Alþýðublaðið - 06.08.1964, Blaðsíða 10
Löggjöf vantar
Framhald af síðu 7.
bjóða í verk X hugsum okkur, að
það væri hitaveituframkvæmd.
Fyrirtæki B tæki að sér að bjóða
í verk Y byggingu skála og fyrir
tæki C tæki að sér verk Z-
ríkis. Fyrirtækin bjóða til
málamynda í verkefni hvers
ánnars með það takmark
fyrir augum að augvelda
hverju um sig að taka sér óhófleg-
an hagnað af verkunum, m. a. með
því að spara sér þá dýru útreikn-
inga, sem fylgja því að láta verk-
fræðinga reikna út verðtilboð í al-
vöru. Möguleiki á slíku samstarfi
hlýtur að verða mönnum umhugs-
unarefni á timum slíkrar þenzlu
og skorts á vinnuafli, sem nu rík-
ir. Væntanlega mun það sann
ast í raun að samtök olíufélag
anna um afstöðu til Reykjavíkur-
borgar, muni reynast af-
þeirra hálfu óskynsamleg. í beinu
jframhaldi af tilboði þeirra
feerði borgarstjórn Reykjavíkur
alyktun á fundi sínum í febrúar
pánuði með 11 atkvæðum gegn 2
:Samkvæmt tillögu borgarfulltrua
íAlþýðuflokksins svohljóðandi:
i? „Borgarstjórn Reykjavikur bein
iir þeim tilmælum til hæstv. ríkis-
:stjórnar, að hún hafi forgöngu um,
að sett verði svo fljótt sem unnt
er sérstök löggjöf um, rekstur og
starfsemi stórfýrirtækja og fyrir-
tækjasamsíeypa, þar sem reistar
verði sérstakar hömlur gegn ein-
okunaraðstöðu, svo og gegn sam
tökum um verðákvarðanir, en hags
munir neytenda verndaðir, m. a.
með því að tryggja samkeppni
slíkra fyrirtækja, frjáls viðskipti
og frjálsa verðmyndun.“
Þessi beiðni borgarstjórnar
Reykjavíkuf hnígur mjög í sömu
•átt og tillögur, sem Alþýðuflokks-
menn hafa flutt á Alþingi. Ef svo
væri háttað á fleiri sviðum við-
skiptalífsins, sem áðurnefnd dæmi
um olíufélögin benda til, mundi
þá ekki Alþingi og ríkisstjórnin,
sem vaka í sameiningu yfir vel-
ferð hins almenna borgara, finn-
ast nærri sér væri höggvið og tíma
bært, að hið opinbera tryggði sér
með löggjöf betri aðstöðu en nú
er, til að hlutast til um gerð þess
ramma, sem viðskiptalífinu væri
búinn með því að geta sett sér þær
leikreglur, sem hindra misnotkun
einkasöluaðstöðu einkafyrirtækja
með samruna efnahagsvalds?
Þetta dæml um olíufélögin er
því miður ekki einsdæmi. í blaði,
sem „Frost“ heitir og er gefið út
af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
birtist greinin „Frystihúsaeigend
ur hyggjast stofna öskjugerð." í
blaðinu er rakinn aðdragandi
þeirra ákvörðunar, sem fyrirtæk-
Póssningarsandur
, Helmkeyrður pússningarsandui
og vikursandux, sigtaður eða
4 ásigtaður við húsdyrnar eða
kominn upp á hvaða hæð sem
er. eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN vlð EUiðavog *J
Simi 41920s.
in innan Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna munu hafa tekið
um að reisa sér eigin öskjugerð-
arfyrirtæki. Við skulum huga nán
»r að aðdraganda þessarar grein-
ar. Eitt fyrirtæki hér á landi ann-
ast framleiðslu og sölu á öll-
um pappaumbúðum, sem Xslend-
ingar hafa þurft á að halda um
skeið, bæði ul innanlandsnotkun
ar og sem umbúðir utan um út-
fluttar sjávarafurðir, og mun það
vera um liðlega helmingur fram-
leiðslu fyrirtækisins. Fyrirtæki
þetta, Kassagerð Reykjavíkur, er
talið samkeppnisfært við innflutt
ar umbúðir, gæti jafnvel annazt
úíflutning, ef ekki kæmu til vernd
artollar í öðrum ríkjum og eitt-
hvað mun fyrirtækið hafa seit af
vörum sínum til Færeyja. Verð-
ákvarðanir fyrirtækisins, Kassa-
gerðar Reykjavíkur, eru ekki háð
ar neins konar verðlagseftirliti
eða íhlutunar ríkisvaldsins. Þetta
fyrirtæki hefur þess vegna einka
söluaðsmðu að því leyti, að það
er eini framleiðandi pappaumbúða
á landinu. Það hefur óneitanlega
allgóða aðstöðu til þess að nota
sér þessa einkasölustöðu sína til
að afla sér óhóflegs ágóða í henn-
ar skjóli, enda er það vel búið ný-
tízkulegum vélum til framleiðsl-
ustarfseminnar.
