,
en seldi síðan á 44 pund, sem
töluvert var lægra verð, en
hægt var að fá þvottavélar fyr
ir í Englandi. í sum.um tilfell-
um munaði um helming á
verði. Hann auraði saman þang
að til hann átti fyrir almenni-
legri auglýsingu (437 pund),
og við henni bjóst hann við að
fá um eitt hundrað svör. Svör
in urðu þegar til kom átta þús-
und, og nú lá honum fram-
brautin opin.
Ekki leið á löngu þar til hver
heilsíðu auglýsingiu á fætur
annarri birtust frá honum í
sfærstu blöðum landsins. Og
síðar þegar umsvif hans voru
hvað sem mest sáu fjögur fyrir
tæki um auglýsingar fyrir
hann, og kostnaður við það
varð 1,8 milljónir punda á ári.
Hann hafði herskara sölu-
manna á sínum snærum, sem
höfðu ekki önnur laun, en pró-
sentur af því sem þeir seldu,
en lifðu þó góðu lífi oft. Sölu-
mennirnir gerðu herhlaup í ný
íbúðarhverfi og seldu þvotta-
vélar svo tugum þúsunda
skipti.
Allt var þetta í fyrstu ofur
einfalt í sniðum og hreinn á-
góði var 30% af verði hverrar
þvottavélar.
En fyrirtækið óx svo ört, að
þar kom að, að hann þurfti að
leita utanaðkomandi fjármagns
því byggja þurfti nýjar verk-
smiðjur og sitthvað fleira.
Þegar hér var komið sögu,
hafði John Bloom náð 22%
þvottavélamarkaðarins í Bret-
landi og nú þurfti að finna
nýjar framleiðsluvörur svo fyr
irtækið gæti haldið áfram að
vaxa. Hann lagði út í ýmiss kon
ar fyrirtæki, og naut við fjár-
öflun aðstoðar virðulegs fyrir-
tækis í London. Tap varð þó á
flestum fyrirtækjanna og önn
ur gerðu ekki meira en að
standa undir sér.
Bioom á heimili sínu meðan Iániff lék viff hann. Þegar hann kvæntist 19G2 var brúðkaupiff halóiff
hátíðlegt meff tveim brúffarterum, sem vógu hvorki meira né minna en hálft tonn hvor.
Kodak um sölu kvikmyndavéla
til nolkunar í heimahúsum, og
auglýsti ódýr ferðalög til Búlg
aríu í stórum stíl. En allt kom
fyrir ekki.
Meðan þessu fór fram fór að
harðna í ári hvað snerti þvotta
vélasöluna. í október síðastlið-
inn var sala þeirra þó enn mik-
il, eða tæplega 7500 vélar á
viku. Fyrir um 200 krónur
íslenzkar gátu menn fengið árs
birgðir af þvottaefni með vél-
unum. Augiýsingar frá John
Bloom minnkuðu ekki, en nú
var farið að bjóða ýmiskonar
kostakjöK til að freista þeirra
kaupenda, sem tvístigu.
Einu sinni, ekki fyrir löngu;
hélt John Bloom frægan blaða
mannafund á Savoy. Þar sýndi
hann fréttamönnum rafmagns-
ofn, sem verða skyldi eins kon
ar kaupbætir með þvottavélun
um. Ofninn var nákvæm eftir-
líking af ofni, sem Hoover verk-
smiðjurnar höfðu nýlega sett á
markaðinn og kostaði tæp
fimmtán sterlingspund. (Einn
raftækjaframleiðandi hafði þau
orð um þenuan ofn, að þetta
væri dýrasti ofn í heimi, með
þvottavéi í kaupbæti).
Öll báru sölubrögðin þess
greinilega merki, að nú var
samkeppnin farin að harðna.
Hoover, English Electric og
fleiri stórfyrirtæki í heimilis-
tækjaiðnaði höfðu nú stórlækk
aff verð á þvottavélum sínum,
sem sambærilegar voru viff
Rolls þvottavélarnar frá John
Bloom, eða sett nýjar gerðir á
markaðinn. Það sem nhkilva'g-
ara var þó, að sjálfvirkar þvotta
vélar nutu nú æ meiri iiylli al-
mennings. Bloom haíöi enga
sjálfvirka vél til að bjóða við-
skiptavinum sínum og því iór
hann nú að dragast attur \,r.
Um langt skeið var alis kon
ar orðrómur á kreiki, um lejni
vopn, sem John Bioom væri að
koma fram með og sem áttu að
bjarga öllu og auka sölune.
John Bloom sagöi fyrir
nokkru um hinn mikla augiys-
ingak;ostnað fyrirtækja sira.a:
Framhald á 13 síöu
BLOOM
T
I
:r
£
if
íiiiiiuiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiuii -vjui * liiiiiiniiiuiii/iiiiiiiiiiiiuiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiu |iiiimiiiui|iiiiiHi iHmimmiiimiiii»iiiiiiiuiiiimiiiiiiiiiiuimmmiimuuuiiumiimiuiiiiinummiiimiiimnmuiii"i''i » umiimuiiiimiiiiiiuuiiiuiiiimmiP
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. júlí 1964 %