Alþýðublaðið - 26.07.1964, Side 11
i
✓
Ji nÉ
E i j|
miðvikudag
íslenzka landsliSiS — myndin er tekin á síð'ustu æfingu. Á myndina vantar Akureyringana Jón Stefáns-
son og Kára Árnason. — (Ljósm.: Bj.Bj.).
Iveir skozkir landsliðsmenn
Skozka landsliSiS kom til Reykjavíkur í gær, en landsleikurinn fer
fram á Laugardalsvellinum annaS kvöld kl. 20,30. Hér birtum. viiS
myndir af tveim IaudsliSsmannanna. Sá efri er Doug Grand, miS-
framvörður, en hinn er gamalkunnur, hann heitir Peter Buoh-
anan og lék með brezka Olympíuliðinu hér í fyrra.
„Við getum alveg eins unnið
ef liðið verður samstillt".
Næstkomandi þriðjudag og mið
vikudag fer fram keppni í tug-
þraut á vegum FRÍ í Reykjavík,
er hér um að ræða nokkrs konar
úrtökumót fyrir landskeppnina í
tugþraut við Svía og Norðmenn,
sem háð verður í Reykjavík 8. og
9. ágúst. Svíar og Norðmenn háðu
nýlega landskeppni í-tugþraut og
sigruðu þeir fyrrnefndu. Búast
má yið mjög jafnri keppni í
þriggjalandakeppninni.
PETER BUCHANAN
segir yngsti leikmaðurinn,
Eyleifur Hafsteinsson
EINN af fáum ljósum punktum
í íslenzkri knattspyrnu í dag, er
frammistaða ungs pilts frá Akra-
nesi á knattspyrnuvellinum í sum-
ar. Hann er 17 ára og mun nk.
mánudagskvöld klæðast * bláhvíta
landsliðsbúningnum og verða þá
jafnframt yngsti leikmaðurinn, sem
valinn hefur verið í landslið ís-
lands í knattspyrnu. Það er ekki
rétt, sem ltom fram í Tímanum,
að Ríkharður hefði verið yngri,
þegar'hann lék sinn fyrsta lands-
leik. Ríkharð.ur lék fyrsta lands-
leik sinn árið 1947 gegn Norðmönn
um en ekki 1946 eins og blaðið
hélt fram. Ríkharður var þá tæp-
lega 18 ára.
Eyleifur Hafsteinsson, en svo
Iieitir umræddur piltur, hefur nú
hlotið viðurkenningu landsliðs-
nefndar að vera bezti framherji
ísl. knattspyrnu í dag. Það kem-
nr vissulega engum á óvart, sem
með honum hafa fylgzt á undan-
förnum árum, að svo muni vera.
Undirritaður man ekki eftir
honum öðruvísi en sparkandi bolta.
Málarastéttin á stóran hlut í
landsliðinu í dag, því að ekki færri
en 4 málarar hafa verið valdir í
liðið og er Eyleifur einn þeirra.
Hann stundar nám hjá Ríkharði
Jónssyni og mér segir svo hugur
um, að í knattspyrnunni hafi
hann einnig numið sitthvað hjá
meistara sínum.
í tilefni af þessum merka á-
fanga á knattspyrnuferli Eyleifs
gengum við á fund hans, til að
spjalla við hann um áhugamál
hans, knattspyrnuna. Eftir nokkra
leit fann ég hann í húsi nokkru
við Akurgerði, og var hann þar
ásamt Ríkharði að leggja flísar á
eldhúsgólf. Eg ber upp erindið um
viðtal og fékk það svar, að það
væri velkomið, ef ég yrði fljótur,
því að við gólfið yrði hann að
ljúka fyrir kl. 4, því að þá færi
hann til Reykjavíkur á landsliðs-
æfingu.
.—■ Nú hefur þú verið valinn í
landsliðið — ertu ekki kvíðinn fyr
ir leikinn?
— Nei, nei, a.m.k. ekki ennþá,
það kemur kannski þegar nær
leiknum líður.
— Kom þér á óvart að þú yrðir
valinn : í liðið?
— Ja, eiginlega, ég bjóst ekki
við því.
— Margir eru hræddir um að
þú verðir eyðilagður með of mörg
um crfiðum leikjum og finnst að
bíða hefði mátt með að velja þig
í landéliðið. Hvað finnst þér um
þáð? ;
— Eg hef alls ekki hugsað út
í það. Framtíðin verður að skera
úr þvi hvort svo verður. Ríkharð-
ur var víst lítið eldri, þegar hann
Jék sinn fyrsta landsleik og hann
hefur haldið það sæmilega út.
— Þú hefur verið nokkuð mark-
heppinn í sumar, hvað ertu búinn
og skora mörg mörk?
— Eg er búinn að leika 12 leiki
með meistaraflokk og hef skorað
11 mörk eða næstum eitt í jeik,
þar af hef ég skorað átta mörk
í I. deildarkeppninni.
— Þér hefur verið mikið hælt
í blöðum í sumar, finnst þér þú
hafa átt allt þetta hól skilið?
— Skoðanir manna á knatt-
spyrnu eru að sjálfsögðu mjög mis
jafnar, en stundum finnst mér
hafa verið hrósað um of fyrir leiki,
sem voru frekar lélegir af minni
hálfu. — Annars les ég alltaf þessa
knattspyrnugagnrýni, en mér
finnst ekki alltaf vera mikið af
henni að læra.
— Segðu mér þá að lokum Ey-
leifur, hvernig heldur þú að leik-
urinn við Skota fari?
— Eg spái aldrei um úrslit
leikja, en ef okkur tekst vel upp,
getur leikurinn alveg eins unn-
izt.
EYLEIFUR HAFSTEINSSON
— Hefur þú leikið nokkurn tíma
erlendis?
— Eg fór með 3. fl. IA til Nor-
egs í liitteðfyrra og sl. vetur var
ég í sex vikur í knattspyrnuskóla
í Duisburg í Þýzkalandi, mér lík-
aði vel dvölin þar og hafði af henni
ánægju og gagn.
Lengra gat þetta spjall ekki orð
ið, við hinn unga landsliðsmann,
því ennþá var eftir nokkuð stór
flötur á gólfinu, sem á vantaði
flísar og klukkan farin að ganga
fjögur. Við óskum að lokum Ey-
leifi og landsliðinu góðs gengis
í leiknum á morgun. — HDan.
Tugþraut í R.vík
á þriðjudag og
DOUG GRAND
— Þú ert búinn að leika knatt
spyrnu í allmörg ár?
— Eg hef leikið með öllum
yngri flokkum ÍA, ætli ég hafi
ekki verið 7 eða 8 ára þegar ég
lék minn fyrsta leik.
F. Bonlieu ji
keppir hér |i
Olympíumeistarinn í stór- < >
svigi, Frakkinn Francois Bon- j J
lieu mun koma hingað til !!
Iands um Verzlunarmanna- «;
helgina og taka þátt I afmæl- !!
ismóti KR og sumarmóti ÍR. ! >
Keppt verður bæði í svigi og £
stórsvigi og auk Bonlieu taka ! >
þátt í móti þessu flestir beztu < ]
I
skíðamenn landsins.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 26. júlí 1964 JJ.