A hinn bóginn eru stærstu við-
skiptavinir Kassagerðarinnar
í heildarsamtökum 58 frysti-
húsa, Sölumiðs.öð hraðfrystihús-
anna. F’essi fyrirtæki munu kaupa
50% af framleiðsluvörum Kassa-
gerðarinnar fyrir um 40 millj. kr.
og er þá miðað við árið 1963. Sölu
miðstöð hraðfrystihúsanna getur
með því að fara með umboð allra
eða flestra þessara fyrirtækja kom
ið fram gagnvart Kassagerð
Reykjavíkur sem einkakaupandi
eða það, sem kallað er á fræðilegu
heiti „kaupendakartel" eða kaup-
endasamtök. Aðstaða Sölumið-
stöðvarinnar er fyrst og fremst
fólgin í því að geta hótað Kassa-
gerðinni annað hvort að kaupa
framleiðsluvörur sinar erlendis
frá eða þá að stofnsetja sína eigin
kassagerð. Nú er svo komið mál-
um, að Sölumiðstöðin vill ekki
una verðlagi Kassagerðar Reykja
vikur og hyggst hefjast handa um
undirbúning að stofnun nýrrar
kassagerðar. Nú leyfi ég mér að
spyrja, með hliðsjón af því, að
Kassagerðin getur með núverandi
húsum og vélakosti fullnægt allri
umbúðaþörf landsmanna á kom-
andi árum, með hliðsjón af því, að
nýtt framleiðslufyrirtæki í þessari
grein mundi ekki kosta minna en
10 millj. kr. og svipta það, sem fyr
ir er verkefnum, með hliðsjón
af því, að mikill hörgull er á
vinnuafli í landinu, með hliðsjón
af því, að viðkomandi frystihús
hafa hlotið fjárhagslega aðstoð af
hálfu ríkisins, er þá ekki tíma-
bært að hið opinbera tryggi sér
með sérstakri löggjöf vald til í-
hlutunar um framvindu slíkra
deilumála milli einkasölufyrir-
tækja annars vegar og fyrirtækja
samtaka hins vegar? Eru ekki
nógu miklir og augljósir hags-
munir þjóðarhéildarinnar í veði,
til þess að svarið við þessum
spurningum sé játandi?
fyrir
sjálfvirk
kynditækl
fyrir
Súg-
kyndingu
aðeins
það
bezta.
t
jafnan fyrir-
^ liggjandi.
^ Vélsmiðja
^ Björns Magnússonar.
Keflavík,
sími 1737 og 1175.
Húsbyggjendur
Baðkör, stálvaskar, salemi,
handlaugar, blöndunar-
tæki og kranar.
BURSTAFELL,
byggingavöruverzlon,
Réttarholtsvegi 3.
Sími 4-16-40.
SMURT BRAUÐ
Snittur.
Opið frá kl. 9—33,30.
Brauðstofan
Vesturgötu 25.
Símg 16012
Húsaviðgerða-
þjónustan
Gerum við allt fyrir húsið,
úti og inni.
Nýsmíði, breytingar, tvö,-
falt gler o. fl.
Sími 60017.
drípp - dropp
Köflótt barnaregnföt
frá verksmitfjunni Vör
Stærdirá 2ja-5ára.
Austurstræti
t Framhald úr opnu.
o'g frændum, ef við nennum að
iiiusta á mál þeirra eða lesa það
af sæmilegri athygli. Sama gildir
um þá, ef við kveðjum okkur
hljóðs í áheyrn þeirra. Þess vegna
áetti samvinna íslendinga og Fær-
■eyiriga að vera sjálfsagður hlutur.
Nú hefur veizlusate'inn verið
•rúddur borðum og stoTum, og allt
í einu dunar dansinn. Hann er
•Færeyingum í senn leikur og í-
þrótt -— og þó miklu meira, menn-
iftgafarfur, þjóðarsiður, sennilega
mártnræn. nauðsyn. Færeyingur-
inn er sem einstaklingur hæglátur
og seintekinn, fer sér aldrei óðs-
lega, heyrir raunar tímans þunga
hið, en hættir sér naumast fram á
fljótsbakkann, hvað þá úc í djúpið,
Og veit jafnan átt, leið og veður.
Svo gengur hann í dansinn og hef
ur sönginn. Þá breytist allt í einu
þetta kyrrláta fólk í þyrpingu ið-
andi hrings eins og bárufaldur
rísi og hnígi úr lygnum en djúpum
s’jó. Og hver er þessi þuiiga undir
alda? Hún er gleðiþrá færeysku
þjóðarinnar um ár og aidir, sam-
hugur og bræðralag. Færeyingar
dansa og syngja til þess að losna
úr fjötrum hversdagsleikans, kasta
af sér álagahami þreytunnar og á-
hyggjurnar og gera sér glaða
stund hönd í hönd. Fegurri vina
fundi getur varla.
