Alþýðublaðið - 11.08.1964, Blaðsíða 5
Íslendingar sigruðu
Bermuda naumlega 4:3
„ÞIÐ VERÐIÐ AÐ LEIKA
HRAÐAR GEGN FINNUM",
sagöi sænski dómarinn Boström.
EINAR Boström frá Gávle dæmdi
landsleik íslands og Bermuda í
gærkvöldi og ekki er hægt að
segja annað en liann hafi rækt
starf sitt vel af hendi. Fréttamað-
ur íþróttasíðunnar lagði nokkrar
spurningar fyrir Boström að leik
loknum.
— Leikurinn var þófkenndur til
að byrja með, sagði Boström. Það |
var ekki fyrr en staðan varð 3-3, 1
þá kom loks landsleiksstemning.
Sigur íslands var fyllilega verð-
skuldaður að mínu áliti, bætti Bo-
ström við.
— Markið, sem dæmt var ógilt?
— Leikmaður nr. 8 (Þórólfur)
stjakaði óiöglega við markverð-
inmn, svaraði Boström.
— Ifaldið þcr að við höfum
nokkuð að gera í Finna?
— Það er ekki gott að segja
bolV’iin1 e,r krínglóttur og alll
getur skeð í knattspyrnu. Annars
verður íslenaka liðið að leika
liraðar, til að eiga möguleika í
fiunska liðið. Finnarnir sigruðu
að vísu' Svía á dögunum, sagði
Boström brosandi, en þeir léku al-
gjörlega varnartaktik, voru mest-
allan tímann einir 6-8.í vörn.
SIGURMARK LANDSLEIKSINS
Myndin sýnir Ellert Schram skora sigurmarkið með skalla úr hornspyrnu frá vinstri, sem Ríkharðup
framkvæmdi. Þá voru aðeins 3^—4 mínútur til leiksloka. — (Myndir: Jóh. Vilberg).
3:1, eftir góða sendingu frá Ríkharði.
ÍSLENZKA landsliðinu í knatt-
spyrnu tókst að merja sigur yfir
reynslulitlu og sundurlausu liði
Bermuda með 4 mörkum gegn 3
Vart er hægt að segja að sigur
þessi auki að neinu ráði á hróður
Iandsliðs vors. Lið okkar var að
vísu sterkari aðilinn í leiknum, en
yfirburðimir voru þó svo litlir að
vart er hægt að miklast af þeim.
Andstæðingarnir, lið Bermuda,
voru fremur getulitlir, einkum þó
hvað snerti allt leikskipulag (tak-
tik.) Ilinsvegar voru þeir fremur
leiknir með knöttinn, sem sagt
fremur þokkalegir einstaklingar en
sem heitd mjög lélegir. Vafalítið er
þetta éinn með Jélegustu lands-
leikjum, sem hér liafa verið leikn-
ir.
Veður var ágætt til keppni. Lít-
ilsháttar gola, en þó ekki til baga
á nokkurn hátt fyrir keppendúr.
Bermuda hóf leikinn. Fyrsta send-
ing þeirra í leiknum var fremur
Æinkennileg, en hún var með þeim
hætti, að hægri innherji þeirra,
sem fékk knöttinn úr uppliafs-
spyrnu frá miðframherja, spyrnti
langt og hátt inn í vítateig ís-
lands. Þetta var einkennileg byrj-
un og ekki góður fyrirboði um
„taktíska" kunnáttu gestanna. ís-
Iendingar réðu að mestu lögum og
lofum á vellinum mestan hluta
fyrri hálfleiks. Þó voru það Ber-
mudamenn sem skoruðu fyrst og
var þar að verki D. Landy mið-
framherji þeirra, sem skoraði með
ágætu skoti rétt innan vítateigs
eftir ágætan undirbúning tveggja
miðherja sinna vinstra megin. —
Litlu munaði að Þórólfur Beck
jafnaði þegar á sömu mínútu, er
hann átti ágætt skot í þverslá af
löngu færi. ísland sækir nú nær
látlaust, en án árangurs. Það líða
20 mínútur þar til okkar mönn-
um tekst að jafna. Það var Þór-
ólfur sem átti mestan þátt i því,
þó að til kæmi nokkur hjálp frá
gestunum. Þórólfur skaut af löngu
færi, knötturinn fór í varnar-
mann og breytti nokkuð stefnu,
markvörðurinn kastaði sér, en
knötturinn fór undir hann og í
netið. Aðeins minútu síðar eða á
30 min. skora íslendingar aftur.
2:1. — Skallaði Ellert knöttinn í
mark Bermuda af stuttu færí úr
fyrirgjöf frá Eyleifi. Áttu íslend-
ingar tvö ágæt tækifæri, það sem
eftir var fyrri hálfleiks en mis-
tókst aö skora.
BERMUDA JAFNAR!
íslendingar byrjuðu vel seinni
hálfleikinn. Þórólfur átti prýðis-
skot á 2. minútu, sem Siddle
markvörður sló yfir. Skönfmu
seinna skallar Þórólfur yfir mark-
ið af stuttu færi, en þó nokkuð
erfiðri stöðu. Á 9. mínútu skorar
Þórólfur mjög glæsilega úr á-
gætri sendingu frá Ríkharði. stað-
an var því 3:1 íslandi í vil Flestir
bjuggust nú við því að sigur væri
tryggður, en það fór nú nokkuð á
annan veg, því liðsmenn Bermuda
hertu nú mjög róðurinn og áttu
nú sinn bezta kafla í leiknum. Mið-
framherji þeirra-, Landy, brýzt í
gegnum vörn íslands á 17. mín-
útu og skorar óverjandi (3:2). Á
26. mínútu jafnar Bermuda eftir
mjög vel uppbyggt upphlaup hægra
megin, sem v. útherji, Wright, rek
ur endahnútinn á með skoti af
stuttu færi, sem Heimir fékk ei
við ráðið, enda var hann -einn eft-
ir til varnar. Nokkuð háði það Ber-
muda, að margir liðsmenn þess
fengu sinadrátt síðustu 20. mínút-
ur leiksins.
Ellert skorar, er um 35 mínút-
ur eru af hálfleiknum, en dómar-
inn Boström dæmdi markið ógiTt,
vegna þess að ólöglega hefði verið
stjakað við Siddle markverði Sig-
urmarkið skoraði Ellert með
skálla úr hornspyrnu frá vinstri,
sem Ríkharður framkvæmdi, þeg-
ar um 3-4 mínútur voru til leiks-
loka.
íslenzka liðið sýndi ekki neina
sérstaka knattspyrnu í leiknum.
Vörnin var fremur fálmkennd. —
Bakverðirnir báðir og hægri fram-
vörður voru með slappara móti.
Þórólfur var bezti maður liðsins.
Þeir Ellert og Jón Leósson
sluppu sæmilega frá leiknum. Rík
harður vann mikið, en skortir
mjög hraða. Útherjarnir Karl og
Framhald á síðu 4
Eyleifur
Þórólfur skorar mjög glæsilega
og vinstri bakvörður Bermuda berjast um
knöttinn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 11. ágúst 1964 $