Alþýðublaðið - 26.07.1964, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 26.07.1964, Blaðsíða 2
lUtstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) os Benedikt Gröndal. — Fréttastjðri: Árni Gunnarsson. — Kitstjómarfulltrúi: EiSur Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auslýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið vi3 Hverfisgötu, Reykjavík. rr. Krentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjaid lu-. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. UMGENGNISMENNING NÁTTTIEA landsins okkar -er víða fögur og stór'brotin. Við eigum fjölda fagurra staða, þang- að sem menn geta leiitað og fundið hvíld frá ys og skarkala bæjarlífsins, Um helgar á sumrin fara hundruð, ef ekki þúsundir Reykvíkinga, og ann- ^arra landsmanna, í ferðalög, ýmist á eigin bifreið- um eða með áætlunarbifreiðum. Ferðalög innan lands og umferð á þjóðvegum hafa stóraukizt nokk- <ur síðustu ár, þar eð bifreiðaeign er orðin almenn- •ari en áður, og fólk hefur meiri fjárráð en nokkru sinni fyrr. Árlega heimsækja þúsundir íslendinga vin- sælustu ferðamannastaðina, eins og þjóðgarðinn á Uingvöllum, Þjórsárdal og Þórsmörk, Því miður hefúr það viljað brenna við á stundum, að við sýndum. ekki þá umgengnismenningu, sem ætlazt er til, þegar við heimsækjum þessa staði. ; Það hefur verið of algeng sjón á ýmsum þess- : ara fögru staða að sjá nestisleifar og annars konar 1 óþrifnað eins og hráviði um allt, þar sem ferða- i raenn hafa áð. Þessu þurfum við að breyta. Umgengni sýnir innri mann, segir máltækið, t og víst eru það orð að sönnu. Við megum ekki láta slæma umgengni spilla fegurð landsins. Ferða- • f ólk ætti því að kappkosta að ganga ávallt þannig um, að hvorki horfi til lýta á gróðri né landslagi. Erlendis liggja víða sektir við því að skilja eftir í rusl á víðavangi, og það þótt í smáu sé. Vonandi •igetum við bætt umgengnismenningu okkar að mun, 1 án þess að þurfa að grípa til slíkra ráðstafana. METVERTÍÐ V'ERTÍÐIN'í vetur reyndist óvenjulega góð. ’ .M skýrslu Fiskifélags íslands sést, að heildarfisk- : afli okkar á tímabilinu 1. janúar til 30. apríl hef- ~ 'Ur aukizt um nær þriðjung miðað við árið á und- j 'an. Þessi aukning á sér stað þrátt fyrir þá stað- - reynd, að síldarafíí á vetrarvertíð varð nær tíu 4 þúsund smálestum minni í ár en í fyrra. Afli báta <og togaraflotans jókst um tæplega 80 þúsund smá- 4 lestiri Þessi gríðarlega aukning er að mjög verulegu leyti .áð þakka breyttum veiðiaðferðum. Á síðast- • liðiuríi vertíð notaði fjöldi báta hringnót við þorsk- fvæiðar með aiöragðsgóðum árangri. Ætla margir, að sá fiskur, sem veiddist í hringnótina, hefði ekki 'fengizt með öðrum veiðarfærum. I fveiðitækni standa íslenzkir sjómenn nú fram- •■arlegþ mjóg. En það er ekki nóg að veiða, heldur verðijm vió að kappkosta að breyta aflanum í sem verðrfiætasta útflutningsvöru. Á þeim vettvangi æiguih viö margt óunnið, og þar megum við allra ■ sízt viö því að dragast aftur úr. umtammsrnmi •mmmvmmmmaammmmBmmmammmmmmmmammmmammmmmmmmamm Byggingin gengur samkvæmt áætiun Rcykjavík, 24. júlí, HKG. BYGGING nýju lögreglustöðvar innar við Hlemmtorg gengur sam kvæmt áætlun. að því er lög- reglustjóri, Sigurjón Sigurðs- son, tjáði blaðinu í dag. Búið á að vera að stcypa allt upp í október í haust, en nú er verið að slá upp fyrir fjórðu hæðinni í aðalálm- unni. Búið er að steypa upp tvær álm ur byggingarinnar, en sú þriðja er á leiðinni. Þegar þessu er lok- ið, verður þegar farið að setja í glugga og annað slíkt og verða tvær álmurnar fokheldar á þessu ári, ef allt gengur samkvæmt á- ætlun, hér eftir sem hingað tiL Verklegar framkvæmdir haf£ séð um verkið til þessa, og sve verður, þar til húsið er fokhelt. Ekki hefur verið ákveðið, hverjii eigi að sjá um innrétting stöðvar- innar. Lögreglustjóri sagði, að það væri mikið tilhlökkunarefni að komast í nýju bygginguna, — en ekki vildi hann um það segja, hve nær það yrði. Hann kvaðst aðeins Framhald á 13 siðu HINAR NÝJU OG GLÆSILEGU * m BMW BIFREIÐAR KRISTINN GUÐNASON H.F. KLAPPARSTÍG 25-27. — SÍMI 21965 — 22675. hafa hlotið miklar vinsældir um alla Evrópu, enda hafa þessar bifreiðar ávallt verið í sér flokki. ÞAÐ ER ÖLLUM TIL ÁNÆGJU AÐ AKA í BMW BIFREIÐ. ★ BMW UMBOÐIÐ : ÖRUGG VARAHLUTA- ÞJÓNUSTA 2 267 júlí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.