Alþýðublaðið - 26.07.1964, Blaðsíða 9
R: RAGNAR LÁR
verða á matnum. Þá sagði einn
íerðamanna: „Það gerir ékk.ei't
til, við skreppum bara í Öskju á
méðan verið er að búa til matinn“.
Sumir héldu að þeir væru komn
ir alla leið í Öskju, eða svo gott
sem,' þegar þeir voru komnir 1
Mývatnssveit, en þaðan sást vel til
gossins.
Þegar við höfum dvalið góða
stund í Herðubreiðarlindum, og
dáðst að þessari vin í eyðimörk-
inni, höldum við ferðinni áfram og
nú-er Askja áfangastaður.
Vegurinn má heita greiðfær, a.
m. k. jeppabifreiðum. Þegar við
eigum skamma leið ófarna að
nýja hrauninu, mætum við fjalla-
bifreið Gísla Eiríkssonar, en hann
er að koma með ferðamannahóp
frá nýju eldstöðvunum. Hann seg-
ir að vegurinn um nýja hraun-
ið sé vel fær. Hópurinn ætlar að
gista þarna skammt neðan við
hraunið, og skyldum við koma við
hjá þeim í bakaleiðinni. Þetta nýja
hraun er það úfnasta sem ég hefi
séð og segja má að það sé ófært
yfirferðar, öllu nema fuglinum
fljúgandi og svo auðvitað jarðýt-
um sem hafa lagt þennan veg. Þó
undarlegt megi virðast þá er ekki
harðara í hrauninu en svo, að
jgrðýtur eiga auðvelt með að
mylja það undir sig. Vegurinn er
grófur á köflum, enda lítt sem
ekki ofaníborinn. Við erum um
það bil hálfan klukkutíma að aka
upp að eldstöðvunum nýju, en
þær blasa við löngu áður en að
þeim er komið. Það rýkur víða
upp úr jörðunni á allstóru svæði
og sennilega er langt þangað til
svæðið verður að fullu kólnað.
Hér eru rjúkandi vikurbingir á
víð og dreif og stöku gígar. Við
ökum svo til yfir mitt svæðið
Ketill segir Jóni að hann skuli
ekki stanza þar sem úr rjúki og
bætir því við að fyrst í stað hafi
menn verið hræddir við að aka
hér yfir vegna þess að dekkin
mundu soðna sundur. Jón stanz-
ar því bílinn þar sem enginn gufa
kemur upp. Ég kemst að raun um
að Ketill hefur rétt fyrir sér, og
finn hitann leggja i gegnum sól-
ann á inniskónum. Af þeim sök-
um þori ég ekki að standa lengi á
sama stað, en hoppa um á stafnum
og hækjunni. Skyndilega fara þau
bæði á kaf, stafurinn og hækjan
og finnst mér það ónotaleg til-
finning. Það er þá svona gljúpur
jarðvegurinn hérna og engan
botn að finna. Ég hökti því þang-
að sem fastara er undir og sezt
þar og virði ferðafélaga mína fyrir
mér, en þeir hafa gengið upp á
næsta bing, sem er nokkuð hár.
Þaðan hrópa þeir að gígur sé nið
ur í binginn, enda rýkur mikið úr
honum.
Þegar við höfum skoðað nægju
okkar á þessum heitu slóðum,
hoppum við um borð í jeppann á
ný og höldum áfram ferðinni suð-
ur að Öskjuvatni, en þangað er
ekki nema á að gizka tveggja kíló-
metra spotti og samfelldur vikur
yfir að fara alla leið. Ekki höfum
við þó lengi farið er á ’Vegi okkar
verður grunnur snjóskafl nokkuð
breiður. Nýleg hjólför eru yfir
skaflinn og segir Jón okkur að
þau muni vera eftir rússajeppa.
Að svo mæltu herðir hann ferð-
ina og rennir sér í förin. En þá
vill ekki betur til en svo, að jepp-
inn stendur fastur þegar við erum
komin 3 eða fjóra metra út í skafl
inn, og snúast hjólin í lausu lofti.
Nú eru góð ráð dýr, og engin
skófla með í ferðinni. En allt er
hey í hallæri, eins og þar stendur
og nú þrífur Ketill af mér hækj-
una góðu og Jón tekur stafinn og
byrja þeir að grafa með þessum
Framhald á síðu 13.
Útsala - Útsala
Sumarútsalan hefst á morgun.
Fjölbreytt úrval af ódýrujrt káp-
um, drögtum og höttum. Notið
tækifærið, því verðið er óvenju
hagstætt.
★
BERNHARD LAXDAL,
KJÖRGARÐI
Laugavegi 59. — Sími 14422.
Ný sending
frá Holmegárds Glasværk
eru komnar.
I
G. B. Silfurbúðin
Laugavegi 55. — Sími 11066.
Þór Þóroddsson frá Kaliforníu:
YOGA
Fyrirlestur um hugeðlisvísindi
er kynnir j'oga-kerfið, sem sniðið er fyrir venjulegan
Vesturlandabúa, verður fluttur í fyrstu kennslustofu Há-
skólans kl. 8 e. h. sunnudaginn 26. júlí.
Aðgangur ókeypis.
Auglýsingasíml
ALÞÝÐUBLAÐSINS
er 14906
Ottúin
Matreíðsla
auðoeld
Bragðíð
Ijúffengt
Royal köldu búðingamir
Þrátt fyrir ítrekaffar tilraunir, tókst okkur ekki aff losa jeppann.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 26. júlí 1964 9