Hjartabilun mín bannar mér
þátttöku í dansinum, en ég er
rsamt með. Niðurinn og kliðurinn
seytlar um mann eins og seiður
hafsins. Er þetta ekki þjóðsaga?
Eru það fremur menn en álfar,
sem dansa hér fyrir glaðvakandi
áugum mínum, þar sem ég sit á
t.ajj»yi£u kunningja mína? Mér
ninist eins og fjall hafi opnazt og
ég sjái inn í steinaborg eða kletta-
höll, þetta er líkara draumi en
veruleika, dansinn þarna úti á gólf
inu er ekki aðeins leikur og gaman
og gleði, heldur einnig og eigi
síður ákall, tilbeiðsla, alvara. En
vitaskuld harka ég af mér allan
barnaskap. Þetta er færeyskur
dans, en af honum eru stórtíðindi
eins og íslenzku kvöldvökunum í
gamla daga. Hann veldur miklu
um þá staðreynd, að Færeyingar
eru sjálfstæð þjóð, hvað sem
stjórnarfari þeirra líður. Þetta
fólk á sér tungu, sögu og menn-
ingu og finnur til öðru vísi en aðr
ir í gleði og harmi. Víst eru Fær-
eyingar hæglátir, en samt leynast
rikir skapsmunir í fari þeirra og
•sálarlífi. Og þeir eru stoltir af
landinu, sem guð gaf þeim til eign
ar og varðveizlu, þó að það sé
náktar eyjar, barðar sjó og stormi
í þúsund ár. Já, þótti þeirra er
nokkur. En einmitt þess vegna
hafa Tæreyingar verið, eru og
verða sjálfstæð þjóð.
Er þá framtíðar von á þessum
harðbýlu norðlægu eyjum? Sannar
lega. Hver myndu vera tákn henn
ar, ef innt væri eftir frekari sönn-
tm en góðum óskum gestsins? Þau
eru mörg, en eitt ber þó af — æsk
an í Þórshöfn. Hreinni börn lief
ég . hvergi séð, hraustlegri eða
svipdjarfari. Vaxtarbroddurinn
sprettur hátt og fagurlega úr grasi
fortíðarinnar. Þetta unga og efni-
10 6. ágúst 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
lega fólk verður þeim vanda vax-
ið að leysa mörg og stór verkefni,
láta marga og stóra drauma ræt-
ast. Augu barnanna í Þórshöfn,
blá, grá og brún, spegla dugnað
og fram.ak Færeyinga, gleði
þeirra og gæfu, frelsi og farsæld.
Höfðatalan er ekki einhlít. Stór-
veldi geta hrunið í rústir, og lítil
þjóð getur orðið stór.
Gestáboðinu er lokið og dansinn
hættur. Storminn hefur lægt, og
himinninn grætur ekki framar
risatárum sínum, sumarnóttin fell
ur yfir höfuðs.að Færeyja í mjúku
logni og hlýju myrkri eins og lag
að ljóði. Ég geng út og heim. Gott
verður að sjá ísland rísa úr hafi
í mörgunsári, en gaman þætti
mér að lifa það að gista Færeyjar
einhvern tíma aftur.
Helgi Sæmundsson.
(Pramhald af 6. sfðu).
in vist í rúmum dómaranna, sem
hún afþakkaði. Svo langt hafði
jafnvel gengið, að hún hafði orðið
að hlaða fyrir herbergisdyr sínar
til þess að verjast ásókn kræfra
dómara.
Af vörum annarra stúlkna hafði
hún þeyrt um miklar veizlur á
hótelherbergjum og það hafði al-
drei brugðizt, að þær stúlkur, sem
tóku þátt í þeim, tóku einnig þátt
í verðlaunaafhendingunum.
Frásögn Páulu hefur vakið mikla
reiði í, Frakklandi og þaðan hafa
komið hótanir um, að fulltrúi
Frakka í Miss World-keppninni,
Arlette Collot, liætti við þátttöku.
Fréttabréf
Framh. af 7. síðu.
hæst hann fes, og huga að útsvar-
inu. Heppinn er ég að eiga enga
fiðlu. Ég myndi ekki hafa vit á að
reka svo dýrt verkfæri.
mar. E.
Menn tll
Framhald úr opnu.
ríkjamenn sent út i geiminn uni
200 loftför stór og smá, og er það
þrisvar sinnum fleiri en Sovét-
ríkin hafa sent á loft.
Lítið er vitað. um athafnir Sov-
étmanna á þessu sviði, þar sem
þeir segja fátt af þeim opinber-
iega, nema þegar geimskot heppn
ast. Er almennt talið, að mörg
skot hafi misheppnazt hjá Rúss-
um ekki síður en Bandaríkja-
mönuum.
Eyjóífur K. S’srurjónsson
Ragnar A. M^enússon
Löggiltir endnrskoðendur
Flókagötu 65. 1 hæð. sími 17903